upp11.11.2004

Hérna ætla ég að troða slatta af uppskriftum sem ég hef viðað að mér úr ýmsum áttum, sumar hef ég prófað og aðrar bíða betri tíma. Á þessari síðu eru kjúklingauppskriftir af öllum toga.

Meðhöndlun á kjúklingi.

Þegar kjúklingur er meðhöndlaður er rétt að hafa í huga að gæta þarf ítrasta hreinlætis. Best er að meðhöndla kjúklinginn í vaski þ.e. taka hann úr umbúðunum, hreinsa og hluta í sundur ef við á. Takið umbúðirnar og setið í sorpílát og passið að ekki leki blóðvatn úr þeim. Ef um mengun í kjúklingi er að ræða hverfur hún við steikingu. Ef mengun (sýking) kemur upp má yfirleitt rekja hana til meðhöndlunar vörunnar áður en að matreiðslu kemur, er því mjög mikilvægt að gæta hreinlætis eins og kostur er, hreinsa vask og önnur áhöld mjög vel með sótthreinsandi efnum. Með því má komast fyrir krossmengun þ.e. óbein mengun.

Gerum rétt

•  Blóðvökvi á ekki að komast í aðra matvöru eða áhöld
•  Látið frosið fuglakjöt þiðna í umbúðunum
•  Gætið að hreinlæti
•  Kjúklingakjöt á að vera vel steikt eða soðið

Asískur kjúklingaréttur Fyllt kjúklingalæri Fylltar kjúklingabringur

Kjúklingabringur í appelsínusósu Kjúklinga-Saltimbocca Kjúklingasmásteik Chasseur

Kjúklingasmásteik Marengo Kjúklingur í suður-frönskum stíl Fylling í kjúkling

Úrbeinaður fylltur kjúklingur Austurlenskur kjúklingur af grillinu  Fljótlegur Laugardags kjúklingur

Kjúklingur í fínu formi Kjúklingur frá Kasmír Kjúklingur í appelsínusósu

Bombay kjúklingur Karrý kjúklingur Kjúklingaréttur

Kjúklingaveisla Barbeque kjúklingur  

 


Asískur kjúklingaréttur

Fyrir 4

800 gr kjúklingsbringur
½ dl matarolía
3-4 msk hunang
½ dl soyasósa
1 dl sherrý (þurrt)
1 msk engiferrót rifin
salt og pipar

Kjúklingabringurnar eru skornar í 2-3 bita hver. Panna hituð og olía sett á hana kjúklingabitarnir steiktir í olíunni, hún þarf að vera vel heit. Kryddið örlítið með salti og pipar. Hunanginu bætt út á pönnuna og látið krauma smá stund, ca 3-4 mín eða þar til að hunangið hefur náð að brúnast aðeins. Soyasósu, sherrý og engiferrót bætt saman við, lok sett á pönnuna og látið sjóða rólega í ca 10-15 mín. Eða þar til kjúklingurinn er gegnum soðinn. (rauði liturinn þarf að vera horfinn). Ef sósan er ekki orðin hæfilega þykk er kjúklingurinn tekinn af pönnunni og sósan soðin niður, varist að sjóða hana of mikið niður þá verður hún of bragðsterk. Borið fram með soðnum hrísgrjónum, fersku salati eða léttsoðnu grænmeti og nýbökuðu brauði.

Aftur upp


Fyllt kjúklingalæri

4 úrbeinuð kjúklingalæri
4 sneiðar beikon
olía til steikingar

Fylling:

50 gr ljóst brauðrasp
75 gr rifinn ostur
örlítið múskat
1 msk söxuð steinselja
1 stk hvítlauksrif saxað
2 egg
salt og pipar

Þeytið eggin vel og bætið öllu sem á að fara í fyllinguna og blandið vel saman, jafnið fyllingunni í miðju hvers læris. Vefjið lærunum saman og vefjið síðan beikonsneiðunum utan um hvert læri og bindið saman með garni. Brúnið lærin á öllum hliðum á pönnu og setjið í ofnskúffu og steikið í ofni í 15 mín við 200°C. Berið fram með hrísgrjónum eða pasta, grænmeti og brauði.

Aftur upp


Fylltar kjúklingabringur

6 kjúklingabringur
150 gr kalt smjör
3 egg
brauðraspur
15 gr kóríander
9 gr hvítlaukur (ca.3 rif)
olía til djúpsteikingar

Skinnið hreinsað af kjúklingabringunum, skornir vasar í þær. Blandið saman smjöri, kóríander og hvítlauk og fyllið í vasana. Eggin hrærð saman og brauðraspurinn settur á bakka. Veltið bringunum upp úr eggjunum og raspinu, djúpsteikið síðan bringurnar í 180°C heitri olíu. Setjið síðan bringurnar í 180°C heitan ofn og steikið þar til þær eru tilbúnar eða kjarnhiti hefur náð 75°C.

Aftur upp


Kjúklingabringur í appelsínusósu

4-6 kjúklingabringur
smjör
safi úr 1 appelsínu (ca. 1 ½ dl)
½ negull mulinn
½ allrahanda
1 msk soyjasósa
börkur af 1 appelsínu skorinn í ræmur forsoðinn
salt og pipar

Hitið pönnu með smjöri og steikið bringurnar á báðum hliðum í ca. 7 mín hvora hlið, takið af pönnunni og haldið heitum. Hellið safanum á pönnuna og látið sjóða, gætið þess að ná upp öllum kjötsafanum af pönnunni. Kryddið með salti og pipar ásamt soyjasósu. Hellið yfir kjötið og skreytið með forsoðnum ræmum af appelsínuberki.

Aftur upp


Kjúklinga-Saltimbocca

4 kjúklingabringur
100 gr ostur
100 gr skinka
12 blöð salvía
50 gr smjör
salt og pipar

Sneiðið hverja kjúklingabringu langs í 4 sneiðar, fletjið hverja sneið þunnt út (hafið filmu undir og yfir). Leggið ostsneið á hverja bringu, setjið salvíublað ofan á og þekið með skinku. Þetta er fest saman með tannstöngli og snöggsteikt á pönnu, steikið skinkuhliðina fyrst í tæpa 1 mín síðan kjúklingahliðina niður þar til sést að osturinn er byrjaður að bráðna og kjúklingurinn er steiktur, það tekur um 2-3 mín, takið kjötið af pönnunni og setjið á fat. Hellið hvítvíni eða góðu soði á pönnuna og sjóðið upp til að ná öllu steikingarbragðinu upp. Hellið yfir kjötið og berið fram með hrísgrjónum eða pasta og grænmeti.

Aftur upp


Kjúklingasmásteik Chasseur

2 litlir kjúklingar
smjör eða olía til steikingar
250 gr sveppir skornir í sneiðar
1 laukur fínsaxaður
1 dl hvítvín eða mysa
½ dl dökk sósa
2 msk tómatmauk
1 tsk estragon
1 msk söxuð steinselja

Hlutið kjúklingana í 8 parta hvern og brúnið í smjöri eða olíu í potti eða á pönnu, kryddið með salti og pipar. Setjið í ofnskúffu og steikið í ofni við 180°C í 30-40 mín eða þar til kjúklingurinn er meyr. Létt steikið laukinn og sveppina bætið hvítvini, sósu og tómatmauki saman við, bragðbætið með estragoni og hellið yfir kjúklingabitana. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram.

Aftur upp


Kjúklingasmásteik Marengo

2 litlir kjúklingar
matarolía
1 stk laukur saxaður
hveiti örlítið
1 dl hvítvín (má sleppa)
1 hvítlauksgeiri
1 dl tómatpurre
3 dl kjúklingasoð
200 gr litlir sveppir
smjörklípa
steinselja grófsöxuð
4 egg
4 sneiðar franskbrauð
salt og pipar

Hlutið kjúklingana í 8 parta hvern og brúnið í olíu á pönnu, kryddið með salti og pipar. Stráið ögn af hveiti á kjúklingabitana á pönnunni og látið þá bakast örlitla stund. Setjið smjör í pott og létt steikið laukinn og látið krauma smá stund með hvítvíninu, setjið í ofnskúffu eða eldfast fat. Bætið kjúklingabitunum, hvítlauk, tómatpurre og kjötsoði saman við.Bakið undir loki eða álpappír í 180°C heitum ofni í 30-40 mín eða þar til kjötið er meyrt. Takið kjúklingabitana upp úr og sigtið sósuna, bragðbætið eftir smekk. Smjörsteikið sveppina og setjið yfir kjörið ásamt sósunni og berið fram.

Aftur upp


Kjúklingur í suður-frönskum stíl

Fyrir 10 pers.

Kjúklingur = ca. 3-4 stk. (höggnir í 8-9 bita hver)
Laukur = 3 stk. (skorinn í 1/4 sneiðar, frekar grófar)
Paprika = 3 stk. (skornar í hálfar sneiðar)
Ananas = 1 kg.dós. (í bitum, ásamt safanum sem notaður er í sósuna)
Ólífur = 200 gr. (ásamt safanum sem notaður er í sósuna)
Tómatar = 1 kg. dós. (gróft skornir eða kreistir út í, ásamt safanum sem notaður er í sósuna)
Engiferrót = 1/2-1 stk. (rifinn)
Hvítlaukur = 5 rif. (maukaður)
Strásykur = 1 dl.
Eplaedik = 1 dl.
Rjómi = 1/2 lítir.
Vatn = 2-3 dl.
Kjúklingakraftur = x (eftir smekk)
Grænmetiskraftur = x (eftir smekk)

Kjúklingabitarnir steiktir á pönnu og kryddaðir með salti og pipar, síðan kláraðir í ofni á 110°C. að kjarnhita 72°C. Laukur og paprika brúnað á pönnu og sett í pott ásamt ananas, ólífum, tómat, engifer, hvítlauk, sykri, ediki, rjóma og vatni. Suðan látin koma upp og soðið í nokkrar mínútur. Sósan er bökuð upp með smjörbollu, suðunni hleypt upp og smakkað til með kjúklinga og grænmetiskrafti, salti og pipar. Sósuna þarf mögulega að laga til eftir smekk með t.d. sykri, ediki, krafti og rjóma.

Meðlæti

Hrísgrjón, ferskt salat og nýbakað brauð.

Aftur upp


Fylling í kjúkling

Fylling

5 sneiðar Bacon
½ stk, Púrra
1 stór Gulrót
6 lauf Hvítlaukur
1 stilkur Sellerí
6 stk Sveppir
½ búnt Koriander
1 stk Rauðlaukur
2 dl Rjómi
50 gr Smjör
5 sneiðar Brauð
½ tsk Pipar
1 tsk Salt
1 dl Hveiti

Fylling þessi hentar vel í úrbeinaðan kjúkling, ef fyllingin er notuð í heilan kjúkling má bæta við brauðið og sleppa hveitinu. Fyllingin gæti hentað í KALKÚN en þá má nota meira af vökva eða minna af brauði þar sem steikingartími á KALKÚN er mun lengri.

Allt efnið er sett í mixara en rjóminn þó ekki fyrr en síðast.

Þessi uppskrift er nokkuð stór og mætti minnka hana.

Aftur upp


Úrbeinaður fylltur kjúklingur

1 kjúklingur
Fars
150 gr hakkað svínakjöt
30 gr skorpulaust Fransbrauð skorið í teninga
1 egg
½ dl rjómi
½ tsk saxað rósmarón
½ tsk söxuð salvía

Hrærið vel saman Fransbrauði, kryddi, eggjum og rjóma í matvinnsluvél. Blandið svínahakkinu saman við og látið standa í kæli í 1 kls.

Fylling

50 gr kjúklingalifur
25 gr smjör
1 msk koníak
½ msk pistasíur
25 gr bananar
25 gr mangó
salt og pipar

Lifrin skorin í 1 cm bita og steikt í smjöri á pönnu og látin kólna í koníakinu. Þegar lifrin er orðin köld er ávöxtum og kryddi blandað saman við og að lokum öllu hrært saman við farsið.

Kjúklingurinn úrbeinaður frá bringu og öll bein hreinsuð úr honum. Kjúklingurinn flattur út á bretti og fyllingunni jafnað á hann, öllu rúllað upp, kjúklingurinn saumaður saman, penslaður með smjöri. Hann steiktur í ofni við 150°C þar til kjarnhiti er 75°C í miðju. Kjúklingurinn látinn jafna sig í ca 30 mín áður en hann er skorinn niður. Borinn fram með soðsósu með viðeigandi kryddi.

Aftur upp


Austurlenskur kjúklingur af grillinu 

Það er tilvalið að grilla þennan rétt í sumarsólinni. Kryddlögurinn er einstaklega góður og gefur kjúklingabringunum og grænmetinu mikið og gott bragð. Í stað shiitake sveppanna má nota venjulega, hvíta sveppi.

Fyrir 4

480 g frosnar, bein- og skinnlausar kjúklingabringur
120 g shiitake sveppir eða venjulegir sveppir
2 stk litlir kúrbítar (zucchini), sneiddir á ská
2 stk rauðar paprikur, skornar í ræmur
1 stk Uncle Ben´s Country Inn Rice Pilaf hrísgrjón í pakka
½ dl teriyaki sósa
½ dl appelsínusafi
½ tsk rauðar piparflögur, muldar

Kryddlögur

Setjið appelsínusafa, teriyaki sósu og muldar piparflögur í litla skál. Takið frá 3 msk af kryddleginum (miðað við f. 4) og penslið kjúklingabringurnar, paprikur, kúrbít og sveppi með afganginum af kryddleginum.

