00:01 þann 11. ágúst 2006 - hvalur
Það held ég nú, kominn myndaskammtur
     Það kemur stundum fyrir að maður nennir einhverju og nú er svo. Henti inn nokkrum myndaskömmtum úr úglandinu. Fyrir það fyrsta setti ég inn myndir af því þegar ég, Halla og Ragna röltum upp á Söldenkogl í Ötztal, snilldartúr þar á ferð, synd að við fórum ekki á Wildspitze þó : ( En jæja... Svo henti ég inn myndum af húsbílaferðalaginu í þremur skömmtum.. Getið kíkt á þetta ef þið hafið áhuga.. látið mig líka vita ef eitthvað virkar ekki, gerði þetta í smá flýti. Annars er maður bara að vinda ofan af sér eftir versló og lifa í rólegheitunum þessa dagana. Hugsunin snýst mest í kringum tilhlökkun varðandi yfirvofandi flutninga og málefni þar að lútandi. Stefnum semsagt á að renna suður á land að ná í dót og versla í Ingimars Kauphöll Einars Akureyrings : p um aðra helgi þ.e. 18-20 ágúst, svo eigum við bara að fá slottið í Drekagilinu upp úr því, Valdís verður byrjuð í skólanum og ég byrja þarna í vikunni, þann 24. nánar tiltekið að ég held allavega... jæja sofa í haus..
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Þórunn Edda skrifaði síðasta svar

13:06 þann 06. ágúst 2006 - hvalur
Jibbí gaman, versló loksins að verða búin!
     Sit hér upp í Útilífsskóla og bíð eftir að plöstunarvélin hitni.. er að plasta ratleik fyrir tjaldgesti og ætla svo að taka röltið og dreifa honum inn í Kjarna snöggvast.. Annars er helgin búin að ganga fínt, brjáluð vinna en engir stórárekstrar eða vesen.. bara þetta sama gamla.
Elvar og Ragna fengu inngöngu á svæðið í gærkveldi og höguðu sér tiltölulega skikkanlega, ræddi við þau um skíðaferð í lok febrúar og það gæti bara orðið margmenni! Spurning um að fara bara að panta gistingu og flug áður en verðið hækkar...
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
21:47 þann 31. júlí 2006 - hvalur
Ár og dagar líða
     Úff, veit bara ekkert hvað á að rita í þetta box... Hef verið frekar duglegur síðustu daga að gera eitthvað af viti.
- Rölti upp á Súlur eftir vinnu einn daginn, veðrið var frábært og útsýnið út fjörðinn.. fékk reyndar örfáa regndropa í lokin en snilldar ganga/hlaup.
- Fótbolti með liðinu upp á Hömrum.
- Fór í bíó á Pirates of The Caribbean, snilldar ræma þar á ferð.
- Ættarmót í Borgarfirði fyrir rúmri viku...
- vinna vinna vinna

Svo er sumarið bara að verða búið, alveg merkilegur andsk... Mann svíður alltaf meir og meir með árunum að eyða sumrinu svona í vinnu í stað ferðalaga... væri til dæmis alveg til í að ferðast á puttanum, hjóli eða rútu um Ísland í 1-2 mánuði!! Væri ekki lítið gaman..

Nýjasta nýtt er að við Valdís erum að spá í skíðaferð í vetur til Sölden og næstu skíðasvæða, kannski St. Anton... Væri flottast ef fleira fólk kæmi með t.d. Sölden gúbbar, otuðum þessu að Lilju líka og held hún sé að vinna í að sannfæra sig og Vagga um að fara : )
     Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
23:08 þann 19. júlí 2006 - hvalur
Nú er að duga eða drepast!!
     Halló halló, nú er allt að gerast. Mig langar að biðja þær sálir sem rekast inn á þessa síðu að breiða út boðskapinn... Nú stendur yfir fjáröflun til styrktar heimili / skóla í Mósambík fyrir fötluð og/eða munaðarlaus börn. Magga konan hans Ásgeirs er annar skipuleggjara og kom í dag auglýsing í dagskránni með helstu upplýsingum. Málið er semsagt að þar til 26. Ágúst rennur upp er planið að safna húsgögnum og munum úr bílskúrum fólks og annars staðar að og svo þennan indælisdag í Ágústmánuði á að halda flóamarkað og skranmarkað upp á Hömrum og rennur allur ágóðinn í þetta verkefni!! Endilega breiðið út orðið... henti áðan saman tölvupósti til allra sem ég hef á lista á hotmailinu mínu. Heimasíða verkefnisins er http://www.123.is/gott, endilega kíkið á þetta!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
15:19 þann 09. júlí 2006 - hvalur
Loksins drattaðist maður í að gera eitthvað
     Fékk hugdettu í gærkveldi um tíuleytið og lét af því verða, ekki oft sem það gerist þessa dagana... Rétt fyrir tólf rölti ég út um útidyrnar með bakpoka, dýnu og svefnpoka á bakinu... Ætlaði upp á Súlur og gista upp á mýrum eftir það. Planið breyttist þó aðeins því ég var full chillaður, tók milljón aukakróka á leið minni upp á Hamra, upp í Gamla og lengra uppeftir. Um þrjúleytið henti ég pokanum frá mér og skreið ofan í svefnpoka... hvílík snilld sem það er að sofa svona undir berum himni... þarf að gera þetta oftar!! Það hélst svo þurrt langt frameftir nóttu þar til í morgun að ég neyddist til að troða hausnum ofan í bakpokann til að forðast rigninguna í andlitið!! Ánægður með að hafa fattað upp á þeirri lausn þó ; ) Ég svaf þó heldur lengur en ég áætlaði, um hálfeitt, eittleytið rölti ég því af stað í átt að Fálkafelli og heim : )

Mikið er ég hamingjusamur að hafa áorkað þessu, maður brallar alltof lítið svona þessa dagana.. ég sá margt á ferðum mínum, meðal annars slælegt ástand Gamla greysins, þarf nauðsynlega að koma af stað einhverri heilun á honum, pallurinn er hálfur horfinn, dýnurnar ógeðslegar og búið að tæma úr enn einu slökkvitækinu inn í skálanum!!! Nú þarf maður bara að fá hugdettu á þá leið að gera upp skálann og framkvæma hana.. það væri það... ; )
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Dísa skrifaði síðasta svar

 
22:47 þann 06. júlí 2006 - hvalur
Mokkedí mokk
     Ég held að hundar séu illkvittnustu dýr á jörðu! Keyrði framhjá konu áðan sem kraup niður í blautt grasið, hélt á poka í annarri hendi og var klædd í plasthanska á hinni, svo tíndi hún upp hvern sperðilinn á fætur öðrum að mér sýndist. Hundurinn stóð svo ósköp rólegur hjá með tunguna lafandi niður í gras og örugglega skellihlægjandi og gerandi grín að henni, hver myndi svo sem ekki gera það ef maður gæti farið út að labba með einhvern og látið hann tína upp eftir mann lollana hist og her út um allt ; )
Annars bara nóg að gera í vinnunni þessa dagana.. árleg pollamóts og essomóts helgi í gangi, reyndar frekar róleg í ár, sennilegast vegna rigningarspár í vikunni og um helgina... maður veit þó ekki, gæti bæst í á morgun...
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
22:02 þann 29. júní 2006 - hvalur
Ja hérna hér
     Allt við það sama, bloggletin í hámarki eins og verða vill á þessum tíma árs...

Helmingi meira en 1000, er það 1500 eða 2000?
     Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | finnbogi skrifaði síðasta svar

 
13:08 þann 21. júní 2006 - hvalur
Next stop: ICEFJORD
     Jamm og jæja, maður gerir nú mest lítið annað en að vinna og sofa þessa dagana, vonast til að fá þá smá aur upp í skuldirnar um næstu mánaðarmót ; ) Síðasta helgi var skemmtileg að vanda í vinnunni.. svo virtist sem að öllum helsta skríl Íslands væri stefnt hérna uppeftir á föstudagskvöldinu, gekk þó stórslysalaust að mestu að ég held, Arnór fékk að vísu bjórdós í hausinn. Veit ekki hvort það var með ráðum gert eða slysaskot en hann lá allavega í bjórnum um helgina.. Þetta voru einu slysin á starfsfólki um helgina að ég veit.

Næstu helgi er ég búinn að fá frí frá fimmtudagskvöldi fram á mánudagsmorgunn og er þá stefnan sett á fjörð Ísa í vestri þar sem Kárinn situr og safnar visku og bjórvömb í poka. Hver veit nema maður hitti á Hauk söldenkall í leiðinni, æfi jafnvel upp glataða glasalyftingavöðva með kallinum ; ) Ljóóóóóómandi
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
23:55 þann 06. júní 2006 - hvalur
Blíðan bætir líðan
     Mikið svakalega var ég duglegur í kvöld!! Til að byrja með labbaði ég úr Heiðarlundi í Byggðaveg, ætti ekki að vera mikið afrek svona venjulega en vegna hreyfingarleysis undanfarið telst það til stórræða : ) Úr Byggaðaveginum hjólaði ég svo upp á Hamra, þar hjólaði ég um svæðið og handrukkaði mann og annan, kíkti snögglega á salernin og rót smá verkefnalista fyrir morgundaginn... Eftir þetta spilaði ég Folf í svona hálftíma og hjólaði svo heim.. Var alveg kominn tími á smá duglegheit til tilbreytingar : p Kannski maður reyni þá að koma sér oftar í vinnuna á næstunni án þess að eyða rándýru bensíni, hvílíkt verð á þessum kokteil, mætti halda að hann væri blandaður úr gulli og einskærri hamingju!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Lilja skrifaði síðasta svar

23:33 þann 05. júní 2006 - hvalur
Þannig er nú það
     Mest lítið í gangi þessa dagana, búinn að vera að vinna níu til fjögur síðustu vikuna í rólegheitum og um helgina fékk ég smá aukavinnu sem dyravörður á Rocco, gamla Oddvitanum. Ágætis tilbreyting svona, vildi þó ekki vinna við þetta til frambúðar.. Í gærkveldi var svo blúskvöld á staðnum og þar sem gestirnir voru að megninu til miðaldra fólk í rólegheitum gat ég staðið og horft á megnið af tónleikunum og hlýtt á. Algjör snilld.. held að það þurfi meira af svona atburðum á Akureyri!! Annars búið að vera ansi viðburðalaust svona miðað við vikurnar þar á undan ; ) Nú í vikunni byrjar 16 ára vinnan upp á Hömrum og kemur þá í ljós hvaða prakkara við drögum úr hattinum þetta árið : ) Incoming!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar

12:02 þann 27. maí 2006 - hvalur
Það var nú alveg kominn tími á heimferð!
     Nú er fyrsta í vinnu lokið, var þó frekar stuttur, í dag á svo að kíkja í netta kosningavinnu, fyrir björgunarsveitina, þar sem Bassi gerðist svo ljúfur að láta í sér heyra í gærkveldi. Annars er maður að strita við að þvo óhreinu fötin frá því í úglandinu, nóg er af þeim.. held að ég sé búinn að þvo 2 vélar og Begga búin að stelast til að þvo 2 líka.. hrikalega þægilegt að nota svona þurrkigræju..stefni á að eignast sjóleiðis einn góðan veðurdag..
Merkilegir þessir árans pólitíkusar, hata pólitík! En maður getur ekki staðið hjá, verður að reyna að mynda sér tiltölulega gáfulega skoðun og nýta atkvæði sitt. Horfði í gærkveldi á frambjóðendur flokkanna hérna á Akureyri ræða málin á Aksjón og það er nú bara ekkert um auðugan garð að gresja (held að þetta sé rétt ritað). Finnst svo óþægilegt að þetta lið oti að manni óteljandi loforðum um allt og ekkert og standi svo við minna en helminginn af því! Hvílík vitleysa, fjárans stjórnmál!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >