| Bloggið: 15:53 þann 18. apríl 2007 - hvalur Kominn tími á nýtt blog eða? Eins og þið gætuð hafa tekið eftir borgaði ég ekki af www.hvalur.com og keypti það þ.a.l. einhver annar og neyðist ég til að borga tæplega 20.000 krónur til að halda því og það hyggst ég ekki gera. Því ætla ég bara að nota hvalur.golin.org í bili, sem ég fæ semsagt frítt enn sem komið er hjá Ásgeiri kallinum. Þetta er semsagt aðalástæðan fyrir blogleysinu, svo og almennt framtaksleysi eins og það gerist best. Annars er allt við það sama, maður er í skólanum bara að smíðast eitthvað og svo að vinna sem starfsmaður hjá Klakki þess utan. Skólarnir eru byrjaðir að hafa samband upp á Hamra vegna vorsprells og getur verið að maður fái smá djobb út á það, ekki það að það sé ekki alveg nóg að gera. Alveg finnst mér merkilegt að veturinn sé að verða búinn og bara alveg að koma sumar! Sumardagurinn fyrsti núna á fimmtudag barasta, jæja, sama klisjan og venjulega: nú verður maður að vera duglegur að gera eitthvað utan vinnu og hitta fólk, ekki enn eitt vinnusumarið takk fyrir - endar pottþétt þannig... mæli með að við stöndum saman að þessu markmið því sundruð föllum vér. Uhhhm, ef einhver sér þessa síðu núorðið væri gaman að vita af því, endilega kommentið... :o |
|||||||||
|
|||||||||
|
Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment [ Fara til baka ] |