Bloggið:

16:32 þann 26. maí 2007 - hvalur
Mættur í borg óttans
     Tók mig til á miðvikudag, fékk Valdísi til að skutla mér að Þelamörk með bakpokann minn stútfullan af drasli, við Þelamörk sat ég svo í um 50 mínútur með þumalputtann upp í loftið, loks stoppaði flutningabíll fyrir mér og ég komst í Varmahlíð með honum. Markmiðið var semsagt að fara suður á puttanum og skoða næsta nágrenni þjóðvegarins nánar á köflum. Ég þurfti ekkert að bíða í Varmahlíð, þar tók mig upp ágætis karl á húsbíl, held að bíllinn hafi heitið Sigurdís, minnir það allavega og kallinn Sig... eitthvað, kannski Sigmundur, var allavega af Mýrarlónsættinni sagði hann. Jæja, ég ákvað að hoppa úr í Hreiðavatnsskála, "Sigmundur" hafði sagt mér frá fossinum Glanna og Paradísarlaut sem átti að vera þarna í næsta nágrenni við Bifröst. Ég fékk svo leiðbeiningar hjá fullum gröfukarli sem var að horfa á leikinn Liverpool - AC Milan, um hvert ég ætti að fara næst, byggðist að mestu á að ég ætti að fylgjast með einhverju skilti sem hann var búinn að taka niður og setja ruslapoka ofan á, varð reyndar aldrei var við þennan ruslapoka. Ég komst engu að síður niður að Norðuránni, sá fossinn Glanna sem er einmitt mjög flottur og um 10 mínútur frá þjóðveginum! Svo rambaði ég einhvernveginn á Paradísarlaut þar sem ég ákvað að gista.
Fimmtudeginum eyddi ég í að labba frá Paradísarlaut meðfram Norðuránni að veitingaskálanum Baulu. Ég stoppaði svona klukkutíma í Baulu, náði áttum, fékk nokkra bolla af heitu vatni úr kakóvélinni til að fylla hitabrúsann : ), svo tölti ég upp á veg aftur og fékk far um leið, hoppaði úr í Borgarnesi þar sem ég ætlaði að gista á tjaldsvæði bæjarins. Í Hyrnunni var mér tjáð að búið væri að leggja tjaldsvæðið af, nennti ekki að spyrjast frekar fyrir um það svo ég húkkaði mér far yfir fjörðinn, að mótel Venus, þar sem ég vissi að væri tjaldsvæði, lét svo fara alveg ágætlega um mig á milli Birkihríslanna þar á bæ.
Föstudagur rann svo upp, frekar kaldur en a.m.k. úrkomulaus, einstaka snjókorn villtist niður úr himnunum. Ég nennti ekki í borgina alveg strax, svo ég gekk ströndina undir Hafnarfjallinu til klukkan að verða tvö, þá gekk ég upp á veg og fékk bíl um leið alla leið í borgina.
Nú er ég semsagt kominn í íbúð frænku minnar uppi í Breiðholti, hún er farin norður svo ég hef slottið út af fyrir mig,úff, það var kærkomið að sofa með sæng í góðu rúmi í nótt, geta teygt endalaust úr sér! Pabbi og mamma koma svo hérna á eftir og svo förum við í brúðkaup frænda míns um fimmleytið held ég. Reikna svo með að við förum heim á leið á morgun, fæ sennilega bara far hjá gömlu eða einhverjum ættingjunum ef þau ætla að ílengjast, sé til...

  18:22 þann 29. maí 2007 - Davíð - http://
     Ég vissi ekki að það væri 3gja daga ferðalag að fara frá Akureyri og til Reykjavíkur. Svo reyniru ekki að hafa samband eftir allt þetta ferðalag... Það verður nú að teljast lélegt.
  18:33 þann 29. maí 2007 - Helgi - http://
     Hei, var alveg búinn á því á föstudagskvöld, lá upp í sófa og gerði ekkert, svo fór ég í ikea með gömlu á lau og í bryllup og svo heim um hádegi á sunnudag, auk þess varst þú fyrir norðan pungurinn þinn!!
  21:34 þann 11. júní 2007 - Lilja - http://
     heh, nú ert þú orðinn eins og hinir undarlegu úgglendingarnir sem þvælast um þjóðvegina og bíða eftir að það sé keyrt á þá En þetta er samt snilldar uppátæki hjá þér-hefði nú ekki lagt í þetta sjálf þó ég hafi nokkrum sinnum fengið far með einhverjum trukkum
 


Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment


[ Fara til baka ]