| 19:52 þann 05. febrúar 2005 - hvalur Það byrjar bærilega... Við áttum flug suður í borg óttans klukkan 20:25 í kvöld, höfðum mikið fyrir því að mæta tímanlega klukkan átta svo við myndum nú ekki missa af blessuðu fluginu. Kom svo berlega í ljós þegar við mættum á völlinn að veðurguðirnir voru ekki hlynntir brottför okkar frá Norðurlandinu því fluginu hafði verið aflýst sökum þoku og slælegs skyggnis. Eins og þessir menn geti ekki lent þessum járnfuglum blindandi! Issipiss, hvílíkir aumingjar Jæja, maður verður þá bara að leggja sig tiltölulega snemma í kvöld því við þurfum að mæta á völlinn klukkan sjö í fyrramálið..Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Davíð skrifaði síðasta svar |
|
| 22:25 þann 04. febrúar 2005 - hvalur Á barmi taugaáfalls... ..undanfarna tvo klukkutíma því vegabréfið mitt fannst hvergi! Er búinn að snúa öllu herberginu á hvolf og var við að fara út í bílskúr að ná í sleggju og kúbein. Mundi nefnilega bara að ég hafði sett það á góðan stað svo ég myndi nú ekki týna því!!! Jæja, ég fann það svo loksins í plastkassa undir rúmi :D Svo nú hefst tiltektin aftur barasta :D Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
| 22:02 þann 29. janúar 2005 - hvalur Vinnuþrekið aðeins að koma til smátt og smátt.. Er samt skrambi þreyttur alltaf í seinni vinnunni og ef þið spyrjið Valdísi er ég örugglega viðskotaillur rétt eins og andskotinn en við vitum öll að það er tóm steypa í henni :D Stefnan er tekin á að ferja bílaleigubíl suður á mánudag eða þriðjudag, eftir því hvenær það er í boði og hvort, ég væri meira en til í að koma suður í dag og eyða næstu vikunni fyrir sunnan en Eurocard reikningurinn býður hreinlega ekki upp á það Er búinn að leggjast og grátbiðja hann um að borga sig sjálfur en allt kemur fyrir ekki!! Helvítis þrjóska í þessum kvikindum. Allavega dauðlangar mig ef við komumst af stað á mánudag að koma við á Hvanneyri, allavega í kaffi og með því( Inga byrjaðu að baka! og svo suður þar sem ég held ég sé búinn að fá leyfi til að hoppa í pottinn hjá Huldu (var það ekki annars ?) :D Annars hlýtur þetta allt saman að koma í ljós smátt og smátt... Tek bara einn dag í einu þessa dagana..Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar |
|
| 21:28 þann 27. janúar 2005 - hvalur Æjæjæjæj Nú er ég gjörsamlega úrvinda, og nei, það er ekki bara eftir helgina heldur eftir vikuna sem er að byrja, mig langar bara ekki nokkurn skapaðan hlut að byrja hana í fyrramálið! Asnalegt að það sé hægt að vera þreyttur fyrirfram! Ef einhver er til í að hóa saman nokkur þúsund manns í mótmæli á Austurvelli gegn ókristilegum mætingartíma í vinnuna þá mæti ég... Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Lilja skrifaði síðasta svar |
|
| 22:58 þann 24. janúar 2005 - hvalur Það er annaðhvort í ökkla eða eyra... ...fyrir ekki svo löngu síðan eða 2 dögum var ég atvinnulaus aumingi m. núll prósent vinnu! Nú er svo komið að ég er að vinna hjá SS byggi frá 7 á morgnana til 17 á daginn og svo hjá símanum við úthringingar frá 18 til 22!! Ekki það að ég sé að kvarta en þetta eru samt smá viðbrigði, hef enda sofið ca. 5 tíma síðustu tvær nætur og sýnist stefna í ekki mikið lengri svefn á eftir Þetta er semsagt ein af ástæðunum fyrir smá bloggleysi upp á síðkastið, sé svosem ekki fram á að það sé mikið að fara að skána á næstunni. Verð að vinna svona þar til ég fer út. Á morgun er svo félagsútilega hjá Klakki á Vestmannsvatni þar sem ég hyggst "hvílast" eins og hægt er í skátaútilegu! Svo er bara mæting alveg hreint eldhress í vinnuna klukkan SJÖ!!! á mánudagsmorgunn, óguðlegur tími til að vakna á mánudagsmorgni!Jæja, hættur í bili, farinn að hrjóZZzzzzzz.. Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar |
|
| 09:41 þann 18. janúar 2005 - hvalur Nú eru þeir farnir að skjóta fólk með snjó! Það er nú svosem ekki mikið að frétta þessa dagana miðað við síðustu þrjár vikurnar Fæ hvergi vinnu þar til ég fer út svo maður er bara að reyna að láta tímann líða og reynir að detta ekki í það fara að sofa helminginn af sólarhringnum og gera ekki neitt rest, gengur reyndar ágætlega enn sem komið er... Búinn að fara einu sinni á skíði, hitti slurk af liði þá, reikna svo með að skreppa aftur á eftir þar sem systir mín er að koma að vestan(er í FNV). Algjör synd að fara ekki í fjallið bara á hverjum degi núna en það kostar bara svo syndsamlega mikið!! 1200 kall frá fjögur til átta!! Það er bara eins og margar þriggja rétta máltíðir úti í austur Evrópu! (er enn að reyna að trappa mig niður sko...) Þetta er bara rugl, við fórum í bíó í Split við Adríahafið fyrir 200 kall að mig minnir, og þar máttum við fara inn með þær veitingar sem við vildum, sluppum við hlé, sáum að vísu öööömurlega mynd, zorró. Myndin hefði reyndar verið ágæt ef ekki hefði verið fyrir bandaríska fánann í öðru hverju atriði og að búið vara að breyta zorró í ameríska hetju sem hugsaði um ekkert annað en að bjarga ameríku frá eyðileggingu og var amerískari en allt sem amerískt er!! Eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir er ég ekki einlægur aðdáandi Bandaríkjanna!Ég þakka kærlega fyrir allar ábendingarnar hvað varðar farangur, þarf greinilega að útbúa böggul og senda á undan eða láta senda á eftir út, hef nefnilega í hyggju að taka meira með en ég tók með í interrailið.. kom heim með 20 kg og tvær töskur í handfarangur.. Annars leist mér skrambi vel á hugmyndina hans Jens, þ.e. að endurnýja bara allt draslið, kaupa allt nýtt úti hreinlega, gerðum það að hluta til á ferðum okkar um Austur Evrópu. Nenntum nefnilega ekkert að þvo nema einu sinni í byrjun svo við bara keyptum okkur ný nærföt þegar þess var þörf og spiluðum þetta bara þannig.. Merkilegt samt hvað nærfataverslanirnar hurfu alltaf þegar við vorum á höttunum eftir slíkum varningi. Jæja, ég ætla að hætta þessu rugli núna, fara að gera eitthvað uppbyggilegra en að liggja uppí rúmi í tölvunni (á meðan valdís púlar í ræktinni ) eins og að setjast á stól og fara í tölvuna .Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 13:18 þann 14. janúar 2005 - hvalur Heima er best Jæja, það var ljúft að lenda í Keflavík þrátt fyrir að oft í ferðinni hafi ég undrast það hví maður byggi á þessu skeri! Það búa svo hrikalega fáir hérna og þjónustan og framboð á hlutum eftir því.. en ég er sáttur, get ekki annað sagt. Ég er að verða búinn að taka upp úr töskum og koma fyrir og Begga búin að þvo af mér illa lyktandi sokkana og annað Svo þarf maður bara að fara að huga að því hvað á að taka með til Söelden, aðeins önnur hugsun í kílóum í þetta skiptið, eitthvað sem á betur við mig Spurning samt hvort sé betra að senda eitthvað af dótinu á undan í pósti eða borga yfirvigt, veit einhver hvort er að gera sig betur varðandi peningana... Við erum semsagt búin að panta flug þann 7. Des til Lundúna og þaðan ætlum við að fljúga til Salzburg að mig minnir, frekar en Munchen og svo lest í framhaldinu af því. Þangað til væri voða gott að vinna eitthvað upp í kreditreikninginn en virðist eitthvað minna um vinnuframboð svo það endar kannski bara með einhverju chill rugli.. Kemur í ljós allavegana.. Ætla að halda áfram að taka til inn í herbergi, eitt af þessum eilífðarverkefnum, er reyndar ekkert svo leiðinlegt þegar maður getur bara dundað sér við það í rólegheitunum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Jens skrifaði síðasta svar |
|
| 20:59 þann 10. janúar 2005 - hvalur Allt er gott sem endar vel :) Jaeja, tha er thessari evropureisu senn ad ljuka, eg er staddur a gistiheimilinu Earls Court vid Bolton Roads nr. 38 i London, tjallalandi, og Karinn er vonandi lentur a froni og jafnvel kominn til borgar ottans. Halfskrytid ad vera svona einn a ferdinni eftir trjar vikur gjorsamlega limdur vid siduna a Karanum ![]() Vid eyddum rett rumum solarhring i Ljubliana, borginni sem vid heldum ad vaeri sneisafull af utivistarverslunum, thad reyndist tho ekki rett, allavega ekki a theim svaedum sem vid komum vid a, ekkert nema skobudir ut um allt! Var reyndar oft thannig thegar vid vorum ad leita ad einhverju i gegnum ferdina, ekkert nema skobudir, merkilegt. Vid roltum beint af lestarstodinni a thetta lika fina hostel thar sem kari var buinn ad boka fyrir okkur herbergi m. tveimur fletum. Hostelid er gamalt fangelsi og ber thess oll merki enn i dag, i ollum herbergjum eru tvofaldar hurdir, t.e. oskop venjulegur hurdarfleki og svo rimlahurd innan vid, lika rimlar fyrir gluggunum Hljomar ekki vel en vidkomandi adilar hafa nostrad vid hvern fersentimeter i husinu, utan vid hvert herbergi var skjoldur med nofnum arkitektanna sem honnudu herbergid og listraen mynd af tvi. Herbergid okkar var alveg magnad utlitslega tho praktikin hafi kannski ekki alveg verid i fyrirrumi eins og vill oft verda hja arkitektum Allavega nutum vid vistarinnar mjog vel.Mestum timanum i Ljubliana eyddum vid i verslunum svaedisins, tokst tho nokkurnveginn ad halda veskinu i skefjum (eg stod mig tho betur en Kari thetta skiptid). I morgun tokum vid svo Flybus fra rutustodinni a flugvollinn klukkan tiu yfir tiu, svo vid vorum maettir a vollinn um 11. Vid gengum inn um inngang merktan Departures, thar inni blasti vid okkur tafla med upplysingar um naestu 10-15 brottfarir og komur. Thad var svosem ekkert merkilegt vid thessa toflu frekar en adrar svona toflur sem vid hofdum sed a ferdalaginu nema hvad, thad bara var engin flugvel til London klukkan 14:10!! I meira lagi dularfullt, forum ad velta fyrir okkur allskonar samsaeriskenningum og moguleikum a medan Kari nadi i pontunarpappirana. Eftir grandskodun a bledlunum kom i ljos ad check in hofst klukkan 14:10 en velin atti ekki ad fara fyrr en 16:10 Svo thad var ekkert skritid ad engin vel til London vaeri a toflunni, hofdum einfaldlega lesid vitlaust og neyddumst thvi til thess ad eyda sma aukatima a vellinum, vorum semsagt i heildina i dag fra 11 til 16 a vellinum Aegilegt stud a tiltolulega litlum flugvelli ut i rassgati, vorum sem betur fer med eitthvad lesefni med okkur ![]() Annars var nu ferdin tiltolulega tidindalaus hingad a hostelid fra Sloveniu, kvaddi Kara med kokkinn i halsinum a Stansted, tok rutu til Liverpool Station til ad komast ofan i nedanjardarkerfid, byrjadi a ad taka lest i vitlausa att en komst a endanum a retta stod og rolti svo a bolnum restina af leidinni i nettri rigningu, bara hressandi thad Jaeja, aetla bara ad fara ad leggja mig svo eg geti vaknad tiltolulega snemma i fyrramalid og maett allt of snemma a Heathrow og bedid thar lika i marga klukkutima eftir fluginu heim Kvedjur fra London i bili..Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | teddi skrifaði síðasta svar |
|
| 17:17 þann 06. janúar 2005 - hvalur Dagur afsloppunar i Split, Kroatiu Nu erum vid felagar maettir a ny til Kroatiu, tokum Bosniu eins og hun lagdi sig a 42 klukkutimum, var miklu meira en nog, eda thannig. Bosnia: Fyrstu klukkutimana lagum vid i einhverskonar moki i lestarklefa i einhverri fjarans sveitarlest fra Budapest. Letum raena af okkur myndavelinni hans Kara thar a theim tiu minutum alla ferdina sem vid svafum badir i einu. Tha eyddum vid ca. thremur timum a logreglustodinni vid lestarstodina i Sarajevo, megninu af timanum eyddum vid i anddyri logreglustodvarinnar i thessum lika skitakulda!! Svo fundum vid okkur gistingu, svafum thar fram ad hadegi og roltum svo i hringi fram til fjogur (ofair hringir sko!). Merkilegt hvad thad eru morg hus tharna sundurskotin og sprengd enntha. Klukkan fjogur forum vid a kaffihus med tulknum okkar fra thvi um morguninn a logreglustodinni, agaetisstulka fra Hollandi, heldur metnadarfull tho Stefndi linnulaust ad thvi ad rada bot a ollum vandamalum heimsins Skruppum heim a herbergi i duschen duschen til thess eins ad fara svo i reykkofunarnamskeid a Jazzbar, eftir stolpamaltid a Club Jez. Eftir smastund a Jazzbar heldum vid ad verid vaeri ad brenna okkur lifandi og vorum farnir ad grenja hastofum, tha raku adrir gestir okkur ut thar sem their voru ad drukkna i taraflodi og missa heyrnina vegna grenjuorga Voknudum svo eldhressir a Laugardagsmorgni og forum nidur a rutubilastod (vid hlid lestarstodvarinnar) med sporvagni, slogum nidur nokkra innfaedda um bord i leidinni med gamunum a bökum okkar. Thar utvegudum vid okkur mida i rutu til Mostar um halfeitt, thangad til eyddum vid ollum okkar tima a History Museum, thad leidinlegasta safn sem eg hef nokkurn timan augum litid! Og hef eg nu stundad sogusofnin fra blautu barnsbeini, takid eftir tvi! Safnid hefdi komist fyrir inni a klosettinu a nedri haedinni i Heidarlundinum en var thess i stad dreift um risastort hus sem sennilega var helviti flott fyrir 15 arum en leit nu ut eins og kassi utan af golfkulum a ofan a annarri venjulegri byggingu. An efa voru thetta mjog svo sogufraegir gripir og merkilegir en their voru ekkert merktir ad radi nema tha til ad segja ad sverd vaeri sverd og byssa vaeri byssa! Jaeja, fengum tho sma sarabot thegar vid rakum augun i risastora herthyrlu og skriddreka fyrir utan i algjorri nidurnidslu. Thar missti Kari sig gjorsamlega og for i ofurlogguleik, klifradi uppa thyrluna og for ad nota spadana eins og stokkbretti eda trampolin, um leid foru spadarnir ad snuast haegt og rolega til haegri og tha aftari spadinn a sma ferd lika. Thyrlan stod tho upp vid tre svo ad thegar einn spadinn rakst i tred flaug Karinn beint a hausinn a jordina tveimur metrum nedar. Alltaf gaman i Bosniu.Jaeja, vid stoppudum svo i Mostar i tvo tima, skodudum Stari Most brunna og oll gjorsamlega sundurtaettu husin thar fra thvi i stridinu. Tokum svo rutu til Split, stoppudum sitt hvoru megin vid landamaerin Bosnia-Kroatia og floggudum vegabrefunum, sitthvoru megin thurftu landamaeraverdirnir bara ad taka okkar vegabref og rolta med tau eitthvad ut og skoda voda vel og bera undir hina og eitthvad, tofdum thvi alla rutuna i ca. halftima bara med thvi ad vera fra Islandi Thegar vid komum til Split la vid ad gamla folkid i gullleit thyrptist inn i rutuna, rifi okkur ut og draegi okkur heim thar sem thad bydi upp a gistingu, en vid vorum med plan. Um leid og vid stigum ut ur rutunni, (vid erum ad tala um fyrsta skrefid) valdi Kari karl ur thvogunni sem beid okkar og vid heldum okkur vid hann og hunsudum hina bara. Thad reyndist bara vel thvi vid fengum thetta fina herbergi fyrir tiltolulega litinn pening.Nottin var tho heldur stormasom thar sem eg hef komist ad thvi ad Kari verdur andsetinn i svefni, hann rykur upp med andfaelum a milli thess sem hann hrytur eins og rostungur (hef thvi samtals sofid 2 klst. i allri ferdinni) og sygur ad ser loftid eins og hann hafi aldrei gert thad fyrr, stundum verdur madur smeykur um ad loftid klarist og thad myndist vacum! Thegar eg vaknadi i morgun var thvi harid a mer allt ut i loftid og naflinn ordinn utstaedur! Stend ekki i thessu kjaftaedi lengur ![]() Jaeja, vid erum semsagt staddir i Split, forum ekki a faetur fyrr en um tolf halfeitt leytid og ekki ut ur husi fyrr en um tvo, thegar badir voru bunir ad skrubba sig hatt og lagt og stanga ur eyrunum mestu drulluna. Hofum svo bara verid a roltinu herna i dag i 17-18 stiga hita, horfdum a hverfislidid i fotbolta keppa adan, Kari nadi m.a.s. i boltann fyrir tha ut a gotu, forum upp i turninn i kastalanum herna og horfdum yfir baeinn, og erum bara i chillinu, aetlum svo a Zorro a eftir med kroatiskum texta. Hofdum vit a thvi i thetta skiptid ad spyrja hvort myndin vaeri dobbud, thad er bara omurlegt ad horfa a myndir sem eru dobbadar med polsku! Bara kraftaverk ef manni tekst ad halda ser vakandi! A morgun aetlum vid svo med rutu upp til thjodgards sem heitir Plitvicka Lakes , aetlum ad eyda thar rumlega solarhring eda svo og svo upp til Zagreb, Ljubliana eda eitthvad i tha attina. Bid fyrir kvedjur undan palmatrjanum i Split vid Adriahafid. Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Kari skrifaði síðasta svar |
|
| 14:54 þann 03. janúar 2005 - hvalur Karlarnir maettir til Budapest og a leidinni til Sarajevo med naeturlest i kvold :D Jaeja, tetta verdur heldur betur eftirminnilegt ferdalag, vid erum bunir ad dvelja i Tatra fjollunum i nordur Slovakiu undanfarna daga og a manudaginn gengum vid a 2503 m hatt fjall tarna i fjollunum, ekki slaemt tad. Eitthvad for tad illa i mig, eda klukkutima saunan tar a eftir eda bjorarnir 3 i saununni eda midur gedslegi maturinn sem eg at um kvoldid. Allavega for tad tannig ad eg spjo eldi og brennisteini beint i postulinsbollann (tennan sem sturta ma nidur ur) a herberginu okkar fra 6 um morguninn tar til rett fyrir hadegid. Tar med var ordid utsed med ad komast til Budapest tann daginn, neyddumst til ad fresta teim plonum um eitt daegur med ta innilegu von i hjarta ad auminginn eg yrdi ordinn godur ta. Jaeja, Kari for i vettvangsferd nidur i torpid Poprad baedi i leit ad nyju hledslutaeki fyrir myndavelina sina (hitt er i verkfalli) og til ad kanna lestarstodina og ferdir tvi tadan aetludum vid lestarferd til Budapest. A medan la eg i moki inna herbergi, kominn med hita og gjoadi augunum odru hvoru a sjonvarpsskjainn tar sem ymist voru til synis tjodlegt slovakiskt sjonvarpsefni eda hollywoodmyndir dobbadar yfir a slovakisku! Hvilik snilld. Allavega for tad tannig eftir nokkur svitakost i fyrrakvold, orfaar klosettferdir og tilstand ad vid komumst til Budapest med tremur lestum, ferdalagid tok einar 8-9 klukkustundir. Vorum samferda Astrala nokkrum (50), Shane Anderson ad nafni, sem gisti a Pension Encian somu daga og vid. Fraeddumst heil oskop um hagi Astrala, vedurfar og hvad ordin "bloody bastard" gaetu tytt otrulega margt Okkur totti nu ekki leidinlegt ad i einu stoppinu okkar a leidinni tokst ad finna Universal hledslutaeki sem virkar fyrir batteriid hans Kara og 3000 adrar typur af batterium Tad tarf bara sma natni og tolinmaedi til ad koma batteriinu rett fyrir i viraflaekjunum i taekinu (Tolinmaedi hefur ju aetid verid ein af Kara staerstu og mestu kostum:D ).Vid akvadum ad skera timann vid Budapest mikid vid nogl tvi timinn er alvarlega a trotum, allt of stutt eftir, ein nott var tvi sett a tann afangastad tott tad hafi nu berlega komid i ljos ad her megi stoppa i fullar tvaer vikur an tess ad lata ser leidast!! Jaeja, raeddum planid i gaerkveldi og komumst a asaettanlegt plan, sem hlytur to ad breytast med tid og tima Kemur tvi bara i ljos. En leidin liggur allavega sudur a vid, tokum lest hedan til Pecs klukkan 17:45 og holdum svo afram tadan til Sarajevo i somu lest, verdum maettir til Sarajevo um ca. 6 i fyrramalid Agaetis lestarferdalag tar a ferd, turfum sennilega ad stoppa tvisvar a leidinni til vegabrefseftirlits tar sem vid forum rakleidis i gegnum Kroatiu ![]() Vid hofum nu ekki sed mikid af Budapest en lofar godu tad sem af er, tarf tvimaelalaust ad koma hingad med Valdisi vid taekifaeri (og 20 feta gam!), morar allt i astfangnum porum I tilefni tess forum vid kari i romantiska gonguferd a sama stad og oll hin porin i gaerkveldi eda uppa Gellert haed, freistadi nu mikid ad stokkva a bak vid runna og semja astarljod til hvors annars en letum tad vera i tetta skiptid Utsynid yfir Budapest a dimmu Novemberkvoldi var rosalegt! Saum langt eftir Donanni, borgin var to ekki naut sin betur en islenskir baeir tar sem ekki hvert skumaskot var flodlyst og ljosmengad med 10.000 watta ljoskastara! Mjog temmilegt semsagt.Eyddum svo megninu af deginum i dag i rosalegri Ungverskri sundlaug / spa / sauna / heitum pottum / eimbadi / piparmyntueimbadi / nuddpottum og morgu fleiru a sama stad. Hvilik snilld! Husnaedid var fra tvi 1908 og flott eftir tvi! Tarna stodu gomlu karlarnir bara uti i laug og tefldu skak i kapp vid hverja adra, tveir ad tefla og tiu stodu i kring ad fylgjast med! Greinilega bannad ad sleppa tessu her i bae, maeli med tessari laug sem het Szechenyi Furdo, illa flott. Jaeja, aetla ad lata stadar numid her i bili og fara ad googla upp upplysingum um tjodgardinn plitvicka lakes i Kroatiu, aetlum okkur ad reyna ad heimsaekja hann a naestu dogum... Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kari skrifaði síðasta svar |
|
| 19:12 þann 27. 2005 - hvalur Polinsky tak Tha er madur staddur a netcafe vid ein adalumferdargatnamotin i midborg Varsjar, Pollandi.. ekki langt fra fljotinu Wisla, engin sma spraena tad. Tad virdist einkenna tessa borg ad tad sem stendur i turistabaeklingunum er rangt! Allavega roltum vid i gaer nidur gotu tar sem atti ad vera Gokart braut skv. einum baeklingnum okkar, tegar vid komum ad rettu husnumeri var tar ekkert nema sex shop og ibudir tar fyrir ofan. Vid akvadum ad tad vaeru litlar likur a Gokart braut i einu herberginu tarna.. I dag aetludum vid a staersta utimarkad i Evropu, tegar vid hofdum farid med lestum og tram og tilheyrandi vesi a stadinn, allt hardlaest og lokad. Jaeja, vid akvadum ad fara i utsynisturn i midri midborginni, roltum tangad og flaektumst tar um i leit ad retta innganginum, endudum einu sinni inni i biosal, einu sinni vid einhverja radstefnusali o.s.frv. tegar farid var ad styttast i uppgefna lokun gafumst vid tvi upp.. Ta akvadum vid ad fara a skidasvaedi sem atti potttett ad vera opid samkvaemt tessum lika fina baekling sem hafdi ratad i hendur okkar. Akvadum ad taka leigubil svo vid hefdum naegan kraft a skidin tegar tangad vaeri komid, neinei, flaektumst med leigubilnum i halftima, hann henti okkur svo ut i einhvern gard tegar vid fundum ekkert, tar rombudum vid a skidasvaedid sem reyndist svo vera hardlokad!!! Ekkert litid svekktir, vorum bunir ad sja fyrir okkur tvilika skidamennsku ad polverjarnir hefdu borid okkur i paradis a himnastolum fyrir skidamennsku okkar eintoma!! En neinei, turftum ad labba i "marga klukkutima" ut a naestu storu umferdar aed og taka tram i attina heim! Jaeja vid komum allavega vid a lestarstodinni a leidinni heim a herbergi og akvadum ad taka lest klukkan sex i fyrramalid til Krakow tar sem vid aetlum ad skoda Auswitz og Birkenau gefid ad vid voknum i fyrramalid Sjaum hvad seturE.S. Minni a austurlestarsiduna tar sem lesa ma frekari fregnir ritadar af Kauranum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar |
|
|
|