upp11.11.2004

Hérna ætla ég að troða slatta af uppskriftum sem ég hef viðað að mér úr ýmsum áttum, sumar hef ég prófað og aðrar bíða betri tíma. Á þessari síðu eru sjávarréttaruppskriftir frá ýmsum hornum heimsins.

Að undirbúa fisk fyrir eldun:

Hreinsun.

Hreinsa skal fisk og fiskiflök undir rennandi köldu vatni. Varast skal að blóð, gall frá gallblöðru og innyfli komist í snertingu við sjálfan vöðvann. Blóð veldur oxun í fiskinum, gallið gerir fiskinn ramman á bragðið og ensým frá inniflum flýta fyrir rotnun.

Marinering.

Í marineringu skal nota sítrónusafa, kryddjurtir og pipar. Með þessum efnum verður fiskurinn stinnari og heldur vökvanum betur í sér. Salt skal einungis nota rétt fyrir eldun.

Bacaloa confitado Baccalá Íslandia Bakaður fiskur

Fiskdeig Fiskur í Orly Fylltar rauðspretturúllur

Fylltar skarkolarúllur Innbakaður fiskur... Ofnbakaður fiskur

Ofnbakaður plokkfiskur Orly-steiktur saltfiskur Reyksoðin Ýsa

Ristaður Karfi Saltfiskstrimlar í rjómató... Saltfiskur að hætti Baska

Soðin Rauðsprettuflök Steikt Rauðspr.flök í möndlum Steikt Rauðspr.flök m. ban...

Steikt Rauðspr.flök m. rae. Steikt Rauðspr.flök m. camemb. Steikt Rauðspr.flök m. epl...

Steinbítur m. spergilkáli Tindabikkja í piparsósu Djúpsteiktar rækjur

Ristaður Karfi m. sósu Snöggmarineraður Lax Ananassíld

Apótekara síld Appelsínumarineruð síld  

 


Bacalao confitado

800 gr útvatnaður saltfiskur
hvítlauksolía
marenerað grænmeti að eigin vali
800 gr tómatmauk

Skerið saltfiskinn í strimla 1x3 sm. Steikið saltfiskinn í hvítlauksolíu á pönnu og haldið heitum.
Svissið mareneraða grænmetið á annari pönnu og hellið tómarmaukinu yfir kryddið með svörtum pipar.
Setjið maukið fyrst á fatið eða diskinn og saltfiskstrimlana þar ofan á berið fram með grófu salati og góðu brauði með hvítlauksolíu.

Aftur upp


Baccalá Íslandia

Soðinn saltfiskur, kartöflur og rófur ca 1200 gr
Ólífuolía til steikingar
1 stk laukur saxaður
2-3 stk hvítlauksrif pressuð
1 ds niðursoðnir tómatar
1 ds tómatkraftur
20-30 svartar eða grænar ólífur
ítalskt krydd
pamesanostur
sítrónusafi

Steikið laukinn og hvítlaukinn þar til laukurinn verður glær. Þá er saltfiski, rófum og kartöflum bætt saman við (allt í litlum bitum). Síðan er tómötum, tómatkrafti, sítrónusafa og kryddi bætt út í soðið í fimm mín, þá er pameseanosti stráð yfir. Borið fram í pönnunni með hvítlauksbrauði og grófu salati.

ATH. Gott er að setja harðsoðin egg saman við um leið og borið er fram.

Aftur upp


Bakaður fiskur

7-800 gr ýsuflök roðrifin (eða smálúða, rauðspretta)
4 stk laukur
1 stk sítróna
1 biti ferskur engifer
1 msk sojasósa
50 gr smjör

Skerið fiskinn í smáar sneiðar. Rífið börkinn af sítrónunni og pressið safann úr henni, rífið engiferinn. Blandið saman sítrónuberki, safa, rifnu engifer og sojasósu. Látið fiskinn marenerast í leginum í 20-30 mín. Hreinsið laukinn og skerið í þykkar sneiðar, hitið laukinn í smjöri á pönnu þar til hann er orðinn mjúkur. Leggið laukinn í smurt eldfast fat, setjið fiskinn yfir og kryddið með salti og pipar. Bakið í ofni við 200°C í 25-30 mín. Borið fram með súrsætri sósu.

