| Bloggið: 04:31 þann 17. júlí 2007 - hvalur Flutt inn og fínerí Skoh, komin með net og alles : ) Var búinn að vera að pirrast yfir því að netið hefði ekki komið fyrir helgi eins og ég bjóst við en þá kom í ljós að það var sambandsleysi í símatenglinum sem ég tengdi með Ásgeiri Hreiðars hérna um daginn, erum víst búin að vera tengd síðan í síðustu viku einhverntíman ; p Jæja, við erum semsagt flutt inn, allt svona nánast klárt, Hjálmar í Súlum, múrarapípari, er að sjatla steypuvinnuna í sturtunni fyrir okkur smátt og smátt, þegar það er búið verður hægt að mála baðherbergið, setja þar upp spegla og hillur og svo flísaleggja sturtuna og setja upp sturtuhurðarnar, mikið hlakka ég til að fara í sturtu hérna!!! Við sluppum við í þetta skiptið að kaupa okkur meiriháttar tæki í búið, fáum þvottavél frá Sverri og svo lánuðu Lilja og Vaggi okkur snilldarísskáp, fyrir utan það svo að eitt stykki ísskápur fylgdi íbúðinni, en hann fær bara það hlutverk að hýsa bjórinn úti á svölum, í bili allavegana... : ) Annars er það helst í fréttum að Land Roverinn minn, Kára, Finnboga og Eilífs er að verða skoðunarhæfur og er planið að fara með hann í skoðun á miðvikudag, þá verður dómsdagur, hvílík snilld sem það verður að fara í ferðir á þessum hrikalega trukk!!! Djöfull hlakkar mig til! ( ekki ég heldur mig!!). Sé fram á margar ánægjstundir í fáknum : ) Gute nacht, overandout....... |
|||||
|
|||||
|
Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment [ Fara til baka ] |