upp11.11.2004

Hérna ætla ég að troða slatta af uppskriftum sem ég hef viðað að mér úr ýmsum áttum, sumar hef ég prófað og aðrar bíða betri tíma. Á þessari síðu eru uppskriftir að bakkelsi af öllum toga.

Bökunarráðleggingar

Möndlukaka Marens botnar Piparmyntu ostakaka

Ostakaka Baileys súkkulağikaka  
 

 


Möndlukaka

150 g smjörlíki
300 g púðursykur
2 egg
180 g hveiti
2 dl hakkaðar möndlur
½ tsk. Lyftiduft
2 tsk. Vanillusykur

Smjöri og púðursykri blandað saman, hitað upp og soðið í 5 mínútur við vægan hita. Blandan látin kólna og svo eggjum (bæði hvítu og rauðu) blandað saman við og hrært vel, rest af hráefni sett saman við og hrært.

Sett í smurða bökunarplötu (20x30 cm), bakað í 30-45 mínútur við 150-175°. Athugið að möndlurnar bráðna svo deigið virðist blautt allan tímann, borgar sig að hafa það í huga þegar taka á út úr ofninum.

Aftur upp


Marens botnar

4 eggjahvítur
200 g flórsykur
1 tsk. Lyftiduft
100 g döðlur
100 g súkkulaði
100 g salthnetur

Eggjahvítum og flórsykri blandað saman, þá rest út í. Bakað við 150° í 60 mínútur. Látið kólna áður en sett er á. Mjög gott að skreyta með karmellusúkkulaði svosem Mars. Má sleppa döðlum, súkkulaði og salthnetum og þá eru komnir ósköp venjulegir marens botnar.

Aftur upp


Piparmyntu ostakaka

200 gr Homblest hafrakex með súkkulaði
3 msk smjör
400 gr rjómaostur
½ bolli sykur
2 ½ dl rjómi þeyttur
2 stk pipp piparmyntusúkkulaði saxað
nokkur stk bismark-brjóstsykur

Myljið saman kex og smjör og bakið í 10 mín við 175°C.
Hrærið saman rjómaosti og sykri, blandið þeytta rjómanum saman við og í lokin súkkulaðinu. Setjið ofan á kökuskelina stráið muldum brjóstsykrinum yfir, látið standa í kæli í 6-8 kls áður en borið er fram.

Aftur upp


Ostakaka

Botn:
50 gr Anada Granola (morgunkorns-blanda)
30 gr heslihnetukjarnar saxaðir
50 gr hafrakex mulið
75 gr smjör brætt
30 gr sykur

Blandið öllu saman og hyljið botninn á meðalstóru springformi og látið kólna í kæli.

Fylling:
200 gr rjómaostur (hreinn)
1 ½ dl jógúrt (hrein)
2 egg
75 gr sykur

safi og rifinn börkur af einni appelsínu

7 blöð matarlím
4 msk heitt vatn
½ bolli rúsínur
1 ½ dl rjómi þeyttur

Kíwí og vínber til skrauts

Blandið saman rjómaosti, jógúrt, eggjarauðum, sykri og rifnum appelsínuberki. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 5 mín, kreistið það vel og leysið upp í heitu vatni. Kælið það með appelsínusafanum og jafnið saman við ostablönduna ásamt rúsínunum, blandið rjómanum og þeyttum eggjahvítunum að lokum saman við og hellið yfir mylsnubotninn. Kælið í 6 kls. Skreytið með ávöxtum eftir smekk. Þessi kaka batnar við geymslu.

Aftur upp


Baileys súkkulaðikaka

Kakan
3 stk egg
5 dl sykur
7 dl hveiti
1 tsk matarsódi
2 tsk lyftiduft
200 g smjörlíki
2 dl mjólk
2 dl Baileys Irish cream
2 tsk vanilludropar
1,5 dl Cadbury's kakó

Kremið
150 g smjörlíki
1 b Cadbury's kakó
3 b flórsykur
1/2 b heit mjólk
2 tsk vanilludropar eða kaffi
Baileys bætt útí eftir smekk.

Kakan:
Þeytið saman eggin og sykurinn svo það verði ljóst og létt. Setjið öll blautefni útí, svo brætt smjörlíkið og svo þurrefnin. Bakið í þremur kökuformum við 180 gráður í u.þ.b. 20 mínútur.
Sniðugt er að bræða súkkulaði (50-100 gr) og láta það leka á smjörpappír eins og maður væri að krassa með því, láta það harðna og setja svo ofan á kökuna til skreytingar.
Kremið:
Bræðið smjörlíkið í potti og bætið kakóinu útí, síðan volgu mjólkinni, flórsykrinum, dropunum og svo Bailey's eftir smekk. Kremið þykknar þegar það kólnar.

Aftur upp