18:12 þann 01. febrúar 2004 - hvalur
Allir að prófa :)
     http://www.quizyourfriends.com/yourquiz_IM.php?quizname=041201131009-800436
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
15:14 þann 01. febrúar 2004 - hvalur
Þá lægst er á lofti sólin, þá loksins koma jólin.
     Búinn að henda upp einni jólaseríu, miklu betra svona. Svo stendur yfir útboð á hönnun og framkvæmd á skreytingu svala og norður hlið íbúðarinnar. Tilboð móttekin hér með!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Vala Matt skrifaði síðasta svar

 
01:53 þann 01. febrúar 2004 - hvalur
Mmmmmm . . .
     Smákökur og ísköld mjólk er nú bara með því betra sem maður fær!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

20:43 þann 30. janúar 2004 - hvalur
Prüfung
     Nú líður að prófum, maður neyðist til að fara að líta í bækurnar og pæla meira í efninu. Planið er að hunskast í ræktina nánast daglega, snemma morguns, fara svo í þjóðarbókhlöðuna eða öskju og læra, taka klukkutíma hádegismat og halda svo áfram eitthvað frameftir degi. Þannig ætti þetta að ganga næstu 3 vikurnar ef heimurinn væri fullkominn, gef þessu 3 daga
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

23:23 þann 29. janúar 2004 - hvalur
Myrkrið færist yfir
     Kominn suður aftur, get nú ekki sagt að það gleðji mig mikið. Álit mitt á höfuðborginni fer reyndar skánandi jafnt og þétt, sé líka fram á búsetu hérna til allnokkurra ára. Það var gert vel við mann að venju heima, fékk sent með mér laufabrauð og þrjá dunka af smákökum, ekki verra maður! Jæja, nú er heldur betur farið að dimma á kvöldin, verð að smella upp jólaseríum hugsa ég til að lýsa aðeins upp myrkrið í herberginu svona á háttatíma.
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
11:34 þann 26. janúar 2004 - hvalur
Norður yfir heiðar . . .
     Jæja, nú er maður ári hamingjusamur enda kominn heim á Akureyri, við Ásgeir tókum skyndiákvörðun í gær og ákváðum að skella okkur strax og vera ekkert að geyma það þangað til í dag. Góð ákvörðun það. Það gerðist svosem ekki mikið markvert annað, ég datt jú á rassgatið í sturtu í stressinu við að taka mig til, ómeiddur samt, no worries. Var eitthvað að snúa mér við og áður en ég vissi af lá ég í botninum á baðinu með fæturnar uppí loft, falleg mynd ef þið ímyndið ykkur Við snigluðumst norður á naglalausum dekkjum, var orðinn helvíti stífur í öxlunum þegar norður kom út af stressi, var þess virði samt og vel það.
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
01:20 þann 24. janúar 2004 - hvalur
Þróun mála
     Jæja búinn að bæta nokkrum myndum við og setja linka á litlu myndirnar svo þetta á að vera komið í þolanlegt form, það sem komið er inn allavega
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
22:06 þann 23. janúar 2004 - hvalur
Loftflæðifræði fræja
     Gaman að segja frá því að um daginn mældum við í verklegum tíma hversu langan tíma það tók fræ að detta niður 2,7 m, hér eru dæmi um tímana: Ætihvönn (1/100s) Túnfífill (/100s) 131 597 116 584 131 395 113 943 ... ... 129,75 534,55 Fyrir neðan punktana eru semsagt meðaltímar allra 20 tímanna sem við tókum á þessum fræjum. Af þessu má sjá að túnfífilsfræ svífa mun lengra en ætihvannarfræ. En áhugavert Annars allt gott að frétta, var að setja á marenstertu í tilefni dagsins, töfalt afmæli, bæði mamma og Valdís. Nauðsynlegt að halda uppá það, þrátt fyrir að þær séu á Akureyri og ég í Reykjavík Reyndar bara aum afsökun fyrir að innbyrða aukalegar kaloríur
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

22:35 þann 22. janúar 2004 - hvalur
Menn finna sér ýmislegt til dundurs
     Jæja, það er margt til í heiminum í dag. Við félagarnir, ég og Kári þ.e., gerðumst svo djarfir um daginn að taka á móti smá hópi af fólki í gleðskap að kveldi til. Allt gekk þetta ágætlega fyrir sig þó bananalíkjörinn rynni hraðar um æðar ákveðinna aðila en annarra Þessi hópur er þó ekki beint þekktur fyrir prúðmennsku og höfum við fundið fyrir því síðan. Ég var semsagt að enda við að draga með flísatöng rúmlega 15 eyrnapinna uppúr tannkremstúbunni minni. Hvernig ætli þeir hafi komist þangað, hmmmm... Scheize, var að heyra í fréttunum af bruna í Hringrás, leit út um gluggann og það er enginn smá reykur, hlýtur allt að vera fullt af dekkjum þarna, himininn er bara að verða grár og bjarminn sést vel svona úr fjarska!
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

22:47 þann 21. janúar 2004 - hvalur
Gríðarlega fínt
     Haldiði að það sé fínt, Ásgeir bara dekrar við mann, búinn að redda manni gestabók og fixa klukkuna á kvikindinu. Nú er það skylda að skrifa sig í gestabókina!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

11:49 þann 21. janúar 2004 - hvalur
Einn góður :)
     A few days after Christmas, a mother was working in the kitchen listening to her young son playing with his new electric train in the living room. She heard the train stop and her son said, "All of you sons of bitches who want off, get the hell off now, cause this is the last stop! And all of you sons of bitches who are getting on, get your asses in the train, cause we're going down the tracks." The mother went nuts and told her son, "We don't use that kind of language in this house. Now I want you to go to your room and you are to stay there for TWO HOURS. When you come out, you may play with your train, but I want you to use nice language." Two hours later, the son comes out of the bedroom and resumes playing with his train. Soon the train stopped and the mother heard her son say, "All passengers who are disembarking from the train, please remember to take all of your belongings with you. We thank you for riding with us today and hope your trip was a pleasant one. We hope you will ride with us again soon." She hears the little boy continue, "For those of you just boarding, we ask you to stow all of your hand luggage under your seat. Remember, there is no smoking on the train. We hope you will have a pleasant and relaxing journey with us today." As the mother began to smile, the child added, "For those of you who are pissed off about the TWO HOUR delay, please see the bitch in the kitchen."
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >