18:29 þann 25. janúar 2006 - hvalur
Hvað finnst þér um tilurð lífsins?
     Þetta er spurning sem Votta Jehóvar voru að spyrja okkur að rétt í þessu, ruddust inn um hurðina og heimtuðu svar.. Neinei, var reyndar ekki alveg þannig, voru ósköp kurteisar og dannaðar en ég lét valdísi um að sýna þeim réttu leiðina (ég flúði inn í eldhús semsagt : ) ), út um dyrnar aftur þ.e.a.s.
Nú erum við stoltir eigendur 28 tommu sjónvarps, ég ákvað í fyrradag að fara í hagkaup og kaupa mér 28 tommu united sjónvarp á 30 kúlur. Gerði smá pit stop á leiðinni hjá gjaldkera skátafélagsins, Sigríði, lét hana hafa einhverja peninga og spjallaði. Kom þá upp úr dúrnum að Sigríður og Hreiðar (ökukennari) eru að endurnýja imbann, keyptu sér flatskjá og báðu mig þarna að hjálpa sér að bera gamla tækið því ætlunin var að henda því. Ég sá mér leik á borði og fékk að hirða gamla tækið, þetta hrikalega hlussu fína Sony tæki.. nú bara ligg ég í playstation 2 í bíósalnum mínum (dýpt stofunnar er ca. 2 m). Tókst meira að segja að plata Valdísi, að ég hefði keypt þetta sjónvarp á 55.000 í Siemens, trúði því að sjálfsögðu trítillinn minn. Talandi um að vera réttur maður á réttum tíma á réttum stað!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
02:23 þann 20. janúar 2006 - hvalur
Fyrsti dagur í skíðavetri
     Loksins komst maður á skíði, þó heldur stutt væri. Var að vinna á Capone sem dyravörður(ætti að heita hurðalokari) í gærkveldi og gerði svo heiðarlega tilraun til að vakna hálftíu í morgun. Var kominn á skíðin um hálftvöleytið, þurfti reyndar að standa í röð í rúman hálftíma eftir árskortinu. Fjöldinn var temmilegur, engar raðir til að tala um. Hrikalega fínt að komast aftur á plankana!!! Aðstaðan upp í fjalli er að verða skrambi góð, komin skannahlið eins og í Sölden og víðar, þessi líka fína stólalyfta og svo snjóframleiðslan... Vantar bara kláf úr miðbænum og barinn í strýtuna ; ) Í kvöld var svo hugmyndin að kíkja á nýju Bond myndina í Borgarbíó, við vorum ósköp róleg og mættum tíu í 8 niður eftir, þá stóð röðin út úr dyrum og ekki útlit fyrir þrjú sæti saman. Dagurinn endaði því á rólegu vídjókvöldi heima í stofu...
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
23:50 þann 27. 2006 - hvalur
Gömlu nintendo leikirnir
     Mæli með Bomberman!!!!!

http://www.vnes.thatsanderskid.com/
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
20:30 þann 23. 2006 - hvalur
Úti er alltaf að snjóa... lalalalala...
     Við erum að tala um nánast hríð úti!! Hvílík sæla!

Rakst annars á þessa frekar flottu myndaseríu á netinu...
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
21:25 þann 22. 2006 - hvalur
Útlærður í hnífasmíði
     Ég skellti mér á námskeið í hnífagerð um helgina. Páll Kristjánsson kenndi og virðist vera mikill séní í þessum efnum, heimasíðan hans er knifemaker.is. Ég gerði einn lítinn hníf úr kvistuðu birki og setti svört horn á endana, svo gerði ég einn stærri úr mahóní og setti hvít horn á endana á honum, gerðum líka slíður utan um báða hnífana. Þetta var hrikalega gaman, mæli með þessu. Á listalind.is má líka finna lista yfir fleiri námskeið ef einhver hefur áhuga : ) Hendi kannski inn myndum við tækifæri : )
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
00:31 þann 21. 2006 - hvalur
Ný íþrótt, vantar menn í landslið
     Hef fundið upp nýja íþrótt, að ná póstinum úr póstkassanum án þess að opn'ann. Auglýsi hér með eftir fleiri liðsmönnum, sem stendur er aðeins einn liðsmaður (sökum leti hef ég ekki nennt að sækja lykilinn að póstkassanum inn í íbúð og labba fram til að opna hurðina á kassanum, hefur reynst betur að eyða nokkrum mínútum í að troða lúkunni ofan í póstopið og glefsa í póstinn með fingurgómunum) Íþróttin getur verið ansi margslungin því allskonar póstur berst, rétt í þessu tók ég 5 mínútna æfingu þar sem ný símaskrá Akureyrinnar barst og tók talsvert á fingralipurðina við að góma hana og ná upp um litla póstkassagatið... en auglýsi semsagt hér með eftir liðsmönnum og þjálfaraliði, einnig er laust pláss í klappstýruliðinu!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
17:25 þann 12. 2006 - hvalur
Úthugsaðasti titill í heimi
     Jæja, langt er um liðið síðan hér var síðast rituð bloggfærsla. Fyrir því finnast eflaust margar gildar og góðar ástæður en sú stærsta hlýtur að vera leti, flýgur mér þá í hug fleyg orð kennara míns: "Ef leti væri banvænn sjúkdómur, væri stór hluti nemenda dauður!". Þessa dagana er nóg um að vera í menntastofnuninni VMA, í skátafélaginu Klakki er að renna upp dagur og kvikna nýtt líf svo á þeim bænum er einnig nóg um að vera, í björgunarsveitinni Súlum virðast svo græðlingar af suðurlandinu vera að taka við sér og smita út frá sér útfjólubláum geislum svo fleiri félagar taka kipp... Hér heima er í augnablikinu allt á rúi og stúi (hvernig ritar maður þetta?) þar sem ég hef enn ekki haft sinnu til að ganga frá útbúnaði sem notaður var í lok síðustu viku... Sé þó ljósið við enda gangnanna, um næstu helgi lítur út fyrir rólega daga, of fáa þó, en engu að síður lauslega og afslappaða dagskrá.. hlakkar til!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar

 
02:30 þann 29. september 2006 - hvalur
ZZZzzzzz
     Ægilega lúinn eitthvað...
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
07:26 þann 20. september 2006 - hvalur
Life is sweet!
     - Ég bý á Íslandi
- Ég bý við velmegunarástand, engin kreppa ennþá
- Ég á hrikalega fínt glansandi verkfærasett
- Ég hef nóg að gera
- Ég er heilsuhraustur
- Ég er tiltölulega heill á geði
- Ég átti afmæli á fimmtudaginn, borðaði kökur og fékk ammælisgjafir
- Ég er í skóla og hef virkilega gaman að því
- Ég fékk Óskar í ammælisgjöf og hann er ósköp þægur, heyrist lítið í honum
- Ég á svaka flott skíði, í heilu lagi
- Ég hef það gott
- Ég á frábæra kærustu sem gaf mér Playstation 2 í ammælisgjöf! (orsök þessarar augnabliksbjartsýni trúi ég)

     Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | Ásta Lilja skrifaði síðasta svar

11:35 þann 30. ágúst 2006 - hvalur
Allt að gerast og breytast og alles
     Þá er maður búinn að búa í Drekagilinu í tæpa viku, alsáttur með það sko. Við tókum flutningana á 2-3 dögum með hjálp góðra manna og kvenna og nú er nánast allt klárt, Begga henti upp gardínum í snarheitum og gömlu hreinlega gáfu okkur sófasettið sitt svo við erum í góðum málum. Þarf bara að fara í gegnum allt draslið sem við fylltum geymsluna með..
Annars er skátastarfið að byrja á fullu, er búinn að ráða mig sem starfsmann Klakks í vetur og svo verð ég að brasa á Hömrum eitthvað með, svona þegar ég verð ekki í tíma eða að brasa fyrir Klakk. Nú svo er ég byrjaður í skólanum, algjör snilld sem það er, skil varla hvað ég var að þvæla í þessu bóklega rugli ; ) Við erum að sníða hluti í borðstofuborð þessa dagana. Á vel við mig að dunda svona eitthvað..
Jæja, þarf að fá mér að éta og svo renna upp á Hamra (er búinn í skólanum í dag), fyrsti tíminn í útilífsfræði er í dag og verður spennandi að sjá hvers konar hóp ég fæ..
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Davið skrifaði síðasta svar

 
00:01 þann 11. ágúst 2006 - hvalur
Það held ég nú, kominn myndaskammtur
     Það kemur stundum fyrir að maður nennir einhverju og nú er svo. Henti inn nokkrum myndaskömmtum úr úglandinu. Fyrir það fyrsta setti ég inn myndir af því þegar ég, Halla og Ragna röltum upp á Söldenkogl í Ötztal, snilldartúr þar á ferð, synd að við fórum ekki á Wildspitze þó : ( En jæja... Svo henti ég inn myndum af húsbílaferðalaginu í þremur skömmtum.. Getið kíkt á þetta ef þið hafið áhuga.. látið mig líka vita ef eitthvað virkar ekki, gerði þetta í smá flýti. Annars er maður bara að vinda ofan af sér eftir versló og lifa í rólegheitunum þessa dagana. Hugsunin snýst mest í kringum tilhlökkun varðandi yfirvofandi flutninga og málefni þar að lútandi. Stefnum semsagt á að renna suður á land að ná í dót og versla í Ingimars Kauphöll Einars Akureyrings : p um aðra helgi þ.e. 18-20 ágúst, svo eigum við bara að fá slottið í Drekagilinu upp úr því, Valdís verður byrjuð í skólanum og ég byrja þarna í vikunni, þann 24. nánar tiltekið að ég held allavega... jæja sofa í haus..
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Þórunn Edda skrifaði síðasta svar

 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >