15:24 þann 21. febrúar 2004 - hvalur
Stefnan tekin á norðurlandið
     Jæja, þá liggur leiðin norður á við, gæti ekki verið betra. Ég er semsagt alveg við að fara út úr dyrunum, þá er planið að skutlast aðeins og snattast fyrir jólin og svona. Svo á að ná í Ásgeir, pakka í bílinn þar, ná í dekk fyrir Bjarna og éta, þá loksins er komið að þeirri langþráðu stund að keyra norður.
Var samt að tjekka á færðinni á netinu, sýnist vera flughált helvíti drjúgan spöl af leiðinni, og maður er ekki einu sinni á nagladekkjum :o Jæja, maður mallar þetta bara, verðum komnir norður passlega í morgunmatinn í fyrramálið bara Það stoppar allavega ekkert tvo Akureyringa sem ætla sér heim um jólin!!! Læt ykkur vita ef ég lifi ekki ferðina af
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
16:32 þann 20. febrúar 2004 - hvalur
PRÓFIN ERU LOKSINS BÚIN!!!
     Jæja, maður er nánast öskrandi af gleði yfir þessum áfanga, prófunum loksins lokið og ekkert framundan nema tóm hamingja, éta jólamat uppí háls, líða illa yfir öllu átinu, fara norður á skíði, spila í öllum jólaboðunum, æði, æði, stjáni saxafón!!!! Næstu þrjár vikurnar verða tóm hamingja!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
22:43 þann 19. febrúar 2004 - hvalur
Alveg, alveg, alveg að verða búið!!!
     Nú sit ég hér og reyni eftir fremsta megni að læra, einhvernveginn endar það samt alltaf í einhverju allt öðru en að lesa námsefnið, einbeitingin er farin norður á undan mér bara! Síðasta prófið um hádegi á morgun, jibbí!!! Þá er bara útlit fyrir jólafrí til sennilega bara 10. jan, það eru barasta þrjár vikur í jólafrí, ekki slæmt það! Vonandi bara að það verði snjór allan tímann svo ég geti stigið á planka uppá fjöllin hvít Skilst á fólkinu fyrir norðan að sífellt bæti í snjóinn, þó kemur lítið fram á Hlíðarfjallsvefnum, bíðum og sjáum samt sem áður, allt getur gerst, allt getur gerst...
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar

15:29 þann 18. febrúar 2004 - hvalur
Hvernig skapa má Hval með einu 80 gramma A4 blaði
     Voðalega fínar leiðbeiningar um þessa fínu framkvæmd má finna hérna
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

09:53 þann 18. febrúar 2004 - hvalur
Smá pása á lærinu . . .
     Enn á ný mættur í heimsins stærsta ísskáp, þ.e. Náttúrufræðihúsið Öskju. Eldhress að vanda, lítur út fyrir enn einn skemmtilegan dag í prófaupplestri Við Ásgeir horfðum á Dalalíf og Beetlejuice í gærkveldi, báðar bara ári fínar myndir, álíka mikið rugl í þeim báðum. Beetlejuice var búin hálftvö leytið og lá þá leiðin í rúmið.
Annars var nú merkisdagur í gær, Kárinn bara útskrifuð lögga, ekki nóg með það heldur sópaði að sér verðlaunum, dúx ársins bara, fékk íslenskuverðlaun og útnefndur sem oroblu strákurinn að auki Til hamingju með það Kári!!! Skildist nú bara að Akureyringarnir hefðu verið að massa þetta, hirtu víst 60% viðurkenninganna, Jóhann Björn formannssonur var víst í "verðlaunaviðveitingabransanum" líka, löggunemi ársins eða eitthvað svoleiðis, kann nú ekki alveg að fara með þetta þó... Nú mega landsmenn fara að vara sig, tveir fílhraustir Akureyringar mættir með sektarbækurnar, hef trú á að nú verði þáttaskil í afbrotasögu lýðveldisins Íslands. Glæpum mun fækka um 98% held ég bara. Ekkert látið viðgangast nema fánastuldur á Akureyrinni og partýhrekkir.

Já, hérna, Ásgeir var aðeins að uppfæra bloggkerfið fyrir mig og það virðist hafa orðið eitthvað mis commentakerfið, ef fólk skrifar mjög langt virðist það prentast yfir annarra manna comment, jæja, gerir ekki mikið til en ég á von á að það lagist þegar okkur Geira (aðallega yfirtölvumeistaranum samt) tekst að reka árann úr bloggkerfinu, þegar tími gefst til allavega. Svo setti karlinn dagsetningu í Gestabókina svo það nú verða bara
ALLIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

23:48 þann 16. febrúar 2004 - hvalur
Morðtilraun
     Jæja, ef ég blogga ekkert á næstu dögum þá ligg ég dauður í sófanum í Grettisgötu 3 af eiturgufum. Kári er að spreyja jólabjór með gull-lakki og það er allt að vera gyllt í íbúðinni og angandi af eiturgufum!!!

Finn bara hvernig lungun tærast upp og ensímin eðlissviptast um leið og hvatberarnir hætta að framleiða ATP.
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
22:29 þann 16. febrúar 2004 - hvalur
Jæja, fimm búin og eitt eftir
     Þá er ég búinn með 5 stk. próf og bara dýrafræðin eftir á mánudaginn, þá er bara jólafríið næst á dagskrá. Svo neyðist maður víst til að fara að huga að jólagjöfum, ekkert búinn að pæla í þeim Var að setja inn aðeins af tenglum, meðal annars á nokkrar góðar vefmyndavélar svosem af heimahögunum. Ásgeir var líka að bjarga myndamálunum hjá mér algjörlega, eins og hans er von og vísa, aðeins breyting á því dæmi. Þær eru að vísu flestar stolnar en...

Á morgun tekur svo bara við lesturinn aftur býst ég við, mæting í öskju um átta-níu leytið ca. og gripið í bækurnar. Nú er ég líka búinn að þvo ullarteppið sem ég var með um daginn svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af öllum sníkjudýrunum og lúsunum sem voru sennilega í því Það allavega moraði allt í hundshárum og var mettað af ryki svo mér mun líða miklu miklu betur á morgun (verð ekki étinn lifandi) undir teppi í Öskjunni hans doktor. Magga Jónssonar "iceman".
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

14:45 þann 15. febrúar 2004 - hvalur
Frostið oss herði. . .
     . . . á vel við hérna í nýja náttúrufræðihúsinu Öskju. Sem stendur ligg ég hér uppí sófa á þriðju hæð með húfu á hausnum, úlpu á kroppnum (enginn smá kroppur) og með teppi ofan á tánum, að reyna að læra eitthvað af viti. Vettlingarnir eru líka innan seilingar ef í hart fer. Arkitektarnir virðast eitthvað aðeins hafa gleymt sér í skrautinu og gleymt að hugsa aðeins út í praktíkina. Við Ásgeir hittum á einn ræstitækninn (kona að sjálfsögðu ) hérna sem fræddi okkur um það að síðan hún byrjaði að vinna hérna, eitt ár síðan semsagt, hefði hún verið með krónískt kvef. Þetta virðist nefnilega vera ekki ósvipuð hönnun og í óupphituðu gróðurhúsi, funheitt á sólblíðum dögum sumardögum, en kaldara en allt á kyrrum vetrardögum. Verð bara að klappa fyrir viðkomandi arkitekt! klapp klapp. Tæknirinn fræddi okkur um það að hitakerfið væri eitthvað aðeins mis hannað og að málið væri í "vinnslu" hjá háskólayfirvöldum. Þetta ætti því bara að reddast í fyrramálið er það ekki eða? Jæja, þetta var ágætis afsökun fyrir að læra ekki, best að fara að reyna að hugsa sér til hita
     Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
16:14 þann 14. febrúar 2004 - hvalur
Það er gott að setja sér markmið . . .
     . . . það er bara ekki alltaf víst að það takist að ná þeim, t.d. svaf ég til 10 í morgun, í staðinn fyrir að vakna klukkan hálf átta og fara í ræktina klukkan átta. Jæja, þetta var svosem orðin ágætist törn, búinn að fara í ræktina 7 sinnum á síðustu átta dögum, allgott það þykir mér. Var að koma úr efnafræðiprófi rétt í þessu, var nú ekki að ná neinum hundruðum í einkunn held ég, verð sennilega bara sáttur ef ég næ prófinu (gildir 100% ). Næst á dagskrá er Grasafræðipróf á fimmtudaginn, ég er kominn í öskjuna að læra, Kári m.a.s. mættur líka, kvikindið bara að misnota aðstöðuna hérna, ekki borgaði hann nein skráningargjöld!!! Fær bara í staðinn milljónir borgaðar fyrir að læra að lemja mann og annan, svona fólk sko...
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Deilir skrifaði síðasta svar

 
02:13 þann 14. febrúar 2004 - hvalur
Símamenningin alveg að drepa mann
     Maður er orðinn fullháður þessu litla græna tæki, ég "týndi" símanum mínum í dag og það greip mig nánast bara örvænting, mér líður eiginlega bara illa ef síminn er ekki á vísum stað, og þá helst í vasa mínum. En hann fannst á endanum svo við erum báðir heilir á húfi. Annars er ég að hugsa um að fara að sofa núna, sat hérna í mestu makindum að læra rétt í þessu, blasta jackson alveg massastuð og svona, svo allt í einu heyri ég geðveikt bank og læti, og dauðbregður svona, bara hjartaáfall nánast. Jæja, ég er að jafna mig og þá kemur þetta aftur, neinei, þá er þetta bara eitthvert helvítis bank á hurð í laginu og öskur með. Hress Michael Jackson. Og ég bara að drepast úr hræðslu hérna, hélt að Kári væri alveg að flippa í draumaheimum hérna hinum megin við þilið Svo er það bara ræktin í fyrramálið klukkan átta!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Una skrifaði síðasta svar

13:28 þann 13. febrúar 2004 - hvalur
Maður verður nú að éta :)
     Þar sem við Ásgeir vorum svo ofurduglegir að læra fyrir hádegi ákváðum við að fara á Dónann í hádeginu, sáum nú ekki eftir því. Vel mettir og sáttir eftir þessa ferð. Okkur var meira að segja boðið frítt kaffi eftir börgerinn, mann langaði bara næstum til að vera byrjaður að drekka þennan óþverra. Nú situr maður enn á ný á þriðju hæð í Öskju að reyna að koma sér að náminu aftur, verst hvað augnlokin vilja síga í þessum þægilegu bláu sófum
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >