12:02 þann 27. maí 2006 - hvalur
Það var nú alveg kominn tími á heimferð!
     Nú er fyrsta í vinnu lokið, var þó frekar stuttur, í dag á svo að kíkja í netta kosningavinnu, fyrir björgunarsveitina, þar sem Bassi gerðist svo ljúfur að láta í sér heyra í gærkveldi. Annars er maður að strita við að þvo óhreinu fötin frá því í úglandinu, nóg er af þeim.. held að ég sé búinn að þvo 2 vélar og Begga búin að stelast til að þvo 2 líka.. hrikalega þægilegt að nota svona þurrkigræju..stefni á að eignast sjóleiðis einn góðan veðurdag..
Merkilegir þessir árans pólitíkusar, hata pólitík! En maður getur ekki staðið hjá, verður að reyna að mynda sér tiltölulega gáfulega skoðun og nýta atkvæði sitt. Horfði í gærkveldi á frambjóðendur flokkanna hérna á Akureyri ræða málin á Aksjón og það er nú bara ekkert um auðugan garð að gresja (held að þetta sé rétt ritað). Finnst svo óþægilegt að þetta lið oti að manni óteljandi loforðum um allt og ekkert og standi svo við minna en helminginn af því! Hvílík vitleysa, fjárans stjórnmál!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
18:17 þann 25. maí 2006 - hvalur
Athugid
     Kominn heim!! : )
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
17:43 þann 20. maí 2006 - hvalur
Farid ad siga a seinnihlutann i utlandinu
     Nu er TEAM WOHNMOBIL maett til Lunduna, vistin i Paris var frabaer thokk se Unu : ) Litum a helstu turistastadina t.e. Eiffel turninn, Notre Dame, adra kirkju hvers nafn eg kann ei ad rita rett, heill dagur for i Versali, Sigurbogann og svo audvitad ibudin hennar Unu sidast en ekki sist : ) Thetta er buin ad vera hrein snilld allt saman, erum nu a Hosteli beint a moti Hotelinu sem Gulli og Eydis gistu a sidasta haust, thegar vid Karinn hittum thau a ferdum okkar : ) I kvold er planid ad kikja a pobb med islendingafelaginu og fylgjast med Eurovision, thraelspennandi an efa thratt fyrir midur skemmtileg urslit a fostudagskvoldid (thess ma geta ad vid horfdum a forkeppnina a alheimsvefnum). A morgun verdur svo haldid afram turistabroltinu....
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Lilý skrifaði síðasta svar

 
10:06 þann 16. maí 2006 - hvalur
Wohnmobil - Vín - París - London - Keflavík
     Nú hefur wohnmobil verid yfirgefinn, tók nú ekki lítid á ad skila honum af sér! Processid átti ad taka ca. klukkutíma en endadi med thvi ad vid Gudrún eyddum einum 5 klst í ad koma honum til skila og okkur til baka! Vitleysingar, skýri frekar frá thví thegar ég hendi inn ferdadagbókinni minni thegar ég er kominn heim...
Nú erum vid semsagt komin til Vínar, gistum thar á sama hosteli og sídast og eigum svo flug til Parísar um fimm leytid í dag, förum ad huga ad thví hvad úr hverju ad taka lest á flugvöllinn hédan af lestarstödinni Westbahnhof : ) Í fyrradag yfirgáfum vid sveitasaeluna hjá Zoran og Goran í Bosníu, thau stjönudu vid okkur eins og kóngafólk og ég vildi ad vid hefdum getad verid thar lengur!! Gömlu, foreldrar Zoran búa vid algjöran sjálfsthurftarbúskap, eru med allt sem thau thurfa akkurat tharna og eins og Zoran sagdi vantar thau í raun ekkert nema salt og pipar frá umheimnum, annars eru thau algjörlega sjálfstaed! Mjög ólíkt heimilum á Íslandi í dag sem framleida sjaldnast nokkud annad en peninga sem eru óneitanlega ekkert nema haegt sé ad skipta á theim og afurdum annarra...hmmmm
Keyrdum nánast alla leid til Vínar thann daginn spikfeit og útbelgd eftir ad hafa étid á okkur gat hjá Nevenku (vann á Svartzkogl) og drukkid ca. 30 lítra af gosi hvert (hún fyllti á glösin eins og hún fengi borgad í blídu fyrir thad!!). Var thví nóg af pissustoppum thann daginn, Gudrún er einna verst hvad thad vardar, virdist bara vera med fingurbjörg í stad thvagblödru : p Vid renndum semsagt inn í Vín um hádegisbilid í gaer, kíktum á stóran verslunarklasa í úthverfunum, keypti thar thessa lika finu myndavel handa honum pápa og vid eyddum fullt af hundradköllum (evrum vel ad merkja!!). Dagurinn fór svo í ferjun á farangri á hostelid, thrif á bílnum og svo jú ad skila honum eins og ég minntist ádur á!! Dagskráin í dag er svo hálfgerd ómynd, bara ad bída eftir flugi til Parísar, hitta Unu sem ad mér skilst er búin ad skipuleggja hverja millisekúndu tíma okkar í París : ) Var víst ekkert of sátt í morgun ad heyra ad vid hefdum enn enga gistingu í París, en thad reddast ; ) Finnum eitthvad í Information á flugvellinum, hlýtur ad vera : p
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
19:31 þann 06. maí 2006 - hvalur
Franskt lyklabord, thid afsakid ; /
     Hef thetta stutt i thetta skiptid, erum komin til nice, buin ad fara til vinar, feneyja, pisa, ,monaco, nice og i dag vorum vid i nice : ) Tökum thetta bara a ferdinni thessa dagana, sest best a thvi ad vid erum buin ad keyra eina 1400 km taepa Jaeja, engin tholinmaeda lengur i thetta lyklabord!!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Haukur skrifaði síðasta svar

 
13:39 þann 01. maí 2006 - hvalur
Fyrsta legg lokid, Sölden - Vín
     Thá erum vid maett til höfudborgar Austurríkisins, Vínar thad er. Hér er komid hásumar bara, allt í blóma, grasid ordid idagraent og lokkandi. Hitastigid naer thó ekki alveg stuttbuxna og stutterma stiginu en nánast, thegar sólin naer nidur á milli húsanna er alltof heitt til ad klaedast jakka. Í gaerkveldi kvöddum vid Sölden, tókum leigubíl til Ötztal hvadan vid tókum naeturlest til Vínar (00:08-07:33). Get nú ekki sagt ad ég hafi sofid mjög vel í skrambans lestinni... fengum ekki einu sinni svefnklefa og enn er óljóst hvort vid settumst í reykklefann eda reyklausa, fólk reykti bádu megin glersins nefnilega : ) Á lestarstödinni tókst okkur ad finna gistingu fyrir nóttina, stelpurnar röltu á gistiheimilid og ég dróst á eftir med gula 500 lítra North Face pokann á bakinu, stútfullan af drasli og ad ég held blýi sem Valdís virdist hafa trodid í hann á einhverjum tímapunkti!!! Erum svo búin ad vera á röltinu um midbaeinn sídan í morgun, fórum í hestvagnaferd, kíktum á dómkirkjuna, McDonalds, o.fl. Nú er stefnan svo sett á ad rölta nidur ad Dóná, jafnvel fá sér sundsprett ef stelpurnar eru game í thad ; ) Svo förum vid sennilega í bíó á Ice Age 2 á ensku!!! eftir Subway og Dónárbadid ; ) Á morgun fáum vid svo vonandi húsbílinn og brennum thá sudur áleidis til Feneyja : ) Yfir og út! Kvedjur úr sumrinu í Vín.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar

 
17:34 þann 28. apríl 2006 - hvalur
Alveg að líða að brottför frá Sölden
     Nú erum við skötuhjúin orðin netlaus með meiru... fékk að skjótast á netið hjá vinkonum mínum úr HSSK, Rögnu og Höllu ; ) (Sunnlendingar). Í dag fórum við með haug af drasli á pósthúsið og sendum það heim, kostaðið litlar 200 evrur samtals fyrir mig og Valdísi að senda ca. 65 kíló af nauðsynjum heim til Íslaralands, hvílík fúlga fjár! en það hefði nú líklegast kostað talsvert meira að fara með þetta í yfirvigt í flugvélarnar : )
Hér er semsagt bara eftir restin af deginum í dag, morgundagurinn og svo sunnudagurinn, tökum sennilega næturlest til Vínar um miðnættið á Sunnudagskvöld... Þá er planið að skoða Vín á einum degi og renna svo á húsbílnum til Feneyja annan Maí : ) Er allt að bresta á og maður er nett ánægður með að það sé frá að senda draslið heim, er orðinn aðeins léttari á fæti og minna stress.
Ákváðum svo í dag að slaufa Wildspitze ferðinni í bili, Guidinn sagði að við myndum bara reyna aftur á næsta ári ; ) Ástæðan var semsagt úrkomuspá og leiðindi... nenntum ekki að labba uppeftir í einhverri golfkúlu og sjá semsagt bara hvítt til þess eins að ná 3700 metrunum.

Eftirskrift: Nú blasir semsagt við netleysi í ófyrirséðan tíma svo ef þið þurfið að ná af mér tali getið þið reynt annaðhvort í íslenska númerið mitt eða í það austurríska til að byrja með, kem til með að nota það á meðan inneignin endist allavega (þeir sem ekki hafa það geta þá nálgast það hjá mömmu og pabba ; ) ). Reyni svo að henda inn bloggi öðru hvoru þegar ég hitti á netkaffi...
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
08:30 þann 27. apríl 2006 - hvalur
2902 metrunum náð : ) Söldenkogl
     Gærdagurinn var alveg hreint magnaður, ég, Halla og Ragna röltum upp á 2902 m háan topp sem gnæfir yfir bæinn (1368m) að austanverðu. Við lögðum af stað frá Freizeit Arena (íþróttahöllinni) rétt fyrir níu, vorum komin á toppinn um hálftvö og svo niður aftur um hálffimm. Veðrið var alveg ágætt, var þó skýjað á toppnum svo þar var lítið skyggni en aðeins neðar gátum við horft yfir Sölden að mestu. Hvílík snilld að taka svona gott labb í úglandinu! Veðrið toppaði þó engan veginn Tatra labbið okkar Kára en við toppuðum hæðina !! Haha Kári, hí á þig : p

Zoran Hausmeister ofan af Giggi tókst svo að plata mig til að kaupa mér 160 stk. verkfærasett (11 kg) á 130 evrur, setti mynd hérna við hliðina ; ) Nú get ég skrúfað allt sundur og saman : ) svo ekki sé nú minnst á að laga húsbílinn þegar hann bilar á leiðinni!! En nú þarf maður að fara að huga að því að pakka og senda draslið heim á morgun sennilegast bara.. í augnablikinu lítur heldur ekki út fyrir neinn Wildspitze tind í þetta skiptið : ( Ömurlegt, þar sem veðurspáin er frekar leiðinleg, rigning og leiðindi, verður að öllum líkindum ekkert úr því.. eeeen nú þarf að ná í síðasta launaseðilinn og hefja pakk...
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | addi skrifaði síðasta svar

21:33 þann 25. apríl 2006 - hvalur
Nú er gaman að lifa!!!
     Jæja, kominn tími á blog en ég nenni ekki að hafa það langt samt í þetta skiptið. Við erum semsagt komin í frí, loksins loksins, erum búin að vera í afslöppun síðan á föstudag. Skíði, lokahóf og almennt chill. Svo þarf maður að fara að huga að pökkun hvað úr hverju, býst við að við förum héðan á sennilega sunnudagskvöld, á morgun ætlum ég, Halla og Ragna og kannski Martin að rölta áleiðis á 2900 m tind, kemur í ljós hvort stelpunum tekst að draga mig alla leið... Svo verður sennilega rölt á Wildspitze á föstudag-laugardag ef veður leyfir.
Hver veit svo nema við kíkjum á fyrsta pýramídann sem fannst í evrópu sem verið er að grafa upp í bosníu : ) Ef tími gefst til í ferðinni þ.e. ; ) Ætla að sofa í hausinn á mér núna svo stelpurnar þurfi að bera mig styttri vegalengd á morgun : D
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | addi skrifaði síðasta svar

 
21:12 þann 13. apríl 2006 - hvalur
Að baka vandræði
     Jæja, ég fékk Soran (Hausmeister á Giggi) til að leyfa okkur að misnota bakaraofninn í íbúðinni hans í Längenfeld (ca. 15 mín akstur í norður), ég, Guðrún, Valdís og Andrea fengum því far með starfsmannabílunum í lok vinnudags (stelpurnar reyndar í fríi í dag) til Längenfeld þar sem við kíktum í Mpreis í verslunarleiðangur og röltum svo heim til Sorans með nokkra fulla haldapoka : ) Soran og Drífa búa í íbúð í starfsmannahúsi í Längenfeld með börnunum sínum þremur; Söru, Aleksander og Davíð. Soran ætlar einmitt að grilla handa okkur heilt svín þegar við komum að heimsækja hann til Bosníu um miðjan maí : ) Í íbúðinni þeirra er semsagt bakaraofn sem við höfum ekki. Við eyddum því kvöldinu þar við bakstur, Valdís og Guðrún byrjuðu á úrvals skúffuköku sem heppnaðist alveg ljómandi, við borðuðum megnið af henni á meðan tilraunir með marensinn stóðu yfir : ) Þetta hófst semsagt allt með því að ég ætlaði mér að fá að baka Marengs tertur hjá Soran í tilefni páskanna... Gekk nú ekki svo vel að finna réttu bakstursvörurnar í kjörbúðinni og ég ætla að kenna því um lélega útkomu fyrsta skammtsins : ) Náði semsagt ekki að þeyta fyrsta skammtinn svo nokkurt vit væri svo ég reyndi ekki einu sinni að baka þá súrmjólk. Skammtur nr. 2 var aðeins skárri en þá þeytti ég eggjahvítuna fyrst og setti svo sykurinn út í og fékk þá lánað talsvert fínna salt hjá Drífu, þetta gaf aðeins betri raun en samt varð þetta í raun bara að þykkri súrmjólk! En ég hellti þessu í mót og henti inn í ofn, þá ákvað Drífa þó að prófa skammt nr. 3 og að sjálfsögðu tókst henni með sín kvengen að fá út nákvæmlega réttu þykktina! Svo hún þurfti engin mót, skellti þessu bara á smjörpappír og kom bara vel út. Svo nú á ég tvo frekar blauta og seiga marens botna og tvo nokkuð góða.. spurning hvort ég eigi að gera eina góða og eina vonda köku... hmmmm. Allavega, á Laugardaginn er svo planið að bjóða í smá kökugill eftir vinnu, ætla að setja mars ofan á, og rjóma með kókosbollum og jarðarberjum á milli. MMmmmm.. hlakkar til. Einhvernveginn verður maður að halda upp á páskana! Svo langar mig líka að dobbla liðið til að fara til Längenfeld í næstu viku, kaupa kjöt í Mpreis og grilla á einhverju almenningsgrilli sem þar á víst að vera.. má jafnvel hafa smá öl í annarri og kótilettuna í hinni ; ) Kemur í ljós hvort eitthvað verður úr því, en nú ætla ég að fara að hlaða batteríin því á morgun er ég í fríi, planið er að rífa sig upp fyrir allar aldir og drulla sér á skíði!! Kemur svo í ljós hvort það tekst, hefur verið svo asskoti gott að lulla eins lengi og mögulegt er á morgnana undanfarið, alltaf á síðustu stundu bara..
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Skotta skrifaði síðasta svar

 
22:16 þann 10. apríl 2006 - hvalur
Þá er pásan búin
     Sæl aftur Er búinn að vera í smá blog pásu þar sem Ásgeir var að skipta út hýsingunni sinni og ég taldi víst að ég kynni ekkert að modda þetta svo ég beið barasta eftir því að geirinn reddaði þessu en neinei, engin þjónusta eða vorkunn á þeim bænum í þetta skiptið Svo ég settist bara niður og fiktaði í þessu þar til tók að virka... Fiktaði meira að segja í php-inu Jæja, allavega er allt komið í samt horf núna og maður getur hafið ritstörfin á ný.

Það hefur ýmislegt borið upp á borðið undanfarið, helst er þó að nefna að við erum komin með húsbíl en ég hyggst borga fyrstu greiðsluna í fyrramálið, 1600 evrur takk þegar allt er komið! Þá erum við búin að panta flug frá Vín til Parísar þann 16. og svo flug frá Standsted (London) til Keflavíkur að kvöldi 23. maí, svo þetta er allt að skýrast núna. Fyrir þá sem ekki vita erum við semsagt að leigja húsbíl fimm saman 2. til 15. maí, 6 manna flykki sem vegur hálft fjórða tonnið, verður gaman að leggja honum í miðborg mílanó. Við hættum að vinna 23. Apríl, þá megum við gista í íbúðinni í ca. viku og fara á skíði á jöklinum, svo hefst ferðalagið. Í dag er áætlunin að fara Vín-Feneyjar-Mónakó-Nice-Mílanó-Veróna-Garda vatn-Trieste-Rovinj-Plitvica Lakes-Grillpartý hjá Soran og Goran-Zagreb-Ljubliana-Vín (Austurríki-Ítalía-Suður Frakkland-Ítalía-Króatía-Bosnía-Króatía-Slóvenía-Austurríki. Eftir þennan tveggja vikna túr á svo að fljúga til Parísar, eyða þar nokkrum dögum með Unu, kíkja svo á Lundúnir og svo loksins heim!!! Reyndar er svo smá göngutúr í planinu þar strax 27.maí, eitthvað svona í norðvesturhorninu.. vonandi verður bara eitthvað úr honum...að maður verði semsagt ekki dottinn niður af ferðastressi eða kominn með fuglaflensu eða eitthvað álíka

Nú eru semsagt bara örfáir dagar eftir í vinnunni, eða 11 og 2 eða þrír frídagar... Maður er svosem ekki mikið sár yfir að hætta í þessarri vinnu en leiðinlegt að hitta kannski aldrei aftur þetta ágætis úglengska fólk sem maður hefur verið að vinna með bróðurpart vetrar Jæja, maður verður þá kannski bara að reyna að vera virkari í næturlífinu í staðinn... hef ekki verið sá duglegasti hérna svosem, enda tæplega hægt að keppa við suma þá alduglegustu af Íslendingunum Þannig er nú það, 21. apríl er svo Mars 2068 sýning upp á jökli, kostar einar 32 evrur inn en mér skilst að það sé vel þess virði. Umrædd sýning er einskonar leikrit sem gríðarlegu fjármagni er til kostað svo hún hafi tilætluð áhrif, hef heyrt af því að í síðustu uppfærslu hafi verið farið með lifandi fíla upp á jökul og annað eins. Í ár er hinsvegar búið að leggja alvöru lestarteina á ísnum og til stendur að fara upp eftir með alvöru lest til að nota í sýningunni.. svo hef ég heyrt af því að alvöru orrustuþotur frá hernum eigi að gegna einhverju hlutverki.. fer þó varlega í að trúa því, það er búið að breyta einum snjótroðaranum í einhverskonar framtíðarvagn og... já bara ómögulegt að fara nánar út í þetta hérna.... en ef þið viljið lesa nánar eru upplýsingar hérhér á sölden síðunni.

Jæja, er allavega búinn að bæta upp fyrir nokkra daga í bloggleysi.. farinn í beddann í bili.. þarf að vakna snemma til að drattast í bankann strax klukkan átta..
- hlakkar ekki lítið til að fara að komast heim á klakann!! -
     Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >