11:49 þann 21. janúar 2004 - hvalur
Einn góður :)
     A few days after Christmas, a mother was working in the kitchen listening to her young son playing with his new electric train in the living room. She heard the train stop and her son said, "All of you sons of bitches who want off, get the hell off now, cause this is the last stop! And all of you sons of bitches who are getting on, get your asses in the train, cause we're going down the tracks." The mother went nuts and told her son, "We don't use that kind of language in this house. Now I want you to go to your room and you are to stay there for TWO HOURS. When you come out, you may play with your train, but I want you to use nice language." Two hours later, the son comes out of the bedroom and resumes playing with his train. Soon the train stopped and the mother heard her son say, "All passengers who are disembarking from the train, please remember to take all of your belongings with you. We thank you for riding with us today and hope your trip was a pleasant one. We hope you will ride with us again soon." She hears the little boy continue, "For those of you just boarding, we ask you to stow all of your hand luggage under your seat. Remember, there is no smoking on the train. We hope you will have a pleasant and relaxing journey with us today." As the mother began to smile, the child added, "For those of you who are pissed off about the TWO HOUR delay, please see the bitch in the kitchen."
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
21:35 þann 19. janúar 2004 - hvalur
Gangur sólarinnar
     Ætlaði bara rétt að benda á það að klukkan er ekki alveg rétt hérna, þar sem hún er fengin af vefþjóni í útlandinu stóra. Forritunarmeistari Ásgeir ætlar að líta á þetta einhverntíman, ekki að það skipti einhverju máli, maður bara bætir við einum fimm stundum klukku og vola, komin með íslenskan staðartíma.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar

 
21:30 þann 19. janúar 2004 - hvalur
Mennirnir eru mismunandi eins og þeir eru margir
     Já, það er mismunandi hverju fólk tekur uppá sér til dundurs á föstudagskvöldum. Við félagarnir ákváðum allavega að spila Risk til að æfa sellurnar. Það gekk nú bara ljómandi vel, í þetta skiptið sigraði ég. En það væri ekki í frásögur færandi, nema hvað eftir spilið tökum við til við að giska á símanúmer við upplesin nöfn í símaskránni og öfugt, mæli með að allir prófi, gríðarleg upplifun!!! Þar á eftir er ráðist á herbergi vistmanna Grettisgötuhælis og kallað á "airstrike". Við Kári læstum okkur semsagt inní herbergi hvors annars og gerðum ákveðnar lagfæringar. Allavega varð árangurinn sá að herbergin voru bæði á hvolfi(mitt þó talsvert meira en Kára), varla stakur hlutur á sínum stað, gardínur á skáphurðum, náttborð uppá skrifborðum, teip og límband uppum alla veggi og post-it miðar í miklu magni. Nú þegar maður hefur lokið við tiltekt eftir skemmtan kvöldsins er stefnan tekin á mjúkan koddann. Aldrei að vita nema maður endurtaki leikinn annað kvöld Góða nótt gott fólk
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
11:55 þann 19. janúar 2004 - hvalur
Hnetur
     Nú er ég alveg nuts, það er ekki langt síðan það hringdi í mig kona og bauð mér áskrift að Vikudegi (fréttasnepill frá Akureyri) og þar sem ég segi ekki nei tók ég því. Var reyndar hæstánægður með það eftirá, ekki leiðinilegt að fá fréttaskot að norðan. Nú er ég búinn að fá nokkur tölublöð. Fékk eitt inn um lúguna áðan og nú er ritstjórinn bara að hefja eitthvað einkastríð í blaðinu, hann neitar að borga sekt fyrir að hafa lagt ólöglega og tekur bara alla forsíðuna undir þetta mál sitt. Jæja, ég sendi þeim óánægju email, kemur í ljós hverju þau svara.
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
20:35 þann 18. janúar 2004 - hvalur
Gott Risk bara
     Jæja, allir á lífi ennþá, Kári tapaði en engar blóðsúthellingar ennþá. Marenskakan kláraðist og fékk góða dóma, enda bökuð af snillingi Ásgeir vann spilið með yfirburðum og við hinir gerðum lítið nema gráta örlögin á meðan því stóð.
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar

 
14:41 þann 18. janúar 2004 - hvalur
Einhverntíman verður allt fyrst ...
     Jæja, nú er maður kominn með svona bloggforrit, sérhannað af herra yfirforritara, nefnilega Ásgeiri. Best að kíkja á hvernig þetta kemur út svona að gamni. Stefnir allt í gott Risk kvöld í Grettisgötunni þar sem Kári mun myrða þá sem sigra hann í Risk. Lítur semsagt allt út fyrir gott blóðbað í kvöld
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Arnar skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23