Bloggið:

01:02 þann 23. júlí 2007 - hvalur
Loksins eitthvað af viti framkvæmt...
     Hananú sagði hænan, við skelltum okkur loksins úr bænum ég og frúin. Fórum á föstudagskvöldið á ættarmót á Skagaströnd, afkomendur langömmu og langafa en þau áttu einmitt 13 börn saman, hvorki meira né minna. Þetta voru hátt í 200 manns þarna samankomnir, það var söngur gleði og gaman, get ekki sagt að ég þekki nema örlítið brot af þessu liði en ég hafði gaman af og lærði loks nöfnin á systkinum ömmu svona ca. Ætla að reyna að telja þau upp: Erla, Bogga, Stella, Gerður, María, Gyða, Mannsi, Jónas, Jói, Gunni, það eru 10 stk., þá vantar þrjú seeeeem ééég man eekki hvað heita í augnablikinu, skrambinn, kannski seinna.

Í dag vöknuðum við svo um ellefu leytið, pökkuðum saman föggum okkar og renndum á Sólvang, ættaróðalið á Skagaströnd, þar sem við fengum smá í gogginn. Þá ákváðum við að fara lengri leiðina heim, og gömlu voru í samfloti. Fyrst keyrðum við Þverárfjallið á Sauðárkrók, fórum svo á Hofsós og í fljótin, komum við í samgönguminjasafninu í Stóragerði, þar voru glæsilegir Land Roverar sem báru af, hinir bílarnir voru bara eitthvað prump. Svo lá leiðin á Sigló, fórum svo Lágheiðina á Ólafsfjörð, heilsuðum þar upp á ömmu Valdísar á Elló og svo brenndum við heim á leið, þetta var semsagt góð helgi, það var mikið að maður gerði eitthvað annað en að sitja heima á rassinum...
Ætla að henda hérna inn slóð svo ég týni henni ekki : )
skagafjordur.com

  19:51 þann 19. ágúst 2007 - Karen - http://
     HANA NÚ sagði hænan og lagðist á bakið........
  22:09 þann 10. 2007 - Lilja - http://www.lilium.hexia.net
     ...enn á bakinu eða? Þú veist að kindur drepast þegar þær verða afvelta- veit ekki með hænur :/
  20:53 þann 20. 2007 - Una - http://www.nifteindin.wordpress.com
     Þú hefðir frekar átt að henda inn slóðinni á þitt eigið blogg, þar sem þú virðist vera búin að týna henni!
 


Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment


[ Fara til baka ]