| Bloggið: 17:06 þann 20. janúar 2007 - hvalur Það bara snjóar og snjóar : ) Skíðafærið þessa dagana er gríðargott í Hlíðarfjalli, maður þyrfti bara að hafa meiri tíma og fleiri skíði. Er kominn langleiðina með að rústa nýju skíðunum mínum, þ.e. þau eru orðin svo skrambi rispuð eftir utanbrautarferðir, var nefnilega talsverður skortur á undirlagi undir púðrið fyrir nokkrum dögum svo maður var að skrapa grjótið full mikið! Annars er lítið í fréttum, skólinn eins og venjulega, ekki í neinu bóklegu eiginlega, er að vísu talsvert ósáttur með stundatöfluna, svona að vissu leyti allavega, á til dæmis að vera í tímum til klukkan að verða sex á föstudögum!! Hélt að þetta væri lögbrot en svo er víst ekki... Að vísu er ég nánast í fríi á mánudögum og miðvikudögum, ef mér tekst að halda mér svona ca. viku á undan áætlun í grunnteikningu hugsa ég að kennarinn leyfi mér að mæta bara á fimmtudögum, það væri snilld... Jæja, ætla að brjóta saman þvottinn og skjótast í eins árs afmæli í tjarnarlundi... Gleymdi næstum; takk fyrir allar hamingjuóskirnar : ) nú fyrst er maður að verða gamall, kominn einhver baugur á puttann!! Fæ smá sjokk öðru hvoru en er að öðru leyti bara hamingjusamur með þetta : ) |
|||||
|
|||||
|
Til að skrá Comment við þessa færslu smelltu þá Skrifa comment [ Fara til baka ] |