Bloggið:

01:47 þann 08. maí 2007 - hvalur
Hvalur gleypir mann og annan..
     Ef þetta lýsir mér ekki í bak og fyrir : ) Valdís stendur í meiri prófalestri en nokkrar sögur fara af alveg aftur til þess tíma þegar... hmmmm... uhhh, jah, allavega, hún er að læra stíft fyrir próf. Prófalestur felur einstaka sinnum í sér að maður innbyrðir smá skammta af orku í formi sælgætis. Í gær eða fyrradag fór Valdís út úr íbúðinni til þess að nema hjúkrunarfræði með fleiri verðandi hjúkrunarfræðingum ( þær ferðast í hópum, varið ykkur). Nema hvað, hún skildi eftir poka af nammi á sófaborðinu og súkkulaði kex. Ég að sjálfsögðu tók þetta sem augljóst merki um að það væri mitt hlutverk að gera þessu skil, það var augljóslega ætlun Valdísar. Hófst því handa við að eta sætindin og tók það fljótt af. Jæja, í dag spyr Valdís mig hvar nammipokinn sé og ég bendi góðfúslega á það að sennilega sé hann enn í maga mínum eða kominn í skólpkerfi bæjarins og þar með hugsanlega út í Pollinn. Það kom semsagt í ljós að Inga Steinunn, vinkona Valdísar, sem ekki hefur stigið fæti á klakann í fjölda ára er komin til landsins og hafði meðferðis þessi dýrindis sætindi handa Valdísi sem hún (Inga) mundi sérstaklega vel að Valdísi þóttu gríðargóð og viti menn ég át þau nánast öll, hvernig í ósköpunum átti ég að vita að þetta væri sérstakt þýskt sælgæti sem ekki fæst í nokkurri búð á Íslandi? : )

  14:43 þann 08. maí 2007 - Davíð - http://
     Valdís man það kanski næst að ef nammi er geymt á sófaborðinu, þá geymist það ekki lengi... Ég get allavega ekki séð að þetta geti verið þér að kenna.
  23:23 þann 08. maí 2007 - Bjarni - http://
     Sko ... þetta er bara eitthvað sem ÞÚ ÁTT AÐ VITA!
  15:25 þann 09. maí 2007 - Lilja - http://lilium.hexia.net/myblog
     auðvitað áttu að sjá það maður, nammi sem þú kannast ekki við úr nammibarnum í Hagkaup = þarna er e-ð foreign á ferðinni... hehe en auðvitað mátti Valdís svosem vita betur, aldrei skilja neitteftir á glámbekk sem freistar öðrum. En ég var að spá í myndasíðuna þína, ég var að læra að gera myndaalbúm í photoshop mjög létt (file - Automate- Web photo gallery)... bara datt það í hug þar sem það pirrar mig að geta ekki flett Annars vantar alveg nýjar myndir
  04:20 þann 11. maí 2007 - Helgi - http://
     Klárlega ekki mér að kenna! þarf að skoða þetta photoshop dæmi, bara nenni aldrei að gera neitt í þessari síðu núorðið, kannski tekur maður törn þegar við verðum flutt í nýju íbúðina, í júlí þ.e.a.s. : )
 


Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment


[ Fara til baka ]