Aftur upp


Fiskdeig

300-400 gr hakkaður fiskur td, ýsa
½ -1 tsk salt
1/8 tsk pipar
1 laukur
3 msk hveiti
1 ½ -2 msk kartöflumjöl
1 egg
1-2 ½ dl mjólk

Setjið fiskhakkið í hrærivél hrærið saman við mjölinu og kryddi, bætið eggi og mjólk smátt og smátt saman við. Látið deigið standa smá stund áður en það er notað.

ATH. Þykkt deig er notað í soðnar fiskibollur þynnra í steiktar og enn þynnra í fiskbúðing.

Aftur upp


Fiskur í orly

Orlydeig
3 dl pilsner eða vatn
2 msk sykur
1 msk salt
1 tsk olía
1 eggjarauða
hveiti
1 eggjahvíta

Pilsner, sykur, salt, olía og eggjarauða hrært saman og þykkt með hveiti, blandan á að vera álíka þykk og pönnukökudeig. Látið blönduna standa í 1 kls. Eggjahvítan er stífþeytt og blandað saman rétt fyrir steikingu.

Fiskur

ýsuflök
hveiti

Fiskurinn er roðdreginn og snyrtur, skorinn þversum í 3-4 bita eftir stærð og síðan langsum í 5 cm langa bita. Fiskurinn þerraður, kryddaður ef vill og velt upp úr hveiti, settur í orly deigið og djúpsteiktur í djúpsteikingarpotti eða á pönnu í 2-3 mín við 180-200°C.

Aftur upp


Fylltar rauðspretturúllur

4 rauðsprettuflök roðflett og snyrt
3 msk sítrónusafi
2 msk matarolía
salt og pipar
4 stk vorlaukar saxaðir
1 hvítlauksrif marið
1 tsk engiferrór rifin
1/8 tsk cayenna pipar
¼ tsk túrmerik
8 msk nýtt dill

Raðið flökunum í bakka og hellið sítrónusafa yfir flökin, saltið og piprið þau og látið bíða um stund. Blandið saman söxuðum vorlauk, mörðu hvítlauksrifi, engiferrót, cayenne-pipar og túrmeriki. Hitið við vægan hita í einni og hálfri matskeið af matarolíu þar til laukurinn verður linur. Látið blönduna kólna og blandið söxuðu dilli saman við. Skiptið blöndunni jafnt yfir flökin þeim megin sem roðið var og rúllið upp þannig að breiðari endi flaksins sé innst í rúllunni en sporðurinn yst. Penslið eldfast fat með matarolíu og raðið rúllunum á fatið, setjið álpappír yfir fatið og bakið í 15-20 mín við 180°C. Skreytið með dilli og berið fram í fatinu.

Aftur upp


Fylltar skarkolarúllur

6 skarkolaflök roðrifin og snyrt

Fars:

350 gr laxaafskurður
½ tsk paprikuduft
1 tsk salt
2 eggjahvítur
3 ½ dl rjómi
½ dl koníak

Soð:

1 l vatn og fiskkraftur
2 dl hvítvín

Sósa:

3 dl þúsundeyjasósa
200 gr sýrður rjómi
1 dl hvítvín

gulrætur, sykurbaunir og ferskt dill til skrauts 

Setjið allt hráefnið nema paprikuna í farsið í matvinnsluvél og vinnið vel saman. Smyrjið farsinu á flökin og stráið saxaðri papriku yfir og rúllið upp, sjóðið rúllurnar í 5-6 mín í fisksoði sem bætt er með hvítvíni, látið rúllurnar kólna. Blandið saman þúsundeyjasósu og sýrðum rjóma og örlitlu hvítvíni. Setjið sósu á hvern disk eða á fat og skerið fiskrúllurnar í sneiðar og setjið sneiðarnar ofan á sósuna, skreytið með soðnum gulrótum sykurbaunum og fersku dilli. Berið fram með góðu brauði og smjöri.

Aftur upp


Innbakaður fiskur í smjördeigi

smjördeig
fiskur ýsa eða lax
blaðlaukur
tómatar
rækjur
egg
oregano
sítrónupipar
hvítlaukssalt

Smjördeigið flatt út, fiskurinn settur á deigið ásamt fyllingunni. Kryddað með hvítlaukssalti, sítrónupipar eða öðru kryddi. Samskeytin pensluð með eggi og deiginu lokað. Þrýstið á samskeytin með gafli. Smjördeigið síðan skreitt að vild og penslað með eggi og kryddað með sítrónupipar, oregano og hvítlaukssalti. Bakað í ofni við 200°C í 10 mín og áfram við 140-150°C í 15-20 mín

Aftur upp


Ofnbakaður fiskur

2 kg ýsuflök
400 gr rjómaostur
5 msk tómatsósa
karrý
dill
sítrónupipar
2 stk paprika
6 stk gulrætur
2 stk laukur (blaðlaukur eða rauðlaukur)
200 gr rifinn ostur

Ýsuflökin eru roðflett og beinhreinsuð, skorin í jafna bita. Grænmetið er skorið í bita og steikt á pönnu, kryddað með karrý og dilli. Tómatsósan sett saman við í lokin og grænmetið sett í eldfast form. Fiskurinn léttsteiktur á báðum hliðum og settur ofan á sósuna, rifna ostinum stráð ofan á. Bakið við 200°C þar til osturinn er orðinn fallega brúnn.

Aftur upp


Ofnbakaður plokkfiskur

100 gr smáttskorinn laukur
100 gr smjör
100 gr hveiti
5 dl mjólk
500 gr soðnar kartöflur
500 gr soðinn fiskur
salt og pipar

Hitið laukinn í smjörinu þar til hann er orðinn glær, stráið hveitinu yfir og hrærið vel saman. Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við og látið sjóða. Verið búin að skera kartöflurnar og fiskinn hæfilega smátt, og setjið út í sósuna og hitið. Kryddið með salti og pipar. Setjið í eldfast mót, lagið hollander sósu eða góða mjólkur sósu, setjið sósuna yfir fiskistöppuna og stráið rifnum osti yfir, brúnið í ofni við meiri yfirhita og berið fram með rúgbrauði og smjöri.

Aftur upp


Orly-steiktur saltfiskur með súrsætri sósu

800 gr útvatnaður saltfiskur, roð og beinhreinsaður
hveiti

Orly-deig:

3 dl hveiti
1 egg
2 msk vatn
½ tsk sykur
½ tsk salt
½ tsk paprikuduft
1 msk rifinn ostur
½ dl bjór
1 stífþeytt eggjahvíta

Súrsæt sósa:

2 dl sykur
2 dl vatn
2 dl vínedik
1 msk tómatkraftur
½ laukur fíntsaxaður
1 gulrót fínsöxuð
1 msk japönsk sojasósa
½ tsk saxaður hvítlaukur
maísenamjöl og vatn

Skerið saltfiskinn í ræmur 1x3 sm. Hrærið saman hveiti, eggi, olíu, vatni, sykri, salti, paprikudufti, rifnum osti og bjór. Hrærið eggjahvítunni varlega saman við deigið.

Setjið í pottt sykur, vatn, vínedik, tómatkraft, lauk, gulrót, hvítlauk og sojasósu. Sjóðið sósuna þar til gulrótin er orðin mjúk. Hrærið þá maísenamjöl út í vatni og jafnið sósuna með því.

Veltið saltfiskræmunum upp úr hveitinu og hristið allt laust hveiti af þeim. Dýfið saltfiskræmunum í orly-deigið og djúpsteikið þær í 170°C heitri olíu.

Aftur upp


Reyksoðin ýsa með blaðlaukssósu 

Fyrir 6 manns

1,5 kg ýsuflök
salt og sykur
harðviðarsag

Hreistraðu ýsuflakið og skerðu í hæfilega bita, stráðu salti og sykri á fiskflökin og láttu léttsaltast í 1 klst. þurrkaðu fiskinn og raðaðu honum á grind sem er sett í pott sem hæfir.

Stráðu sagi í botninn á pottinum og settu fiskgrindina ofaná og settu þétt lok á pottinn, settu yfir gasloga í ca 20 mínútur þar til potturinn er orðinn 80°C heitur að utan, láttu pottinn standa með lokinu þar til mesti reykurinn er búinn þá máttu fyrst taka lokið af og vertu með góða loftræstingu þar sem þú reykir og opnar pottin. Ef fiskstykkin eru þykk þarf eflaust að full elda þau í heitum ofni eftir reykinguna.

Berðu fram soðnar kartöflur og blaðlaukssósu eða brætt smjör með þessum rétti.

Aftur upp


Ristaður karfi með hvítvíns-graslaukssósu

800 gr karfaflök roð og beinlaus
1 stór laukur fíntsaxaður
3-4 msk graslaukur fíntsaxaður
1 ½ dl hvítvín þurrt
3 dl rjómi
3 msk olía
3 msk smjör
salt og pipar

Karfinn er skorinn í hæfilegar sneiðar og ristaður á vel heitri pönnu og kryddaður. Karfinn er tekinn af pönnunni. Smjöri bætt á pönnuna og laukurinn kraumaður smá stund í smjörinu. Þá er víninu og rjómanum og látið sjóða niður smá stund eða þangað til sósan fer að þykkna. Þá er graslauknum bætt út í sósuna og soðið í ½ mín og hún krydduð. Þegar sósan er tilbúin er karfinn látinn hitna í henni og borinn fram. Karfinn er lagður á fat eða disk sósa er sett yfir karfann hann borinn fram með fersku grænmeti og pasta.

Aftur upp


Saltfiskstrimlar í rjómatómatsósu

800 gr útvatnaður saltfiskur, roð og beinhreinsaður
1 ½ bufflaukur fínt saxaður
1 stk gulrót skorin í mjóar ræmur
2 msk söxuð steinselja
4 dl rjómi
2 ½ msk sojasósa
2-3 msk tómatsósa
4 stk hvítlauksgeirar fínt saxaðir
smjör

Skerið saltfiskinn í ræmur 1x3 sm. Bræðið smjörið á pönnu og steikið laukinn í því, þegar hann er orðinn mjúkur er gulrótarræmunum bætt á pönnuna. Bætið því næst saltfiskinum á pönnuna ásamt rjómanum, hvítlauknum og tómatsósunni. Þegar sósan fer að þykkna er steinseljunni og sojasósunni hrært saman við.

Aftur upp


Saltfiskur að hætti Baska

800 gr saltfiskur
5 meðalstórar soðnar og flysjaðar kartöflur
1 eggjarauða
2 dl ólífuolía
2 hvítlauksgeirar pressaðir
salt og pipar

1 egg
1tsk edik
1 tsk olía
3 tsk vatn
hveiti
brauðrasp
smjör
olía

Sósa

2 ½ dl niðursoðnir tómatar
3 rauðar paprikur skornar í litla bita
1 laukur fínt saxaður
3 hvítlauksgeirar fínt saxaðir
1 tsk timijan
½ tsk sykur
salt og pipar
ólífuolía

Látið saltfiskinn liggja í bleyti í sólarhring. Sjóðið saltfiskinn og kælið hann og hreinsið burt roð og bein.Setjið saltfiskinn, kartöflurnar, eggjarauðuna og hvítlaukinn í hrærivélarskál. Hrærið vel saman og bætið ólífuolíunni í dropatali saman við, kryddið með salti og pipar. Mótið 8 buff úr hrærunni. Þeytið saman egg, edik, olíu og vatn.Veltið buffunum fyrst upp úr hveiti, þá eggjahrærunni og síðan raspinu, hitið pönnu og steikið buffin upp úr olíu og smjöri, þar til þau eru fallega steikt, og haldið heitum.

Sósan er næst löguð. Laukur og paprika steikt í olíu, þegar laukurinn fer að verða glær er hvítlauknum bætt saman við. Maukið tómatana með gaffli og setjið saman við og kryddið með sykri, timjan, salti og pipar. Sjóðið sósuna niður í ca. 3 mín. Setjið buffin á fat og hellið sósunni yfir.

Aftur upp


Soðin rauðsprettuflök með grænmeti og súrsætri sósu

400 gr rauðsprettuflök
2 stk gulrætur
1 stk blaðlaukur

Roðflettið rauðsprettuflökin. Skerið grænmetið í fínar ræmur. Rúllið flökunum saman með grænmetisræmum í miðjunni, látið roðhliðina snúa inn og byrjið á breiðari endanum. Gufusjóðið flökin í ofni í 15-20 mín eða í grind í potti með loki. Berið fram með súrsætri sósu og hrísgrjónum.

Aftur upp


Steikt rauðsprettuflök í möndlum

400 gr rauðsprettuflök
½ dl hveiti
1 tsk salt
¼ tsk pipar
2 egg
50-100 gr möndluspænir
olía til steikingar

Blandið saman hveiti og kryddi, léttþeytið eggin. Hitið olíu á pönnu, veltið flökunum upp úr hveitinu og síðan eggjunum og þar eftir úr möndluspónunum. Steikið flökin hæfilega á báðum hliðum í olíunni, takið af pönnunni.

Aftur upp


Steikt rauðsprettuflök með banana og gráðosti í rjómasósu

400 gr rauðsprettuflök
½ dl hveiti
1 tsk salt
¼ tsk pipar
2 egg
2 stk bananar
100 gr gráðostur
2 dl rjómi
½ sítróna
olía til steikingar

Blandið saman hveiti og kryddi, léttþeytið eggin. Hitið olíu á pönnu, veltið flökunum upp úr hveiti og síðan eggi og steikið hæfilega á pönnunni. Takið flökin af pönnunni. Takið banana úr hýðinu og kljúfið eftir endilöngu, léttsteikið þá á pönnunni, skerið gráðostinn í sneiðar. Leggið tvö og tvö flök saman með roðhliðina inn og látið banana og gráðost á milli. Hellið rjómanum á pönnuna og ef eitthvað er eftir af gráðosti notið hann þá líka, látið suðuna koma upp og kryddið með salti og pipar, ef vill með grænmetiskrafti og sítrónusafa. Hellið sósunni yfir flökin.

Aftur upp


Steikt rauðsprettuflök með rækjum, möndlum og rúsínum

400 gr rauðsprettuflök
½ dl hveiti
1 tsk salt
¼ tsk pipar
2 egg
100 gr smjör
50 gr möndluflögur
50-100 gr rúsínur
100 gr rækjur
olía til steikingar

Blandið saman hveiti og kryddi, þeytið eggin. Veltið flökunum upp úr hveiti og síðan eggi. Steikið flökin á báðum hliðum, hafðu hitann mátulegan þannig að flökin brúnist mátulega. Takið flökin af pönnunni, bræðið smjörið á pönnunni og setjið möndlurnar út í smjörið og hitið þær þar til þær eru ljósbrúnar, hrærið í á meðan. Bætið þá rúsínum saman við og síðan rækjum og hellið þessu vel heitu yfir flökin. Berið fram með kartöflum og salati.

Aftur upp


Steikt rauðsprettuflök með rækjum og camerbert

8 stk rauðsprettuflök
1 stk camerbertostur
2 dl fisksoð
2-3 dl rjómi
100 gr rækjur
salt og pipar
grænmetiskrydd
sítrónusafi

Steikið flökin á pönnu annaðhvort upp úr hveiti eða hveiti og eggi. Skerið camerbertostinn í sneiðar, leggið flökin saman tvö og tvö og setjið eina sneið af camerbertosti á milli, setjið flökin á fat. Hellið rjómanum og fiskisoðinu á pönnuna sem fiskurinn var steiktur á og hitið ásamt restinni af camerbertostinum, kryddið með salti, pipar, grænmetiskryddi og sítrónusafa. Hitið rækjurnar í sósunni og hellið henni yfir fiskinn. Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum og salati.

Aftur upp


Steikt rauðsprettuflök með rækjum, eplum og vínberjum

400 gr rauðsprettuflök
½ dl hveiti
1 tsk salt
¼ tsk pipar
2 egg
1 epli
100 gr vínber
100 gr rækjur
2 dl rjómi
½ sítróna
olía til steikingar

Blandið saman hveiti og kryddi. Léttþeytið eggin. Flysjið eplin og kjarnhreinsið skerið eplin í báta..Kljúfið vínberin og takið steinana úr. Hitið örlitla olíu á pönnu veltið flökunum fyrst upp úr hveitinu og síðan eggjunum, steikið hæfilega báðum megin og takið af pönnunni. Hellið rjómanum á pönnuna ásamt safanum úr sítrónunni, bærið eplabátunum saman við og látið suðuna koma upp, þá er vinberjunum og rækjunum bætt saman við og suðan látin koma upp, sósunni er hellt yfir flökin og borið fram.

Aftur upp


Steinbítur með spergilkáli

600 gr steinbítur roð og beinlaus
2 msk matarolía
salt og pipar
400 gr niðursoðnir tómatar
½ blaðlaukur
1 tsk basilkum
½ tsk rósmarín
200 gr frosið spergilkál
1 msk brauðmylsna
2 tsk sítrónusafi
2 msk pameseanostur
eða annar rifinn ostur

Skerið steinbítsflökin í bita og kryddið. Hitið pönnu og steikið fiskinn upp úr olíu, takið fiskinn af pönnunni og setjið í eldfast fat. Hellið tómötunum ásamt vökvanum á pönnuna og merjið þá vel. Skerið blaðlauk í þunnar sneiðar og bætið honum í sósuna ásamt basilkum og rósmarín. Látið krauma í 5 mín og saltið eftir smekk. Skerið spergilkálið í bita og blandið því saman við sósuna. Hellið sósunni yfir fiskinn, dreifið brauðmylsnunni yfir, dreypið sítrónusafanum ofaná stráið ostinum að lokum yfir. Bakið loklaust í 10-15 mín við 180°C.

Aftur upp


Tindabikkja í piparsósu

4 tindabikkjubörð roðflett
nýmalaður svartur pipar
salt
1 msk smjör
1 ½ dl þurrt hvítvín
1 tsk græn piparkorn
1 tsk rósapipar
1 tsk dijonsinnep
1 tsk tómatþykkni
1 ½ dl rjómi
klípa af hrásykri

Skötubörðin krydduð með salti og pipar. Panna smurð með smjöri og skötunni raðað á hana. Hvítvíni hellt yfir piparkornum dreift á milli, lok sett á pönnuna og hitað. Látið síðan malla við hægan hita í 8-10 mín. Þá er skatan tekin af pönnunni og sett á heitt fat og haldið heitri. Sinnepi, tómatþykkni, rjóma og sykri bætt á pönnuna, hitinn hækkaður og soðið dálítið niður. Smakkið sósuna og kryddið ef þarf.

Aftur upp


Djúpsteiktar rækjur "Orly" með súrsætri hvítlaukssósu og hrísgrjónum

Rækjur fyrir 4 pers.
Rækjur= 400 gr. (þyðnar og safinn látinn renna af þeim)

"Orly"-deig. Fyrir 4 pers.

Pilsner = 3 dl.
Strásykur = 2 msk.
Salt = 1 tsk.
Olía = 1 msk.
Eggjarauða = 1 stk.
Hveiti = ertir þörfum. (þar til deigið er orðið kremað)
Eggjhvíta = 1 stk. (stífþeytt)

Öllu blandað saman með pískara, nema eggjahvítunni og hveitinu. Hveitinu hrært út í með pískara, látið standa í eina klukkustund. Eggjahvítan er stífþeytt og snúið í deigið með sleif rétt fyrir notkun eða steikingu. Deigið á að vera álíka þykkt og vöffludeig. Rækjunum er difið í deigið og þær steiktar í djúpri feiti við ca. 170 °C. þar til þær eru gullinbrúnar. Rækjurnar eru bornar fram með súrsætri hvítlaukssósu og hrísgrjónum.

Aftur upp


Ristaður karfi með hvítvíns og vermút- graslauksósu, pasta og nýju grænmeti.

Fyrir: 2 pers.

Innihald og undirbúningur.

Karfaflak = 300 gr. (beinlaus og roðlaus, í ca. 75 gr. bitum)
Gulur laukur = 2 msk. (fíntsaxaður)
Graslaukur = 1 msk. (fíntsaxaður)
Græni hluti vorlauks = 1 msk. (í sneiðum)
Hvítvín = 1/2 dl. (þurrt)
Vermút = 1/2 dl. (þurr, má sleppa og hafa hvítvín í staðin)
Rjómi = 2 dl.
Olía = 1 msk.
Smjör = 1 msk.
Salt og pipar.

Karfinn er skorinn í hæfilega þykkar sneiðar og ristaður í olíu á báðum hliðum á vel heitri pönnu, kryddaður með salti og pipar. Karfinn er fjarlægður af pönnunni. Smjöri er bætt á pönnuna og guli laukurinn og vorlaukurinn settur út í, látið krauma í smá stund, ekki brúnast. Víni og rjóma bætt út í og látið sjóða smávegis niður, 1-2 mín. Eða þar til sósan er farin að þykkna. Sósan smökkuð til með salti og pipar. Karfinn er síðan settur aftur út á pönnuna ásamt graslauknum og látinn sjóða/hitna mjög rólega í sósunni í smá stund. Karfinn er lagður upp á disk og borinn fram með nýju grænmeti og soðnu pasta. Smávegis af sósunni er sett yfir karfann og restinn í sett í sósukönnu. Söxuðum graslauk, ef til er, stráð yfir laxinn til skreytingar.

Rétturinn er lagður upp á tvo diska á snyrtilegan hátt ásamt meðlæti.

Aftur upp


Snöggmarineraður lax í sítrónu, vermút og basil með piparrótar-rjómasósu og hrærðu eggi.

Innihald fyrir ca. 10 pers.

Laxaflak = 1 kg. (beinhreinsað og skorið í þunnar sneiðar)
Hvítur pipar = 2 tsk. (grófmalaður)
Salt = 4 msk.
Sykur = 3-4 msk.
Sítróna = 1 stk. (safinn)
Þurr vermút = 0,5 dl.
Basilika = 2 msk. (fersk og fínsöxuð)

Blandaðu saman pipar, salti og sykri. Stráðu hluta (ca. helmingnum) af sykur og salt-blöndunni í gastróbakka og leggðu þunnar laxasneiðarnar yfir blöduna. Stráðu basilikunni yfir laxasneiðarnar, stráðu restinni af sykur og salt-blöndunni yfir og dassaðu (dreyptu) með þurrum vermút og sítrónusafa. Láttu standa við stofuhita í ca. 30 mín. eða eftir þörfum. Fiskurinn er borinn fram um leið og hann er tilbúinn.

Sósa.

Sýrður rjómi = 1 lítil dós.
Piparrót = 1 msk. (rifin)
Sítróna = 1/2 stk. (safinn)

Öllu hrært vel saman.

Eggjahræra.

Egg = 10 stk.
Rjómi = 2 dl.
Smjör = 2 msk.
Salt og pipar.

(Lagað rétt fyrir serveringu). Eggjunum, rjómanum og salti og pipar blandað saman og þeytt vel. Smjörið sett í heitan pott og brætt. Eggjablöndunni hellt út í og hrært í á meðan eggjablandan hitnar (botninn skafinn vel á meðan). Eggjahræran á að vera sósukend, ekki harðelduð.

Meðlæti: fersk salatblanda eða tómatar, ristað brauð og smjör.

Aftur upp


Ananassíld

1 kg kryddsíld
3 dl ferskur ananassafi
söxuð sítrónulauf eftir smekk
2 dl sykur
500 gr sýrður rjómi
1 dl vatn
500 gr ananas í teningum
hvítvínsedik eftir smekk

Blandið saman ananassafa,sykri, vatni hvítvínsediki og söxuðu sítrónulaufi saman og sjóðið. Kælið löginn. Skerið síldina í bita og látið liggja í leginum í minnst 2 kls. Blandið saman sýrða rjómanum, anansinum og sykri, berið þetta fram með síldinni eins og dressingu.

Aftur upp


Apotekara síld

4-5 flök kryddsíld
1 græn paprika
1 rautt epli
1 msk matarolía
1 msk tómatsósa

Skrælið eplið kjarnhreinsið og skerið í litla bita, skerið paprikuna í samsvarandi bita. Blandið saman olíu og tómatsósu, setjið út á eplin og paprikuna. Skerið síldina í bita og blandið öllu saman, látið standa í nokkrar kls. Áður en borið er fram.

Aftur upp


Appelsínumarineruð síld

1 kg síld
100 gr laukur
½ dl hreinn appelsínusafi
½ dl vatn
7 ½ dl edik
500 gr sykur
2 tsk sítrónusafi
2 tsk hunang
½ tsk hvítur pipar
2 stk lárviðarlauf
5 gr ferskt oregano (saxað)
5 gr fersk minta (söxuð)
rifinn börkur af einni appelsínu

Laukurinn er skorinn í þunnar sneiðar og soðinn í appelsínusafanum og vatninu ásamt pipar og lárviðarlaufi í 20 mín. Þá er edikinu, sykri og hunangi bætt saman við og suðan látin koma upp aftur. Oregano, mintu, sítrónusafa og appelsínuberki er bætt út í löginn, potturinn tekinn af hellunni og lögurinn kældur. Þá er lögurinn síaður í gegnum dúk. Köldum leginum hellt yfir síldarflökin og þau látin marinerast í minnst 1 sólarhring.

Aftur upp