Matreiðsla

Látið volgt vatn renna á kjúklingabringurnar í 1-2 mín. Grillið kjúklingabringurnar í 20-25 mín. og snúið þeim einu sinni og penslið af og til með kryddleginum. Grillið paprikur, kúrbít og sveppi í 5 mínútur, snúið því einu sinni og penslið af og til með kryddleginum. Sjóðið á meðan hrísgrjón skv. leiðbeiningum á pakka og hrærið kryddleginum sem tekinn var frá, út í.

Aftur upp


Fljótlegur Laugardags kjúklingur

Fyrir 4

1 grillaður kjúklingur
1 lítil dós (110g) sveppir
1 hvítlauksrif, pressað
salt og pipar
2 dl (1 dós) sýrður rjómi
2 dl matreiðslurjómi
50 g gráðostur
salt, hvítur pipar og paprika eftir smekk
1 ½ dl rifinn ostur

Rífið kjúklinginn niður í smurt, eldfast mót. Sigtið soðið frá sveppunum og snöggsteikið þá á pönnu. Kryddið sveppina með hvítlauknum, salti og pipar og dreifið yfir kjúklinginn.
Hrærið sýrða rjómanum, matreiðslurjómanum og stöppuðum gráðostinum saman, bragðbætið með salt, pipar og papriku og hellið þessu yfir kjúklingaréttinn. Stráið rifna ostinum að lokum yfir og bakið í 20 mínútur við 200 gráður. Berið fram með hrísgrjónum eða brauði.

Aftur upp


Kjúklingur í fínu formi

Fyrir 4-6

4-6 gulrætur, skornar í bita
½ hvítkálshöfuð, rifið
olía
1 tsk. sykur
2-3 hvítlauksrif, pressuð
100 g ferskir sveppir
1 lítill kúrbítur
1 tsk. sítrónupipar
2-4 msk. sojasósa
1 dl matreiðslurjómi eða kaffirjómi
1 stór kjúklingur, skorinn í átta bita
1 msk. arabískt kjúklingakrydd frá Pottagöldrum
1 tsk. salt

Skerið gulræturnar í bita og rífið hvítkálið á rifjárni. Hitið olíuna á djúpri pönnu og léttsteikið gulræturnar í nokkrar mínútur. Bætið hvítkálinu á pönnuna og látið krauma í nokkrar mínútur. Stráið sykrinum yfir og hrærið á meðan gulræturnar og hvítkálið brúanst örlítið. Bætið hvítlauknum á pönnuna, skerið sveppina og kúrbítinn í sneiðar og bætið út í. Kryddið með sítrónupipar og sojasósu og hellið rjómanum yfir grænmetið.
Setjið grænmetisblönduna í smurt, eldfast form. Kryddið kjúklingabitana vel með kryddinu og snöggsteikið bitana í olíu á pönnu. Leggið kjúklingabitna yfir grænmetið og setjið lok eða álfilmu yfir formið. Bakið við 200 gráður í 40-50 mínútur. Berið fram með hrísgjrónum.

Aftur upp


Kjúklingur frá Kasmír

Fyrir: 3-4 pers.

Kjúklingur: 1 stk. (meðalstór, skorinn í 8 bita)
Olía til steikingar
Mulið kúmen: 1 tsk.
Mulið kóríander: 1 tsk.
Cayenne pipar: 1/4 tsk.
Salt, eftir smekk.
Laukur: 2 stk. (skornir í sneiðar)
Hrein jógúrt: 1 dós.
Vatn: 1/2 dl.
Ferskjur úr dós: 400 gr. (þunnt skornar)
Garam Masala: 1 msk.

Steikið kjúklingabitana á vel heitri pönnu og raðið þeim í eldfast ílát. Steikið síðan kryddið og laukinn á pönnunni við hægan hita í ca. 2 mín. Hellið jógúrtinu og vatninu saman við og látið suðuna koma upp. Hellið blöndunni yfir kjúklingabitana og bakið í ofni við 170°C. í 20 mín. Takið kjúklinginn út úr ofninum.
Hellið öllum safa af ferskjunum og skerið í sneiðar. Raðið ferskjunum á kjúklingin (geymið nokkrar til skreytinar). Bakið áfram í aðrar 20 mínútur.
Takið kjúklinginn út úr ofninum og hellið soðinu af þeim í pott og hrærið Garam Masala saman við. Látið suðuna koma upp og hrærið í á meðan. Hellið sósunni yfir kjúklinginn og skreytið með ferskjum.

Aftur upp


Kjúklingur í appelsínusósu

1 bolli hveiti
2 tsk. salt
1/2 tsk. grófmalaður svartur pipar
1,5 kg. kjúklingur (best er að nota 4 kjúklingabringur)
3 msk. olía til steikingar
1/2 l. appelsínusafi
2 msk. púðursykur
1 msk. edik
1 msk. múskat
1/2 tsk. basil
2 hvítlauksrif, fínsöxuð eða pressuð
3 appelsínur, flysjaðar, sneiddar og himnuflettar

Setjið hveiti, salt og pipar í plastpoka. Skerið kjúklingabringurnar niður og hendið í pokann, hristið. Hitið olíuna á pönnunni. Hristið mesta hveitið af kjúklingabitunum og steikið á pönnunni. Sett til hliðar. Hellið appelsínusafanum á pönnuna. Setjið allt hráefnið saman við nema appelsínubútana. Látið malla í 30 mín. Fleygið appelsínubútunum útí og látið malla í 5 mín. í viðbót. Bætið við appelsínusafa eftir þörfum. Hveitið á kjúllanum sér um að þykkja sósuna. Reiðið fram með hrísgrjónum og salati.

Aftur upp


Bombay kjúklingur

Átta stykki kjúklingur
hveiti
salt
pippar
1 ½ dl sherrý
½ dl púðursykur
8 matsk. Soyasósa
2 matsk. Olia
1 tesk. Sinnepsduft
3-4 sultaðir engifer
lítil dós ananas
125 gr. Sveppir
sesamfræ
ristaðar möndlur

Þurrkið kjúklingin og veltið upp úr hveitinu (blandað með salti og pippar)
Leggið stykkin í smurt eldfast form.
Hrærið sherry, sykri, soyasósu, olíu og sinnepsdufti saman.
Skerið sultaða engiferinn í minni bita, ananas og sveppir settir yfir kjúklingabitana.
Hellið síðan sherry blöndunni yfir kjúklinginn
Bakkað í ofni við 200° í einn klukkutíma.
Berist fram með grjónum

Aftur upp


Karrý kjúklingur

1 kjúklingur
1peli rjómi

Kryddlögur:

3dl Tómatsósa
3tsk karrý
3tsk pipar
1 tsk salt

Kjúklingurinn er skorinn í bita.
velt upp úr kryddleginum og settur í eldfast mót.
sett í 200°C heitan ofn og eldað í 30 mín, þá er rjómanum hellt yfir og eldað í
aðrar 30 mín.

Kjúklingurinn er borinn fram með hrísgrjónum, og rjóminn sem var hellt yfir er
sósa sem er sett á hrísgrjóninn.

Aftur upp


Kjúklingaréttur

1 Kjúklingur
1 dós campells sveppasúpa
Majones
Karrý
Brokkoli
Sager onion (rasp)
Ost

Brokkoli soðið létt, sett í botnin á fatinu. Kjúklingurinn soðin eða grillaður, rifin niður og settur ofan á.
Sveppasúpa, majones, karrý hrært saman og hellt yfir . Ost og rasp sett ofan á.
Sett í ofn og hitað þangað til osturinn er orðin ljósbrúnn.

Aftur upp


Kjúklingaveisla

2 kjúklingar
olífuolia, salt, pipar
2 laukar
1 græn paprika
400 gr sveppir
3 dl. rjómi
4 msk. tómatsósa
2 dl. rifinn ostur

Kjúklingarnir hlutaðir í sundur í bita og brúnaðir í olíu á pönnu. Settir í eldfast mót og
salti og pipar stráð yfir. Laukar og paprika skorið í bita og sveppir í sneiðar og léttsteikt.
Látið ofan á kjúklingabitana. Síðan er rjómanum og tómatsósunni blandað saman og hellt yfir.
Bakað í ofni við góðan hita í ca. ½ klst. Þá er rifnum osti stráð yfir og bakað í 10 mín.
Borið fram með hrísgrjónum og e.t.v. partýbrauði.

Aftur upp


Barbeque kjúklingur

Einn kjúklingur

Sósan:

2 dl barbecue sósa
1 dl soja sósa
1 dl apríkósu sulta (eða marmelaði)
100 gr. púðursykur
50 gr. smjör

Sósuefni allt sett í pott og suðan látin koma upp. Kjúklingurinn svo bitaður og bitunum síðan velt upp úr sósunni. Bitarnir eru svo lagðir í eldfast mót. Hellið afgangnum af sósunni yfir kjúklingabitana.

Bakið í ofni við 200 C í 60-70 mín.

Aftur upp