| 19:12 þann 27. 2005 - hvalur Polinsky tak Tha er madur staddur a netcafe vid ein adalumferdargatnamotin i midborg Varsjar, Pollandi.. ekki langt fra fljotinu Wisla, engin sma spraena tad. Tad virdist einkenna tessa borg ad tad sem stendur i turistabaeklingunum er rangt! Allavega roltum vid i gaer nidur gotu tar sem atti ad vera Gokart braut skv. einum baeklingnum okkar, tegar vid komum ad rettu husnumeri var tar ekkert nema sex shop og ibudir tar fyrir ofan. Vid akvadum ad tad vaeru litlar likur a Gokart braut i einu herberginu tarna.. I dag aetludum vid a staersta utimarkad i Evropu, tegar vid hofdum farid med lestum og tram og tilheyrandi vesi a stadinn, allt hardlaest og lokad. Jaeja, vid akvadum ad fara i utsynisturn i midri midborginni, roltum tangad og flaektumst tar um i leit ad retta innganginum, endudum einu sinni inni i biosal, einu sinni vid einhverja radstefnusali o.s.frv. tegar farid var ad styttast i uppgefna lokun gafumst vid tvi upp.. Ta akvadum vid ad fara a skidasvaedi sem atti potttett ad vera opid samkvaemt tessum lika fina baekling sem hafdi ratad i hendur okkar. Akvadum ad taka leigubil svo vid hefdum naegan kraft a skidin tegar tangad vaeri komid, neinei, flaektumst med leigubilnum i halftima, hann henti okkur svo ut i einhvern gard tegar vid fundum ekkert, tar rombudum vid a skidasvaedid sem reyndist svo vera hardlokad!!! Ekkert litid svekktir, vorum bunir ad sja fyrir okkur tvilika skidamennsku ad polverjarnir hefdu borid okkur i paradis a himnastolum fyrir skidamennsku okkar eintoma!! En neinei, turftum ad labba i "marga klukkutima" ut a naestu storu umferdar aed og taka tram i attina heim! Jaeja vid komum allavega vid a lestarstodinni a leidinni heim a herbergi og akvadum ad taka lest klukkan sex i fyrramalid til Krakow tar sem vid aetlum ad skoda Auswitz og Birkenau gefid ad vid voknum i fyrramalid Sjaum hvad seturE.S. Minni a austurlestarsiduna tar sem lesa ma frekari fregnir ritadar af Kauranum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar |
|
| 20:50 þann 24. 2005 - hvalur Chžeck Republic Jaaa Jůja §eg ůtla bara aú nota -etta lzklabord rett eins og -aú s§e §islenskt -iú verúiú svo bara aú r§aúa fram §ur -v§i... Viú §attum skrambi g§oúa daga §i London, skoúuúum fullt af g§oúum s=fnum og d§oti, f§orum §i millj§on km langa gonguferú til -ess eins aú labba zfir eina skitna gangbraut, Gulli og K§ari st§oúu fzrir -v§i... Viú Ezd§is eltum bara meú tilhezrandi k§atin§u... §I morgun var svo planiú aú k§ikja §a HMS Belfast, skip §ur seinni heimsstzrjoldinni, var svo magnaú aú skoúa -aú aú viú glezmdum okkur alveg og vorum allt of seinir, vorum b§unir aú můla okkur m§ot viú Gulla og Ezd§isi en vorum allt of seinir §i -aú, hj§alpaúi §ika ekki aú nedanjardarlestin sem vid aetludum ad notast vid var rafmagnslaus svo vid urdum ad breýta ollum okkar plonum. Vid nadum tho fluginu til Tekklands og tokst med otrulega litlum erfidleikum ad koma okkur a fint gistiheimili, nanast hotel sko, eitt badherbergi med vask og sturtu (engu klosetti) og eitt badherbergi bara med klosetti, trju rum i storu herbergi, sjonvarp, stolar og laeti sko. Borgum eitthvad sýnishorn af pening fýrir tad. Svo tokum vid roltid eftir tad, endudum inni kjallara med midaldarthema, Oendanlega flott sko... Maeli hiklaust med thessum! Richard hośek. Thar var okkur bara hent a bord med slatta af odru folki, satum a trebekk med hesthud eda einhverju... Fengum braud og skal med smjori og fitustýkkjum i forrett, svo fekk kari tennan fina tein med kjoti a og eg mitt hne af einhverju oheppnu dýri, thetta lika fina Hne! Jaeja, sýnist mýndavelarnar herna vera a faranlegu verdi svo thad endar pottthett med tvi ad eg eýdi al-ekki-eigunni i digital mýndavel Annars er stefnan heim a hotel bradlega til ad notast vid thessa lika finu sturtuadstodu sem vid hofum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Davíð skrifaði síðasta svar |
|
| 09:23 þann 22. 2005 - hvalur London Baby Tha er madur maettur til London! Mest litid markvert gerst ennta, flug i gaer og eftir nokkur simtol og leidbeiningar fra vegfarendum fundum vid Kari hvorn annan fyrir utan London Bridge lestarstodina. Svo litum vid inn a hostelid okkar sem virdist vera einn stor partystadur, ad sjalfsogdu fengum vid herbergi a efstu haed En ta er bara meiri svefnfridur, heyrist minna i barnum nidri.. Svo kiktum vid ut a lifid, aetladi nu ekki ad reynast audvelt ad finna klubb sem fullnaegdi okkar krofum ne skyndibitastad sem okkur taetti kraesilegur, allt hafdist tetta a endanum, endudum inna stad sem heitir pop thar sem kvenfolkid afsannadi gjorsamlega thessa godsogn um ad allt breskt kvenfolk se forljott.. Jaeja, eg veit nu ekki hversu duglegur madur verdur ad henda herna inn en tid gaetud lika fundid frettir a Austurlestinni Annars a ad fara a safnarolt og eitthvad slikt i dag..Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar |
|
| 19:59 þann 17. 2005 - hvalur Farið að styttast í annan endann.. Nú er að verða kominn Þriðjudagur og það er bara á Fimmtudaginn sem við Kaurinn ætlum að rúlla suður í borg óttans og svo fljúga til úglandsins á föstudaginn. Maður er byrjaður að plana aðeins, örlítið farinn að stressast og byrjaður að pakka, kominn með 10 kg í bakpokann, þarf að reyna að skera framhaldið eitthvað við nögl því ég nenni ekki að halda á mörgum tugum kílóa út um alla evrópu, auk þess sem ég þyrfti þá væntanlega að borga yfirvigt á leiðinni heim. Tókst loks í dag að bóka gistiheimili í london nóttina 10.-11. nóv þegar ég kem til baka, tókst þó ekki betur til en svo að ég verð einar 70 mínútur í lest þangað frá stansted þegar ég lendi 10. og svo annað eins þegar ég fer á heathrow 11. nóv en það verður bara að hafa það... Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Anna Ey skrifaði síðasta svar |
|
| 03:17 þann 14. 2005 - hvalur Langur dagur að kveldi kominn Í gærkveldi brunaði þríeyki austur í Fnjóskárdal til gistingar, það er; ég, Finnbogi og Kári. Við keyrðum austur um níuleytið í gærkveldi, Kári gekk svo frá að við höfðum bústað út af fyrir okkur sem er í eigu Löggunnar á Akureyri, við erum að tala um pott, playstation 2 og allur pakkinn. Við nýttum okkur því playstation og pottinn í gærkveldi, vorum að skríða í beddann um þrjúleytið, svaf að venju best í heimi í nýja fína Norður fés svefnpokanum mínum :D Í morgun var ræs um átta, gekk misvel að gegna því en eftir nokkrar badmintonfokkur, smá knús og kremju drögnuðust allir á lappir. Planið var að príla upp hólfjallið í bakgarðinum við bústaðinn og skíða svo niður. Eins og fólk veit snjóaði gríðarlega í gær í algjörri stillu svo púðrið var gríðarlegt. Í morgun var svo frost og enginn vindur svo færið var eins og best var á kosið. Þegar við loksins dröttuðumst af stað tók það okkur um klukkutíma að berjast uppúr kjarrinu við bústaðinn, púðrið var til vandræða það var svo mikið og trjágreinarnar voru heldur margar. Loks þegar þessu var aflokið var skáað upp brekkurnar á telemarkskíðum útbúnum skinnum, mismörgum þó Um eitt hálftvö að mig minnir ákváðum við að hætta að hækka okkur, þá tók bara við ferðin niður!Hvílík sæla! Hvílíkt veður! Hvílíkt magn af púðri! Hvílík snilld! ...vantar orð sko! Ég held ég hafi bara aldrei á ævinni upplifað aðrar eins aðstæður til skíðunar! Jæja nóg um það, þegar við komum niður í skálann, eftir nokkrar byltur, ófáar telemarkbeygjur og eitt eða tvö stökk nýttum við okkur aðstöðuna, playstation (n4speed) og potturinn! Nutum þess að baða okkur í miðdegissólinni í pottinum, umkringdir snjó og rjúpnakurri Vorum svo komnir í bæinn um fimmleytið.Dagurinn var þó ekki búinn eftir þetta, stoppaði örstutt í Heiðarlundinum, leysti svo Kára af í bolta á Hrafnagili, renndi uppá Hamra í smá smíðaverkefni. Það vildi nefnilega þannig til í gærkveldi í bústaðnum að mér tókst að setjast á framlenginu á eldhúsborðinu, nema hvað, stoðirnar fóru í tannstöngla, ég í gólfið og allt út um allt. Ég græjaði semsagt nýja hluti í borðið uppá Hömrum og fékk svo Hiluxinn hjá Fimba lánaðan, brenndi austur, klambraði borðinu aftur saman, brenndi aftur í bæinn og er svo að fara að leggja mig rétt í þessu, um þrjúleytið Hef sterkan grun um að ég þurfi varla að loka augunum áður en ég sofna!Jæja, þetta er orðið andskoti langt og augnlokin farin að þyngjast ískyggilega, zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 00:23 þann 12. 2005 - hvalur Nú fer allt að gerast Jæja, lífið gengur sinn vanagang þessa dagana. Er ennþá að vinna á Hömrum, frágangur og smádútl í gangi, Finnbogi kom með mér í dag að tæma Lundavelli, kynstrin öll af drasli, myndum og allskonar. Þessa vikuna er Finnbogi hérna á Akureyri og á morgun og hinn er Kárinn í vaktafríi svo planið er að rúnta eitthvað sniðugt eftir vinnu á morgun, gista í tjaldi eða skála og skíða svo eitthvað sniðugt í fríi á Fimmtudag.. vonandi bara að við fáum skaplegt veður til þess arna. Nú eru bara 10 dagar í Interrailið svo maður þarf að fara að huga að pökkun, það versta við það er held ég hvað maður verður að skera við nögl hvað það varðar. Maður nennir jú ekki að bera marga tugi kílóa á bakinu um alla austur evrópu í þrjár vikur svo ég verð að reyna að takmarka farangurinn minn.. sem er ekki beint mín sterkasta hlið! Skilst á Kára að á leiðinni frá Ljubliana megum við hafa 15 kíló í farangur og 10 í handfarangur.. maður verður bara að púsla eitthvað þá og kannski borga smá yfirvigt ef illa fer. En stefnir allavega allt í góða ferð og ekki laust við eilitla tilhlökkun en þó smá kvíða líka ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 16:24 þann 07. 2005 - hvalur Össs, er að verða hooked! Tók mér frí eftir hádegi í dag, hlíðarfjall var aðeins of freistandi!! Rölti upp brekkurnar í rúman klukkutíma og flaug svo niður brekkurnar, hvílík snilld! Maður ætti auðvitað að flytja út í alpana og vinna við að skíða, það væri það besta! Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 18:43 þann 03. 2005 - hvalur Aðeins minna ljómandi, ljómandi massafínt en samt.. Við Kaurinn fórum uppí Hlíðarfjall í dag, röltum aðeins upp fyrir Strýtuskálann og svifum svo niðureftir á Telemark plönkunum... Ekkert smá fjör! Sehr Toll! Var að vísu helvíti leiðinlegt færi efst, skel ofan og skrambi mjúkt undir svo maður nánast datt í hverri beygju og hvarf þá nánast alveg ofan í snjóinn en fyrir neðan strýtu var farið að blotna meir og var alveg ljómandi færi þar :D :D :D hvílík snilld!!! Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Davíð skrifaði síðasta svar |
|
| 18:06 þann 01. 2005 - hvalur Ljómandi massa, massa, massafínt!! Haldiði að karlinn hafi ekki tekið sig til og rölt nánast alla leið uppá Hlíðarfjallið í dag.. fór í Byggðaveginn og sótti Atomic fínu Telemark skíðin og rölti á skinnum uppeftir.. Var tvo og hálfan tíma uppeftir og ca. korter á leiðinni niður í Skíðastaði aftur :D Varð bara að deila þessu með ykkur, verður ekki betra en það!! Einhver skoðun á málinu? ( 11 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 10:16 þann 01. 2005 - hvalur Nú er það svart! Maður veit ekki hvað er að verða um Akureyri, ég var að reyna að finna í huganum í gær einhver stór iðnaðarfyrirtæki sem eftir eru eða yfir höfuð stór fyrirtæki sem ekki eru flutt burt af Akureyrinni. Nú er slippurinn farinn á hausinn, pabbi orðinn atvinnulaus í bili, skilst að ÚA (BRIM) sé óðum að selja burt kvótann smátt og smátt.. Skinnaiðnaður er dauður, Linda, Strýta var að segja upp 25 manns, það virðist bara allt á leiðinni til andskotans.. verður forvitnilegt að vita hvort bærinn tórir á því sem eftir er. Heyrði út undan mér að það hefðu verið 300 manns á atvinnuleysisskrá hérna áður en slippurinn og strýtan sögðu upp.. þá hljóta þetta að vera orðnir rúmlega 400 manns! Jæja, það þýðir ekki að drukkna í ruglinu, skilst að ég hafi verið klukkaður nokkrum sinnum svo hér fara nokkrar staðreyndir um sjálfan mig: 1. Ég á það til að sýna örlitla þrjósku þegar ég hef ákveðið mig varðandi eitthvað.. getur verið erfitt að reyna að segja mér til í þeim tilfellum ![]() 2. Mér finnst ægilega gaman á skíðum og langar alveg hressilega mikið uppí fjall á gönguskíði, er að hugsa um að láta hreinlega verða af því uppúr hádeginu barasta. 3. Ég er ekki þessi morgunmanneskja virðist vera, get verið ægilega þungur í gang og á þar af leiðandi mjög erfitt með að vera mættur á slaginu 08:00 í vinnuna :o/ Nema Valdísi takist að tuða mig á fætur (er þess vegna ægilega erfitt þessa dagana þegar hún er í germaníu). 4. Suma daga finnst mér voða þægilegt að hlusta á svona vælitónlist eins og Selínu Díjon (eins og sinnepið?), Sarah McLaughlan og fleiri.. 5. Mér finnst Baileys alveg ægilega gott, sérstaklega hrist í klaka, með smá slettu af mjólk útí.. heyrði auglýsta Baileys köku í bakaríi fyrir sunnan heiðar, þarf að kanna það nánar við hentugleika.. Þar sem kerlurnar klukkuðu mig tvisvar ætla ég að njóta sviðsljóssins og henda fram eilitlu í viðbót.. 6. Mér finnst gaman að búa eitthvað til í höndunum, hvort sem það er að tálga, prjóna, teikna eða eitthvað.. get verið ægilegur dundari.. 7. Það er nánast best í heimi að sofa úti undir berum himni í engum bivak í nýja fína North-Face svefnpokanum mínum, ef Valdísi nyti ekki við myndi ég biðja pokann að byrja með mér og aldrei sofa innanhúss aftur, hentugt að þurfa ekki að kaupa sér íbúð ![]() 8. Ég er rosalegur nautnaseggur, ís, nammi, súkkulaði, góður matur og nóg af honum, þetta gerir að verkum að það er þess virði að lifa lífinu!! Án Draums og Coke, væri þetta ósköp tilgangslaust ;p 9. Ég nenni ekki meiru núna.. Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 19:47 þann 27. september 2005 - hvalur Ég þoli ekki... .. þegar maður er búinn að eyða hálftíma í að blogga einhverja ágætis romsu og svo einhvernveginn tekst manni að klúðra því svo allt hverfur!!! Nenni ekki að skrifa meir núna þar sem ég er hundfúll!! Kem aftur með fleiri staðreyndir næst ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
|
|