05:30 þann 25. febrúar 2006 - hvalur
Jó-ólin jó-ólin alls staðar... dadada
     Ég elska jólin.. allir svo happy.. hitta stórfjölskylduna í jólaboðum, spila á spil... éta, éta og éta meira af góðgæti.. mmmm, tók að mér að hjálpa jólasveininum við dreifingu pakka í morgun ( á vegum Súlna), var ekki lítið gefandi það...

Allavegana, til hamingju öll sömul nær og fjær með hátíðarnar, gleðileg jól og megið þið eiga giftusamlegt ár og takk fyrir allt á þeim árum sem að baki okkur standa : ) Hafið það gott og étið bara nógu mikið!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Kristín María skrifaði síðasta svar

 
03:01 þann 21. febrúar 2006 - hvalur
Ægilega lúinn..
     Það er bara allt að fara til fjandans, veðurguðirnir hafa ákveðið að refsa okkur og því logar allt í útköllum hjá björgunarsveitinni, þrenn útköll á jafn mörgum dögum... Bitnar á skólafólki eins og okkur Valdísi. Maður er hálflúinn eitthvað þegar næturnar teygjast svona óvænt og allt í einu. Hvílíkt magn af vatni á berserksgangi hef ég bara aldrei séð! Stíflur bresta, brýr aftengjast, vegir rústast og það flæðir inn í hús. Hvað ætli við höfum gert af okkur eiginlega? Annars eru víst alveg að koma jól og ég á eiginlega eftir að gera allt!! Úff hvað þetta er íslenskur jólaandi eitthvað : )
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Karen skrifaði síðasta svar

 
04:26 þann 14. febrúar 2006 - hvalur
Mikið er nú ljúft að skóli sé ekki hluti af daglegri rútínu þessa dagana...
     Vakna á morgnana, fer upp á Hamra um 9 leytið og er að brasa þar fram eftir degi... Fór í krullu á mánudag og í kvöld, erum að keppa í akureyrarmótinu þessa dagana, búin með þrjá leiki, unnum á mánudag og jafntefli í kvöld. Kom mér á óvart þegar ég fór að prófa krullu hvað þetta er mikil tækni og erfitt. Sem er gaman, maður er smátt og smátt að ná pínu stjórn á steininum, kom mér líka á óvart hvað svellið getur spilað mikla rullu, þ.e. hvað það getur verið mismunandi, þ.a.l. mismunandi hraði á steinunum og miserfitt að stjórna hvar þeir enda... Jæja, Valdís þarf að brúka tölvuna svo þetta er gott í bili...
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
22:11 þann 11. febrúar 2006 - hvalur
Free as a bird!!! - Tilefni til hins margrómaða "Augnhárakoss"
     "Eitt afbrigði þessa augnakoss má nota sem þægilega tilbreytingu. Þegar lokið er löngum og ástríðuþrungnum "sálar"-kossi eða "sog"-kossi og báðir elskendurnir halla sér þreytulega aftur á bak og horfa í augu hvors annars, á karlmaðurinn að lúta yfir andlit stúlkunnar. En í stað þess að þrýsta kossi á varir hennar, á hann að leggja vangann að vanga hennar og láta augnahár sín samfellast augnahárum hennar. Þetta verður að sjálfsögðu að gerast með öðru auganu í senn. Þegar þessi samfelling er komin í kring, eiga þau hvort um sig að depla augunum gætilega. Snertingu augnháranna verður tæplega lýst með orðum. Nægilegt er að segja það, að þetta er unaðslegur hliðarstígur á engi ástarinnar, sem gaman er að ganga, æsandi, en ekki erfiður." (Tilvitnun lýkur).

Nú jæja, eftir þessa líka frábæru lýsingu varð ég að prófa dæmið og mjah, get eiginlega alveg lýst snertingu augnháranna með orðum, þvert á það sem bókin segir. Þetta gengur semsagt ekki með bæði augun í einu, parið verður að klessa andlitunum saman og svo blikka eins og geðsjúklingar. Þá finnur maður pínulitla snertingu á augnhárunum ef maður einbeitir sér að því... Varð ekki var við þennan unaðslega hliðarstíg á engi ástarinnar, en jah, kannski væri nær að komast að því hvað þessi höfundur var að bryðja þegar bókin var rituð : )
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
03:59 þann 11. febrúar 2006 - hvalur
Á morgun verð ég frjáls á ný
     Við erum að tala um síðasta prófið á morgun, get að vísu ekki sagt að ég hafi verið mjög duglegur í lærdómnum (a.m.k. ekki miðað við frúnna á heimilinu) en hlakkar engu að síður til. Kemur svo bara í ljós hver afraksturinn verður... Jibbíkajeij
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
20:50 þann 09. febrúar 2006 - hvalur
Listin að kyssa
     Þegar maður er í prófum finnur maður sér flest annað að lesa eða gera en að rýna í skólabækurnar. Rakst til dæmis á þessa líka dýrðarbók sem ég keypti til gamans á flóamarkaði í sumar. Ætla að rita hérna upp skemmtilegan kafla úr bókinni (sem heitir "Listin að KYSSA" og er frá 1968 og hefur þá kostað 40 krónur með söluskatti).
"Sog"-kossinn
"Nú þegar ástræðiþrungnar varir yðar hvíla á ástríðuþrungnum vörum stúlkunnar yðar, þá reynið að hafa fjölbreytni í kossunum. - Reynið t.d. "sog"-kossinn í stað "sálar"-kossins. Þér byrjið á því að opna munninn dálítið þegar þér hafið hvílt yður í ró og næði með lokuðum vörum. Nuddið tungubroddinum við tennur stúlkunnar til þess að gefa henni til kynna, að þér óskið eftir að hún geri eins. Þegar hún geldur í sömu mynt, eigið þér, í stað þess að kyssa hana blíðlega, að soga að yður eins og þegar þér sjúgið appelsínu. Ef hún þekkir þessa aðferð, mun hún fara eins að, og draga aðs ér loftið úr munni yðar. Með þessari aðferð verða unnar ykkar gersamlega loftlausir á skammri stundu. Varir ykkar verða svo fastar saman, að það veldur næstum sárindum í stað sælu. En það eru eigi að síður sælurík sárindi. Þetta kann að hljóma skrítilega, en eigi að síður er það staðreynd. Sársaukinn verður svo sár, að hann verður sæla. ÞEtta atriði verður rætt nánar síðar, í sambandi við "bit"-kossinn. En nú skulum við halda áfram við "sog"-kossinn"(tilvitnun lýkur).
Allavega, skemmst er frá því að segja að skv. bókinni, þegar ljúka á kossinum á að heyrast ægilegur hvellur ef maður kippir sundur munnunum svo að fólki hreinlega bregði eða lágvært ýl ef það er gert hægt. Er ekki að gleypa þetta... Ef einhver prófar þetta endilega látið mig vita útkomuna. Ætli þetta kossaafbrigði hafi verið stundað hér í eina tíð??
     Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
00:50 þann 07. febrúar 2006 - hvalur
Einn góður
     Eddie wanted desperately to have sex with this really cute, really hotgirl in his office.... but she was dating someone else. One day Eddie got so frustrated that he went to her and said, "I'll give you a $100 if you let me have sex with you..."The girl looked at him, then said, "NO."

Eddie said, "I'll be real fast. I'll throw the money on the floor, you bend down, and I'll finish by the time you've picked it up."

She thought for a moment and said that she would consult with her boyfriend... so she called him and explained the situation.

Her boyfriend says, "Ask him for $200, pick up the money really fast. He won't even be able to get his pants down." She agreed and accepts the proposal.

Over half an hour goes by and the boyfriend is still waiting for his girlfriend's call. Finally, after 45 minutes the boyfriend calls and asks what happened....? Still breathing hard, she managed to reply, "The bastard had all quarters!"

Management lesson: Always consider a business proposition in it's entirety before agreeing to it and getting screwed in the end.
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
15:08 þann 04. febrúar 2006 - hvalur
Kallinn orðinn alvöru klifrari!
     Jebb, þá er það ljóst, er búinn að fara núna þrjá daga, næstum því í röð niður í Hjalteyrargötu og klifra í nýja fína klifurveggnum. Sé merki um sigg ofan á tánum (með stækkunargleri og smásjá reyndar), og er alblóðugur á höndunum eftir klifrið í morgun, slík voru átökin. Auk þess er ég með verki í líkamanum á stöðum sem ég hef aldrei heyrt af! Ergo, alvöru klifrari : p
Annars lítið að gerast þessa dagana, finn mér endalaust að gera annað en að læra fyrir prófin, er reyndar mjög lítið stressaður, kannski um of.. hmmm, jæja kemur í ljós. Fer semsagt í Grunnteikngar próf á morgun, Framkvæmd og vinnuvernd á fimmtudag og svo Efnisfræðipróf þann 11. og svo bara jólafrí!!! Hvílík snilld!
Á laugardaginn hlaut ég þann heiður að fá að vera lyftuvörður í nokkra tíma, Gummi upp í fjalli hringdi á föstudagskvöldið og bauð mér stöðuna, ég þáði hana og lærði sennilega meira í efnisfræði en ég hefði nokkurntíman gert ef ég hefði ekki verið að vinna. Sat semsagt inn í skúr frá 11 til þrjú og lærði, stökk öðru hvoru út og hleypti fólki í lyftuna sem var með gölluð kort og eitthvað... Held að það sé fínt að taka svona vaktir öðru hvoru, ekki gríðarlega spennandi djobb samt...allavega smá aur upp í allt nammi og ís átið : /
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar

 
17:38 þann 01. febrúar 2006 - hvalur
Hugvitið að drepa fólk!
     Þessa vikuna erum við með sameignina, það þýðir að ca. tvisvar á dag þurfum við að fara niður og tæma ruslið, við eigum að þrífa inngangana og lyftuna og eitthvað. Held við lendum í þessu tvær vikur á ári ca. Allavegana, þá fór ég áðan og kíkti á ruslið og ekkert merkilegt um það að segja nema ég sé einn poka sem hefur ekki hitt úr ruslarennunni í svarta pokann, tek hann upp og geng frá honum. Þið hljótið að hafa heyrt af því hvimleiða vandamáli að ef maður býr í blokk, pantar sér pizzu og etur, þá stendur maður frammi fyrir því vandamáli að pizzakassinn er ca. kannski 40 cm breiður en ruslarennan hugsanlega bara 30, ergo ganga þarf með pizzakassann niður á neðstu hæð, opna ruslakompuna og setja pizzakassann í þartilgerðan poka þar inni. Nema hvað einstaklingurinn sem hefur hent þessum poka sem lenti semsagt á gólfinu en ekki í ruslapokanum hefur gert sér far um að finna leið til að þurfa ekki að hafa svona mikið fyrir því að éta flatböku. í litla plastpokanum sem passaði í ruslarennuna var rennandi blautur samankuðlaður pizzakassi frá greifanum. Semsagt til að koma pizzakassa í ruslarennu, látið hann í vaskann/baðið, látið hann rennblotna svo hann missi allan styrk sinn, kuðlið honum saman, setjið í poka og blúbbs beint í ruslarennuna. Þessi maður á heiður skilinn(því varla er um konu að ræða),!!! Kannski hafið þið öll heyrt af þessu húsráði en ég hef a.m.k. aldrei heyrt af þessu, er alveg yfir mig hrifinn...
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
04:12 þann 29. janúar 2006 - hvalur
26 dagar til jóla... hlakkar til!!
     Alveg búinn á því, var að koma úr bolta, tókst meira að segja að skora eitt mark, var reyndar í mitt mark : ( og svo flæktist ég aðallega fyrir sjálfum mér og mínu liði en ekki hinu liðinu... Jæja, gaman að því bara. Annars líst mér ekkert á þetta blessaða veðurfar, bölvuð hláka og ógeð, allt rennandi blautt og vibbi. Vona bara að þessu ljúki fyrr en síðar. Mér leið nú bara illa um daginn þegar ég heyrðu konu segja að hún hefði heyrt einhvern spá rauðum jólum!! Þá verð ég illa svekktur, eins og það er búið að vera jólalegt undanfarið...
     Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
18:29 þann 25. janúar 2006 - hvalur
Hvað finnst þér um tilurð lífsins?
     Þetta er spurning sem Votta Jehóvar voru að spyrja okkur að rétt í þessu, ruddust inn um hurðina og heimtuðu svar.. Neinei, var reyndar ekki alveg þannig, voru ósköp kurteisar og dannaðar en ég lét valdísi um að sýna þeim réttu leiðina (ég flúði inn í eldhús semsagt : ) ), út um dyrnar aftur þ.e.a.s.
Nú erum við stoltir eigendur 28 tommu sjónvarps, ég ákvað í fyrradag að fara í hagkaup og kaupa mér 28 tommu united sjónvarp á 30 kúlur. Gerði smá pit stop á leiðinni hjá gjaldkera skátafélagsins, Sigríði, lét hana hafa einhverja peninga og spjallaði. Kom þá upp úr dúrnum að Sigríður og Hreiðar (ökukennari) eru að endurnýja imbann, keyptu sér flatskjá og báðu mig þarna að hjálpa sér að bera gamla tækið því ætlunin var að henda því. Ég sá mér leik á borði og fékk að hirða gamla tækið, þetta hrikalega hlussu fína Sony tæki.. nú bara ligg ég í playstation 2 í bíósalnum mínum (dýpt stofunnar er ca. 2 m). Tókst meira að segja að plata Valdísi, að ég hefði keypt þetta sjónvarp á 55.000 í Siemens, trúði því að sjálfsögðu trítillinn minn. Talandi um að vera réttur maður á réttum tíma á réttum stað!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >