| 22:16 þann 10. apríl 2006 - hvalur Þá er pásan búin Sæl aftur Er búinn að vera í smá blog pásu þar sem Ásgeir var að skipta út hýsingunni sinni og ég taldi víst að ég kynni ekkert að modda þetta svo ég beið barasta eftir því að geirinn reddaði þessu en neinei, engin þjónusta eða vorkunn á þeim bænum í þetta skiptið Svo ég settist bara niður og fiktaði í þessu þar til tók að virka... Fiktaði meira að segja í php-inu Jæja, allavega er allt komið í samt horf núna og maður getur hafið ritstörfin á ný.Það hefur ýmislegt borið upp á borðið undanfarið, helst er þó að nefna að við erum komin með húsbíl en ég hyggst borga fyrstu greiðsluna í fyrramálið, 1600 evrur takk þegar allt er komið! Þá erum við búin að panta flug frá Vín til Parísar þann 16. og svo flug frá Standsted (London) til Keflavíkur að kvöldi 23. maí, svo þetta er allt að skýrast núna. Fyrir þá sem ekki vita erum við semsagt að leigja húsbíl fimm saman 2. til 15. maí, 6 manna flykki sem vegur hálft fjórða tonnið, verður gaman að leggja honum í miðborg mílanó. Við hættum að vinna 23. Apríl, þá megum við gista í íbúðinni í ca. viku og fara á skíði á jöklinum, svo hefst ferðalagið. Í dag er áætlunin að fara Vín-Feneyjar-Mónakó-Nice-Mílanó-Veróna-Garda vatn-Trieste-Rovinj-Plitvica Lakes-Grillpartý hjá Soran og Goran-Zagreb-Ljubliana-Vín (Austurríki-Ítalía-Suður Frakkland-Ítalía-Króatía-Bosnía-Króatía-Slóvenía-Austurríki. Eftir þennan tveggja vikna túr á svo að fljúga til Parísar, eyða þar nokkrum dögum með Unu, kíkja svo á Lundúnir og svo loksins heim!!! Reyndar er svo smá göngutúr í planinu þar strax 27.maí, eitthvað svona í norðvesturhorninu.. vonandi verður bara eitthvað úr honum...að maður verði semsagt ekki dottinn niður af ferðastressi eða kominn með fuglaflensu eða eitthvað álíka ![]() Nú eru semsagt bara örfáir dagar eftir í vinnunni, eða 11 og 2 eða þrír frídagar... Maður er svosem ekki mikið sár yfir að hætta í þessarri vinnu en leiðinlegt að hitta kannski aldrei aftur þetta ágætis úglengska fólk sem maður hefur verið að vinna með bróðurpart vetrar Jæja, maður verður þá kannski bara að reyna að vera virkari í næturlífinu í staðinn... hef ekki verið sá duglegasti hérna svosem, enda tæplega hægt að keppa við suma þá alduglegustu af Íslendingunum Þannig er nú það, 21. apríl er svo Mars 2068 sýning upp á jökli, kostar einar 32 evrur inn en mér skilst að það sé vel þess virði. Umrædd sýning er einskonar leikrit sem gríðarlegu fjármagni er til kostað svo hún hafi tilætluð áhrif, hef heyrt af því að í síðustu uppfærslu hafi verið farið með lifandi fíla upp á jökul og annað eins. Í ár er hinsvegar búið að leggja alvöru lestarteina á ísnum og til stendur að fara upp eftir með alvöru lest til að nota í sýningunni.. svo hef ég heyrt af því að alvöru orrustuþotur frá hernum eigi að gegna einhverju hlutverki.. fer þó varlega í að trúa því, það er búið að breyta einum snjótroðaranum í einhverskonar framtíðarvagn og... já bara ómögulegt að fara nánar út í þetta hérna.... en ef þið viljið lesa nánar eru upplýsingar hérhér á sölden síðunni.Jæja, er allavega búinn að bæta upp fyrir nokkra daga í bloggleysi.. farinn í beddann í bili.. þarf að vakna snemma til að drattast í bankann strax klukkan átta.. - hlakkar ekki lítið til að fara að komast heim á klakann!! - Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 16:48 þann 25. mars 2006 - hvalur Jamm og jæja Nú hygg ég að tími sé kominn í nýja færslu þar sem síðan eru liðin mörg ár :op Jæja, maður er bara búinn að vera í skýjunum undanfarna daga að prufukeyra nýju skíðin og bindingarnar Renni mér heim úr vinnunni upp á hvern einasta dag núorðið og geri tilraunir til að vakna árla morguns á frídögum og drífa mig upp í fjall til að nýta fríið sem best. Nú hefur tíðin heldur betur breyst, steinhætt að snjóa hérna niður í Sölden sökum hitastigs heldur farið að rigna í staðinn þegar ofankomu verður vart, og ekki er hægt að tala um neinn nýjan snjó upp á Giggi þessa dagana - má telja snjókornin á fingrum nokkurra handa Sökum hitastigshækkunar er líka færðin ofan af Giggi og heim orðin heldur slöpp, einskonar vatnaskíðun nánast að verða, hugsa að það séu ekki margir dagar eftir þar til ófært verður heim á rennslistækjum, grunsamlega mörg strá farin að stingast upp úr brautinni hér og hvar... En það reynir bara þeim mun meira á lærin að marka þel í níðþungum blautum snjónum ![]() Hér í Sölden er semsagt vorið að ryðjast inn og er Giggi meira farið að minna á sólarströnd en skíðasvæði þegar sólin skín því þá seljast upp í leigu þeir tæplega 200 sólstólar sem til eru uppfrá Annars er þetta allt saman bara kærkomin tilbreyting, þarf að huga að nýjum hlutum svosem að taka saman þessa sólstóla í lok dags þar sem leigjendum dettur að sjálfsögðu ekki í hug að framkvæma nokkurn slíkan verknað sjálfum ![]() Nú er farið að styttast verulega í annan endann á Sölden veru okkar Valdísar svo mikið er um pælingar varðandi hvað skal gera þegar henni lýkur. Eins og stendur er semsagt verið að spá í að rúnta um á húsbíl (ég og fjórar stúlkukindur semsagt) í bosníu, króatíu, ítalíu og suður frakklandi, skoða þar margt og mikið, fljúga svo til Parísar, London og svo loks heim á leið í lok Maí Sjáum svo bara til hvað úr verður En jæja, það er planað teiti í kveld þar sem vinir svíjanna okkar eru að mæta á svæðið og á að hrella þá aðeins með íslenskum sötursiðum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 06:17 þann 18. mars 2006 - hvalur Nú á ég Draum.. ..en er alveg að verða búinn með hann, Guðrún vinkona Valdísar mætti nefnilega með Drauma, Þrista og Djúpur, hvílík hamingja! Í fyrradag leigði ég mér bíl og rúntaði sem leið lá til Innsbruck, ca. klst. akstur hvora leið. Þegar ég kom inn í borgina beigði ég út af hraðbrautinni inn í Austur hluta Innsbruck, þar keyrði ég einhvern hring, sá rosalega verslunarmiðstöð,miklu stærri en örugglega kringlan og smáralindin samanlagðar. Ég reyndi að finna beygju í átt að þessu dóti en fyrr en varði var ég allt í einu aftur kominn upp á hraðbrautina og á leiðinni til Salzburg!!! Jæja, mér tókst að snúa við og koma mér inn í miðborgina, þaðan tókst mér svo að rata í austur hlutann þar sem ég fann þessar risaverslunarmiðstöðvar aftur, þar var þó engan telemarkútbúnað að finna - sem var aðalmarkmið ferðarinnnar! Eftir mikið búðarráp og talsverðan tíma í að villast í miðbænum tókst mér að finna aðallestarstöðina þar sem ég fann hana Guðrúnu aleina nýstigna út úr lest frá Salzburg Við hentum svo draslinu í bílinn í bílakjallaranum og töltum svo í miðbæinn í leit að útivistarbúðum. Allavega, við snæddum á Burger King, ég fann mér Rossignol B2 skíði og einhverskonar bindingar hvers nafn ég hef aldrei heyrt áður.. kem með það seinna, skíðin eru nefnilega í samsetningu hérna í Sölden ![]() Jæja, mikið kátur með að vera loks búinn að ráða fram úr þessum blessuðu skíðamálum ákvað ég að skella mér barasta í veikindi, hafði semsagt ætlað mér að sækja skíðin í gær og skíða heim úr vinnunni í dag en þess í stað fór ég nánast heim úr vinnunni í gær og nú ligg ég upp í rúmi í móki sennilega með hita og beinverki og ves en gaman!Nú er bara planið að láta sér batna og fara svo fljótlega að rölta á skinnum eftir vinnu bara upp Giggi brekkuna og renna sér svo niður, hver veit, kannski kemst maður í eitthvað form til tilbreytingar og þá kannski verður örlítill möguleiki á að klífa Wildspitze, hver veit
Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Katrín Kolka skrifaði síðasta svar |
|
| 09:32 þann 14. mars 2006 - hvalur Ég á mér draum... - að fara í Nýja Bíó á Akureyri með systkinum mínum, borða lakkrísreimar, grænan ópal og drekka íslenskt kók - að fara í 2-3 vikna ferðalag á bílaleigubíl um austurríki, ítalíu, suðurströnd frakklands, króatíu, slóveníu, fljúga svo til frans og til london - að fara í gönguferðir á Hornstrandir í fimm daga í lok maí - að fá nýju skíðin í hendurnar áður en ég yfirgef Sölden - að blár ópal verði settur í framleiðslu á ný - að einhverntíman losni ég við yfirdráttinn - að maður þrói þol gegn öllum óværum hérna og hætti að verða veikur sífellt - að ég komist að því fyrr en síðar hvað mig langar að verða þegar ég verð stór Allavegana, það eru nú ekkert slæmar líkur á mörgu af þessu svo maður er bara nokkuð sáttur... Í fyrradag var 28 stiga frost efst í brekkunni fyrir ofan Giggi svo það hefur verið rúmlega 20 stiga frost úti á verönd fyrir utan veitingastaðinn þar sem ég var að vinna við að abräuma eins og vitlaus maður Jæja, nú þarf ég að hunskast í vinnuna, er í fríi hálfan dag og þarf að mæta eftir hálftíma...Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar |
|
| 22:02 þann 09. mars 2006 - hvalur Enn einn frídagurinn að kveldi kominn Þá er því lokið og í fyrramálið hefst enn einn vinnudagurinn, en það er smá sjens að við fáum hálfs dags frí á sunnudaginn. Ég vaknaði snemma í morgun eða um átta leytið til að hringja í Intersport búðina þar sem ég hef lengi ætlað að kaupa skíði, þar á ég orðið ágætis félaga sem heitir Sax, út um gluggann sá ég líka meiri snjókomu en nokkurntíman áður á löngum lífsferli mínum nánast Svo ég reki samskipti okkar Sax frá nánast byrjun þá tjáði hann mér á þriðjudaginn fyrir rúmum tveimur vikum að bindingarnar sem hann pantaði fyrir mig kæmu eftir 3 daga! Jæja, eftir það hef ég verið tíður gestur í Intersport búðinni hinum megin í bænum, hjá Gaislakogl Tahl (hér í bæ eru þó 8 Intersport búðir takið eftir!), mér hefur sífellt verið tjáð að bindingin sé bara alveg að koma! Allavega, í fyrradag skrapp Sax til Salzburg og í gær hringdi ég í kall tvisvar seinni partinn og í bæði skiptin sagði hann að þær gætu barasta verið komnar eftir tíu mínútur.. Allavegana, ég hringdi semsagt í morgun og viti menn.. engar bindingar komnar til Sölden! Svo í dag var ég bara á Snowbike sem við leigðum í gærkveldi fyrir nachtschilauf, var asskoti gaman en þar sem færið var alveg hrikalega gott saknaði ég telemarkskíðanna gríðarlega! Þegar ljóst var orðið í morgun að ekkert Tel yrði markað þennan daginn greip mig nett þunglyndi í smá stund.. svo ákvað ég bara að skella mér með Adda upp í fjall um tíu leytið þrátt fyrir slælegt veðurútlit. Á leiðinni út úr húsinu rakst ég á skíðakennara, Kristof, sem tjáði mér að það væri Code 4 snjóflóðahætta svo það væri ekki sniðugt að fara Offpiste í dag. Við uppgötvuðum svo upp komnir að upp í fjalli hafði snjóað ca. 30 cm af jafnföllnum snjó - púðri gott fólk! Hvílík sæla, en samt hvílíkur sársauki að vera ekki á telemarkinu!! Allavega, við Addi gerðum gott úr þessu, þrusuðum í gegnum skaflana, Addi droppaði ágætis klett nokkrum sinnum og ég reyndi að mastera snjóhjólið sem best ég gat Snilldargræja. Eftir þrusugóðan dag skilaði ég snjóhjólum okkar strákanna niðrí bæ og náði í Draslið. Draslið er tréplata sem situr skrúfuð á spýtukubbi sem er skrúfaður á hálft afskorið skíði, þetta fann Addi í ruslatunnu upp í fjalli einhvern tíman fyrr í vetur Ég fór semsagt upp með síðustu kláfferðinni með Draslið og skíði handa Andreu.. Hauki var svo hent í næsta púðurskafl upp í vinnu þar sem karlinn var að vinna síðasta daginn sinn í dag. Svo renndi öll strollan sér niður í Obstl Hutte á miðri leið niður í bæ, þar var drukkið öl, ég pantaði einhverja reykta pylsu og brauð.. endaði með því að éta bara brauðið með sinnepi á og paprikuna sem fylgdi, líkaði pylsan ekkert... eins og að éta heila pepperónípylsu eintóma. Eftir ekki svo langan tíma renndum við okkur restina af leiðinni niður eftir, mér tókst að drepa Draslið, greinilega ekki gert fyrir svona sterkbyggða menn þegar ég var kominn niður síðustu brekkuna var skíðið orðið klofið að aftan og orðið grunsamlega sveigjanlegt framan við kubbinn (brotið). Á þessum tímapunkti, framan við Giggi kláfstöðina og Sport Riml tvístraðist hópurinn eitthvað, einhverjir röltu heim á leið og aðrir á Bistro og annað eins.. Við Valdís röltum bara heim í herbergi og horfðum á þætti 4-6 í þriðju seríu af OC ![]() jæja, nú er nóg komið af þessu bulli... Valdís farin að hrjóta hér við hlið mér, er reyndar alls ekkert óalgengt Annars tókst henni að næla sér í sýkingu í augun, nýjasta nýtt, en það verður vonandi horfið áður en hún giftir sig búin að fá eitthvurt læknadóp og allt að batna smátt og smátt...ZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzz..... Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Dísa skrifaði síðasta svar |
|
| 11:54 þann 04. mars 2006 - hvalur Svo segja bændur.. Þetta var snilldarreisa til Salzburg sem við fórum í, vorum lögð af stað um hálfsjö að mig minnir á Miðvikudagskvöldi og komin til baka um tíu leytið á Fimmtudegi.. hefði bara viljað lengri tíma, annars var þetta mjög hressandi. Við skoðuðum þetta helsta túristadót; hús þar sem Mozart bjó í nokkur ár, gamlan kastala, fyrrum sumarhöll, fórum í 20 mínútna túr um miðbæinn í hestvagni, dómkirkjan... Var allt saman mikil snilld.. mann langar bara að heimsækja borgina aftur að sumri til, í fullum blóma. Jæja, við vorum búin með helstu túristaskyldurnar um 3 leytið, þá snæddum við gríðargóðar flatbökur á veitingahúsi og svo tók við búðarrápið. Stelpurnar fóru inn í hverja fatabúðina á fætur annarri fyrir utan svo þessar 539 skóbúðir sem ég prófaði stólana í þar sem kerlurnar voru að leita sér að puma skóm Sá ekki eina einustu sportbúð, var heldur svekktur með það, svo árangurinn af þessarri verslunarferð af minni hálfu var lítill þrífótur fyrir myndavélina, nokkrar brækur og sokkar og eitthvað smádót...Væri hreint alveg til í að gera þetta svona annanhvern frídag, skilst að svipuð vegalengd sé til Munchen og svo komumst við að því að ekkert mál er að skreppa til Ítalíu, villtumst nefnilega örlítið á ferð okkar heim á leið og vorum nokkra kílómetra frá spagettílandinu þegar það uppgötvaðist töfðumst því um einar 50 mínútur þar, en það var nú bara gaman.Í dag er maður bara heima í veikindafríi þar sem ég var kominn með helvíti ljótan hósta í vinnunni í gær og er búinn að vera hálfveikindalegur síðan á miðvikudag, er til dæmis búinn að vera með hellu í hægra eyranu síðan ég fór heim úr vinnunni á miðvikudaginn að mig minnir, nett pirrandi sko!! Ég henti inn nokkrum myndum úr ferðinni á myndasíðuna til gamans. Á myndinni hérna til hliðar má svo sjá Andreu og Valdísi að máta Tirol hatta í túristabúð í Salzburg, vinstra megin er svo kerling að koma stormandi að rífa hattana bókstaflega af hausunum af stelpunum og öskra á þær :D Spurning hvort það var bara sá tími mánaðarins eða? Allavega hlupum við burtu eins hratt við gátum ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | andrea skrifaði síðasta svar |
|
| 22:09 þann 26. febrúar 2006 - hvalur Í dag var það ansi svart en svo kom ljósið Þessa dagana er veðrið ekkert til að öskra húrra yfir hérna í Sölden, er smá snjókoma allan daginn, sólin sést varla og því byrja allir dagar á góðum snjómokstri. Manni finnst svona þessa dagana að verið sé að reka veitingastaðinn á eins fáum starfskröftum og mögulegt er, álagið er skrambi mikið yfir álagstímann(ca. frá 12-14) og svo hefjast daglegu þrifin smátt og smátt. Jæja, allavega verður maður stundum nett pirraður á hvað mesta álagstímanum.. í dag var það semsagt svona þegar ég fékk skyndilega þessa snilldarhugdettu sem er komin í undirbúning og verður að veruleika næsta miðvikudagskvöld. Planið er semsagt að fara á bílaleigubíl frá Sölden til Salzburg (ca. 2,5 tími í keyrslu) á miðvikudag eftir vinnu, gista þar og svo keyra til baka á fimmtudag. Við erum búin að ganga frá bílaleigubílnum og erum að plana restina... mann hlakkar ekkert lítið til, við Valdís erum búin að vera með það sama fyrir augunum síðan um miðjan desember svo það er alveg kominn tími til að breyta til aðeins.. Við förum semsagt fjögur í þetta roadtrip, ég, valdís, ólöf og andrea. Nú hefur maður allavega eitthvað til að hlakka til, þó við þurfum að vísu að fórna góðum degi á skíðum Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar |
|
| 20:06 þann 25. febrúar 2006 - hvalur Merkilegir þessir útlendingar Hef tekið eftir því hérna að fólk virðist almennt ekki hafa upplýsingar á reiðum höndum um veðrið þá stundina eða næstu daga.. minnir mann á óumdeilanlega veðuráráttuna sem innbyggð er inní nánast hvern Íslending. Mér finnst frekar merkilegt að þegar ég spyr heimamenn á morgnana hvernig veðrið eigi að vera þann daginn eða snjóalögin næstu dagana að þá fæ ég sjaldnast afgerandi svar byggt á veðurfréttum kvöldið áður. Eins með hitastigið, það er sjaldnast sem maður getur komist að því auðveldlega hversu heitt er úti... Maður er hálf hauslaus stundum þegar svona stendur á, held að ég geti kennt upprunanum þar um ![]() Lítið í fréttum annars, hef enn ekki fengið skíðin, var tjáð í vikubyrjun að ég fengi þau í hendurnar á fimmtudag en þegar ég kíkti við í búðinni þá var mér sagt að bindingarnar kæmu kannski á mánudag þriðjudag, er farinn að halda að tímabilið verði búið þegar ég loksins fæ þetta í hendurnar!! Eins gott að þetta séu almennilegar bindingar!! Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
| 23:12 þann 23. febrúar 2006 - hvalur Úff, löngu komið fram yfir háttatíma hérna megin ballarhafsins! Var að henda inn albúmi á myndahluta síðunnar, myndir sem mest hafa verið moddaðar í nýju fínu myndavélinni okkar Valdísar, sumar heppnast vel og aðrar illa, en tók þetta allavega saman og henti á netið. Við áttum langþráð frí úr vinnu í dag og jah, nú er það búið, varði ekki lengi Jæja, nýttum nú daginn ágætlega svosem, sváfum lengur en vanalega, til 10 ca. fórum þá upp í brekkur, valdís á sínu bretti og ég á leigubretti sem ég fékk frítt í gær þar sem bindingarnar mínar á nýju skiðin voru ekki komnar, áttu að koma í dag um hádegisleytið. Ég ákvað því um miðjan dag að fara niður í bæ og sækja nýju fínu skíðin en neinei, ekki bar á neinum nýjum bindingum svo ég mátti hypja mig upp í fjall á ný og bretta meir.. vorum mjög heppin með veður í dag, glampasólskin framan af og fínt en snjórinn aftur á móti orðinn aðeins brúkaður.Eftir fjallið kíktum við svo á heldur lítilfjörlegt carnival eitthvað, þar var allt fullt af tíu ára krökkum í öskudagsbúningum um kvöldmatarleytið.. það var því haldið á bistro í smá tíma og svo snemma heim þetta kveldið. Nú er ég svo búinn að vera að brasa í þessu nýja myndaalbúmi sem komið er á alvefinn, ef þið verðið vör við að eitthvað virki ekki, látið mig endilega vita! ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzz.... Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
| 22:47 þann 21. febrúar 2006 - hvalur Búinn að vera langur en góður dagur :) Nú liggur maður hér upp í rúmi, að verða mettur af Sæmundi sem ég fékk sendan ásamt öðru góðgæti frá fyrrum sambýlingum mínum úr Bergþórugötunni. Mmmm hvað allt frá Íslandi bragðast vel þessa dagana! Í gær þegar við mættum í vinnuna var ca. 30-40 cm jafnfallið púður liggjandi yfir öllu, svo þann daginn var gríðarlegur mokstur og snjóblástur, í dag hinsvegar hafði snjóað ca. 2 mmm og þurfti því ekkert að gera nema græja borðin og bekkina á sinn stað. Veðrið var hinsvegar yndislegt, megnið af deginum var maður bara úti á stuttermabolnum að abräuma og brasast.. Dagurinn var ósköp venjulegar nema það að þessa dagana eru hérna á svæðinu einir 120 íslendingar að þvælast svo maður er að koma liðinu talsvert á óvart m. því að spyrja á íslensku hvort megi taka af borðinu Í tilefni þessarra gesta fengum við skífuþeytinn á neðri úti-eisbarnum á Giggi til að spila lagið hennar Sylvíu nætur fyrir okkur og hina Íslendingana ![]() Um sexleytið mættum við svo í fussball með Serbunum sem vinna á Giggi og nokkrum fleiri(var búinn að prófa það áður en þá var rifist í 1,5 klst og spilaður fótbolti í 0,5 klst!), stelpurnar voru búnar að vinna í því allan daginn í vinnunni að fá að koma með og fengu það svo vegna þrjósku sinnar trúi ég. Fótboltinn fór alveg merkilega vel fram og lítið sem ekkert rifist, ég var í markinu bara og gekk bara tiltölulega vel sem slíkur. Er skrambi feginn að þessi siður sé kominn á, ætlum semsagt að hittast alla Þriðjudaga og spila fótbolta í Freizeit Arena þar sem aðstaðan er alveg hreint ágæt bara til fussballs spils. Eftir boltann kíkti ég heim í sturtu, strunsaði svo á Friends í einn bjór og svo á Írskan pöbb þar sem hinir strákarnir sötruðu bjór og horfðu á fótboltaleiki í imbanum... Alveg hreint ljómandi dagur semsagt, fæ svo sennilega nýju skíðin með nýju 7tm tour bindingunum á fimmtudaginn Jæja, farinn að lulla í bili...Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 21:27 þann 19. febrúar 2006 - hvalur Jamm og jæja sagði maðurinn Hér hefur allt sinn vanagang þessa dagana, þó brugðum við okkur í Rodel á föstudagskvöldið, var ekki lítið gaman. Við Íslendingarnir og svíjarnir tveir af Giggi og allir af Svartzkogl fórum í Rodel, lögðum af stað um áttaleytið með leigubíl úr Sölden. Byrjaði ágætlega bara, keyrðum eins og leið lá upp dalinn að Gletscher, þar til við beigðum út af malbikaða veginum og inn á sleðabrautina, þá tók við rallý. Farartækið var Volkswagen Transporter m. 10 manns innanborðs, enginn óþarfi svosem negld vetrardekk eða keðjur með í för. Vegurinn lá í gegnum skóg í allskonar hlykkjum, hólum og hæðum, þannig keyrðum við í lengri tíma, allt tekið á ferðinni bara. Þurftum að stoppa einu sinni á leiðinni til að draga upp annann taxa sem stóð útí skafli, fór greinilega full hratt niður á við. Þegar upp var komið gengum við inn á frekar afskekktan bar þar sem bara við vorum fyrst í stað, þar var ölið drukkið úr líters krúsum og fjörið eftir því Þegar allir voru orðnir vel hressir, einum 3 tímum síðar fóru menn að tygja sig út og útvega sér trésleða, á leið okkar út úr húsinu var Arnar togaður inn á veitingastaðinn á efri hæðinni þar sem þýsk dama krotaði á hann allan í framan m. öskudagsmálningu, ég reyndi að frelsa hann en var þess í stað krotaður þeim mun meira í framan. Niðurferðin gekk eins og í sögu hjá mér, var fyrstur niður þar sem ég var alltaf að reyna að ná Svenna sem reyndist svo bara vera talsvert aftar í röðinni ![]() Eftir sleðaferðina tók við annar rallýakstur í bæinn, bílstjórarnir voru nett klikkaðir, og þar sem maður var ekki alveg í ástandinu fyrir slíka bílferð rölti ég bara heim í rúm þegar í bæinn var komið, einhverjir fóru hinsvegar á djammið Jæja, er að glápa á Shaft á þýsku, ætla að klára hana og leggja mig svo fram að enn einum vinnudeginum..Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
|
|