Bloggið:

02:33 þann 25. júní 2007 - hvalur
Hrísalundur fjögur dé
     Jæja, loksins erum við komin með lyklana að Hrísalundinum, erum að vinna í því þessa dagana að hliðra baðherbergis innréttingunni um 10 cm svo venjuleg þvottavél komist fyrir, svo þarf að troða ýmsum snúrum inn í veggi og á bak við lista og dót, svo þarf að spasla, mála, við erum búin að henda út sturtuklefanum sem var bærilega skítugur, Valdís tók ekki í mál að þrífa hann upp, svo tengdó ætla að gefa okkur nýjan í ammælisgjöf (23. nóv og 14. sept), heppilegt. Það er því í ýmis horn að líta, allir velkomnir í vinnuþrælkun sem vettlingi geta valdið : )

Það kom skemmtilega á óvart að með íbúðinni fylgdi ágætis ísskápur, hann er að vísu örlítið laskaður, búið að splæsa smá spýtu við neðstu skúffuna þar sem hún er brotin, vitum heldur ekki hvort hann kælir - erum að spá í að nota þennan sem bjórskáp út á svölum og svo nota ísskápinn Lilju og Vagga inni í íbúð, grunar að hann sé praktískari og betur með farinn, auk þess sem frystihólfið í honum er fyrir neðan kælihólfið - sem er mjög mikill kostur!!! Dagsetning fyrir innflutningspartý er ekki negld en lítur út fyrir að það verði bara um næstu jól, það eru allir svo uppteknir!

  19:26 þann 26. júní 2007 - Hulda - http://
     ÉG mæti sko í innflutningspartý svo lengi sem það er á bilinu 13. ágúst til 1. des... en annars býð ég mér sjálf í heimsókn fljótlega eftir að ég kem heim ef mér verður ekki boðið;)
  03:11 þann 28. júní 2007 - Finnbogi - http://
     Hulda... Þér er ekki boðið...
  02:41 þann 01. júlí 2007 - helgi - http://
     stefnir allt í að það verði einmitt á þessu tímabili 13. ágúst til 1. des : ) þ.a.l. skyldumæting hjá Huldu ; )
  15:39 þann 05. júlí 2007 - Hulda - http://
     já ég hlusta sko ekkert á fimmboga um hvort mér sé boðið eða ekki.. ..mæti jafnvel óboðin í innflutningspartý til þín líka fimbi minn!
  19:45 þann 10. júlí 2007 - Finnbogi - http://
     Það er allt í lagi, svo lengi sem þér er ekki boðið
 


Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment


[ Fara til baka ]