Bloggið:

18:21 þann 22. apríl 2007 - hvalur
Gríðarstuð í skátaskeytasölu
     Jebb, sit hér upp á Hömrum í dag eins og í gær og svara í síma. Ferming í dag og í gær semsagt og þá skal selja skeyti til styrktar skátafélaginu. Ekki mikið að gera, tók með mér ps2 tölvuna og nokkra diska af friends svo manni leiðist ekki út í hött. Annars er leiðinlega mikið af snjó þessa dagana, hélt að nú væri komið sumar og sól, svo er bara trekk í trekk (þ.e. tvisvar ) kominn snjór á morgnana og maður neyðist til að skafa af bílnum... samsæri eins og einhver myndi segja. Líst vel á mökk af útilegum í sumar, reyna að vinna sig ekki í hel og gera eitthvað af viti, spurning hvað úr verður þó... Svo verður maður að reyna að snapa sér frídaga í kringum 17. júní.

  06:07 þann 23. apríl 2007 - Una - http://
     Dagskrá. Ekkert myndi gleðja mig meira! Oh ég öfunda þig að vera að júbilera (gamli maður)...
  16:00 þann 29. apríl 2007 - Lilja - http://
     já það væri nú gaman að sjá dagskrá þar sem suðurlandið verður inná kortinu, ég frétti að það sést til sólar þar svona af og til
 


Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment


[ Fara til baka ]