Bloggið:
19:56 þann 01. janúar 2007 - hvalur !!!ðirá tgeliðelG Jæja, 2006 barasta búið, bless. Ótrúlegt en satt, fannst það frekar stutt, á annan endann, jah, reyndar báða og í miðjuna líka , hmmm. Við erum að tala um Sölden, ferðlag, vinna, skóli og vinna, vinna, jól, flugeldavinna, áramót, búið bless. Þetta var árið 2006. Er víst nóg eftir samt, spennandi að vita hvað 2007 ber í skauti sér. Mér fannst skaupið bara alveg ágætt en ykkur? (dembi fram þessari spurningu í þeirri von að einhver góðhjartaður lesandi svari henni svo það líti allavega út fyrir að a.m.k. ein manneskja skoði stundum síðuna ; p ). Í tilefni nýja ársins fór ég upp í Hlíðarfjall áðan í göngubrautina með mömmu og pabba, pabbi gaf mömmu nefnilega gönguskíði í afmælisgjöf í nóvember síðastliðnum og pabbi fékk í afmælisgjöf fyrir tveimur árum, 2004 þ.e. Þetta var semsagt frumraun mömmu á gönguskíðum, reyndar bara á skíðum almennt, og gekk bara skrambi vel, húrra fyrir því : ) Ætla renna í Byggðaveginn til að vita hvort ég geti ekki sníkt smá kökur og góðgæti í laun fyrir "skíðakennsluna" : ) Gleðilegt ár og takk æðislega fyrir þau gömlu :o)
|
|
|
|
|