13:28 þann 13. febrúar 2004 - hvalur
Maður verður nú að éta :)
     Þar sem við Ásgeir vorum svo ofurduglegir að læra fyrir hádegi ákváðum við að fara á Dónann í hádeginu, sáum nú ekki eftir því. Vel mettir og sáttir eftir þessa ferð. Okkur var meira að segja boðið frítt kaffi eftir börgerinn, mann langaði bara næstum til að vera byrjaður að drekka þennan óþverra. Nú situr maður enn á ný á þriðju hæð í Öskju að reyna að koma sér að náminu aftur, verst hvað augnlokin vilja síga í þessum þægilegu bláu sófum
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
10:16 þann 13. febrúar 2004 - hvalur
Enn einn dagurinn af möööörgum
     Jæja, þá er maður kominn uppí öskju að læra, við Ásgeir fórum í ræktina klukkan átta og vorum mættir hérna um níuleytið, sprækir. Nú þarf maður að lesa líffræðilega og lífræna efnafræði fyrir morgundaginn, verst hvað ég hefði átt að læra miklu meira í henni í vetur, eins og venjulega reyndar Eftir prófið á morgun eru tvö próf eftir, Grasafræði þann 16. og svo Dýrafræði þann 20. Svo er dæmið búið bara, jólafrí sennilega fram til 9. jan. Eðalgott. Jæja ég ætla að læra meira um lífræn efnahvörf alkena, hvernig má nota hýdrólýsu til að brjáta tvítengi og bæta halíð hópum á alkena sem breytast þá í alkana. Þótti vissara að deila þessu með ykkur
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

14:02 þann 12. febrúar 2004 - hvalur
Oldies
     Hver man ekki eftir þessum skröttum :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
23:53 þann 09. febrúar 2004 - hvalur
Dulbúin "skólagjöld" . . .
     . . . virðast vera "in" í dag. Var að fá skeyti frá stúdentaráði þar sem fólk er beðið um stuðning, á meðal annars á því formi að senda þessu pakki þarna á pöllum alþingis emil um óánægju með þessar ófarir, sem ég að sjálfsögðu gerði. Ég fór á stúfana og fann á vef HÍ góðar reglur Háskólans og meðal annars um það í hvað ætti að eyða þessum gjöldum (má lesa nánar hér) og ég verð að segja að þarna er auðvitað bara verið að teygja sig í mína vasa (og fleiri vonandi) til að borga eitthvað sem er í raun hlutverk fjárlaga eða skólagjalda ef þau væru til staðar. Það getur þó vel verið að það standi einhversstaðar í rykföllnum "handritum" að það sé ekki hlutverk háskólans að reka prentara fyrir nemendur en það þarf kannski eilítið að endurskoða svona hluti og endurskilgreina hlutverk og stefnur!!! Menn á Alþingi eru bara að missa sig í svona vitleysu af því að þeim tókst ekki að troða á skólagjöldum svo enginn tæki eftir og eru nú að reyna þetta í staðinn!!! Ekki láta blekkjast :op Jæja, þetta er nú orðið full háfleygt hjá manni, einn góður linkur svona í endann ;)
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar

 
00:17 þann 09. febrúar 2004 - hvalur
Smá mis. . .
     Þessar linkar virkuðu ekki alveg rétt, getið prófað þessa, vona að þeir virki betur :D Grunnsíðan og svo er það súkkulaðilagið
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
00:09 þann 09. febrúar 2004 - hvalur
Tæknin maður . . .
     Brynjar dreki benti mér á þessa sniðugu síðu og á meðal annars sem ég fann þar var súkkulaðilagið :D , fyndin síða, mismunandi hvað menn gera í frítíma sínum. Vona að þessir linkar virki, Ásgeir "vefstjóri" var að sýna mér hvernig þetta er gert (á að vera hægt að klikka sko).
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
01:18 þann 08. febrúar 2004 - hvalur
Aumur er agalaus maður . . .
     . . . sagði einhver spekingur. Það gengur nú bara ágætlega fyrir sig að læra, nennti að vísu ekki í ræktina í morgun en það var bolti áðan svo það er hreyfing bara dag eftir dag (í gær og í dag ). Við Ásgeir byrjuðum að læra rétt fyrir 11 í morgun og vorum að til 18. Kalla það ágætt bara, svo var dagskráin þétt eftir það, vaska upp eftir síðustu ca. 10 daga(tók dágóðan tíma), elda kvöldmat(pasta og steiktar töflur), vaska upp eftir það og svo bolti fram að miðnætti, að meðtöldum heitum potti. Svo í dag gafst enginn tími fyrir civ 3, en það kemur víst dagur eftir þennan dag. 17 dagar til jóla!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

23:11 þann 05. febrúar 2004 - hvalur
Freistingar. . .
     . . . eru til þess að falla fyrir þeim, og ég er byrjaður í civilization eins og venjulega í prófatíðum. Getur verið stórhættulegt, spurning hvort mér tekst að yfirvinna fíknina og ná stjórninni aftur. Kemur í ljós þegar einkunnirnar byrja að streyma inn eftir prófin ;) Allavega, í fyrramálið á að taka daginn snemma, mæta í ræktina um 7 leytið, ryðjast svo inní bókhlöðuna og hertaka borð þar fram að hádegi, þá er dýrafræðipróf - verklegt. Eftir það er skátafundur uppí breiðholti frameftir kvöldi eitthvað. Þarf líka að redda klósettpappírmálum fyrir Seglana, fengum hann ekki á föstudaginn eins og átti að verða, eitthvað mis.
     Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
21:21 þann 03. febrúar 2004 - hvalur
Plöntulíffræði eða Grasafræði, hvort sem er
     Einn kennarinn minn vildi skíra grasafræði plöntulíffræði, það hljómar nefnilega svo kerlingalega, maður sér nefnilega bara fyrir sér einhverjar miðaldra kerlingar fyrir sér að tína bláber uppá heiði Ég er semsagt að fara í verklegt próf í grasafræði í fyrramálið, á laugardegi!! Og er semsagt að reyna að troða einhverri vitneskju inní hausinn á mér eins og stendur. Þess vegna er ég að blogga, leiðist! Ég held að svarið sé bara að breytast í ljóstillífandi einkímblöðung sem hefur kynlið sem ríkjandi lífsskeið!!! Gaman! Jæja þetta er ekki alslæmt, mér hefur líkað ágætlega í þessum verklegu tímum, bara dunda við að skoða plöntuhluta og dót, hef nefnilega gaman af því að dunda eins og sumir vita Læra, læra, kveð að sinni
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kata lata ;) skrifaði síðasta svar

18:23 þann 02. febrúar 2004 - hvalur
Annar sniðugur hlekkur ;)
     Kata sendi mér þennan, finnið þrennt sem vantar á hægri myndina, frekar auðvelt að finna það! http://members.home.nl/saen/Special/Zoeken.swf
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Una skrifaði síðasta svar

 
18:12 þann 01. febrúar 2004 - hvalur
Allir að prófa :)
     http://www.quizyourfriends.com/yourquiz_IM.php?quizname=041201131009-800436
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >