| Bloggið: 16:06 þann 05. júní 2007 - hvalur Langur hádegismatur Í dag og á morgun verð ég á námskeiði á vegum vinnuskólans, svona flokksstjórnarnámskeiði semsagt. Það verður ágætt, smá afslöppun - er búinn að vera skrambi lúinn og stífur í öllum vöðvum eftir vinnuna núna undanfarið. Getur verið erfitt að byrja að vinna svona aftur eftir skólasetu, ekki það að ég hafi setið mikið í skólanum í vetur en átökin voru þó minniháttar í tímum. Er semsagt í löngum hádegismat núna, konan sem átti að lesa yfir okkur um innflytjendur var upp á fæðingardeild svo við sluppum út talsvert fyrr en ætlað var. Nú fer að líða að búsetuflutningum okkar Valdísar, eigum að tæma Drekagilið fyrir 15. júní og fáum svo íbúðina í Hrísalundinum 1. júlí. Ætlum að reyna að flytja megnið af draslinu í bílskúrinn hjá pabba og mömmu núna um helgina, svo er planið að búa í Byggðaveginum þar til við fáum Hrísalundinn. Gömlu eru nefnilega á Kanarí með allan skarann og fara svo á Skagaströnd þegar þau koma heim svo við höfum einhvern haug af fermetrum út af fyrir okkur : ) Spennandi tímar framundan... |
|||
|
|||
|
Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment [ Fara til baka ] |