| 02:16 þann 16. janúar 2005 - hvalur Góð ferð burt úr sollinum Á Föstudagskvöldið var planið að fara í fimm manna ferð uppá Botnssúlur í Hvalfirði, ætlunin var að rölta í skálann Bratta gista hann og svo fara á toppa og heim daginn eftir. Ákveðið var að leggja ekki í það vegna óhagstæðrar verðurspár og stefnan tekin annað í bili. Eftir miklar rökræður, vangaveltur, snúninga, pælingar, át, rugl o.fl. var loks ákveðið að leita á Hengilsvæðið og var rölt af stað (einum fátækari) frá einhverju skíðasvæðinu um 23-24 leytið(smávegis seinkun). Eins og glöggir hafa getið sér til um var komið myrkur og því lítið skyggni eftir því, munaði minnstu að skíðamenn (ég og Fimbi) hröpuðu í gil og skorninga. Júbbi og Baldur voru gangandi semsagt og Ásgeir heimandi. Eftir mikla barninga og getgátur um staðsetningu og tilveru skálans komum við loks í skála um 2-3 leytið, ansi ánægðir með þann áfanga. Skálinn heitir Múlasel og er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, fínasti skáli, tiltölulega nýlegur og hreinn, þó er hvorki kynding né eldunaraðstaða til staðar, aðeins hrúga af teppum. Fyrir svefninn snæddum við Finnbogi gúrmet máltíð í boði mountain house, held að finnbogi hafi aldrei borðað betri mat barasta, allavega mátti álykta það út frá tilheyrandi stunum og ánægðulátbrögðum. Eftir margar góðar hrotur og hæfilega hvíld var risið á fætur um ellefu leytið, étið og svo rölt heim á leið aðra flatari leið en þá sem valin var kvöldið áður. Á leiðinni heim fengum við himnasendingu þar sem til okkar var varpað konfekti í fallhlíf, eigum við flugmönnunum bestu þökk fyrir það. Hópurinn var mættur í borgina aftur um 19-20 leytið, svangir og skítugir. Fátt betra en að skreppa í svona stutta og þægilega ferð í náttúruna og ekki skemmir nú að komast aðeins á skíðin. Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 17:45 þann 13. janúar 2005 - hvalur Lífið gengur sinn vanagang Það er mestlítið að gerast þessa dagana, fólk að koma sér uppá að vakna í skólann og svona. Stundataflan virðist óðum fara batnandi, svo verður maður að reyna að skipuleggja sig bara Maður er nú þekktur sem mikill einstaklingur skipulags og stundvísi, klukkumaðurinn ógurlegi, eða hitt þó heldur. Það er nú alveg nauðsynlegt að detta ekki inní eitthvað klukkustress, það fer bara með hjartað og heilsuna, það hefur margsannað sig, allavega líður manni ágætlega ef maður trúir því bara statt og stöðugt ![]() Valdís og Una eru held ég búnar að grandskoða hvert einasta nafn á þessari síðu, má finna margan sniðugan einstaklinginn ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 09:32 þann 12. janúar 2005 - hvalur Plágan verður að hafa sinn gang Jæja það er nú kannski ekkert skrítið að maður sé að safna í sig einhverjum kvefbakteríum. Kári er búinn að vera að rækta þetta og hefur því legið í rúminu undanfarna daga í vaktafríinu sínu og svo kom í ljós í gærkveldi að ég hef verið að japla á tannburstanum hans síðan ég kom suður, svona erum við nánir Með þessari könnun hef ég semsagt sannað að það er ekki bráðdrepandi að smakka annarra manna tannbursta :D Hinsvegar verður Kári höggvinn ef ég leggst í bælið vegna þessa!!!Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 09:01 þann 11. janúar 2005 - hvalur Jamm og jæja Nú er ég mættur í skólann klukkutíma of snemma! Leit semsagt eitthvað vitlaust á klukkuna heima í rúmi, fannst hún vera að ganga níu þegar hún var í raun bara að ganga átta. Kom því aðeins of seint í tíma og var næstum farinn að koma mér fyrir í stofunni þegar ég leit á tjaldið og sá einhverjar tölulegar staðreyndir um jörðina... Passaði ekki alveg við Lífmælingatímann sem ég ætlaði í!!! Þá var klukkan semsagt 8:50 en ekki 9:50 eins og ég hélt. Þetta minnir mig á skiptið þegar við Valdís vöknuðum um níuleytið á d.s. útilíf í Valhöll, vorum voða dugleg og sváfum úti í bivak. Við semsagt risum á fætur um níuleytið og héldum niður í Valhöll, vorum að hugsa um að vekja tjaldbúðina fyrst en ákváðum að leyfa þeim að sofa aðeins Svo komum við niður í hús, vekjum fólk og þegar kemur að finnboga kemur í ljós að klukkan er í raun 3 að nóttu til en ekki 9 að morgni eins og við stóðum í góðri trú um Voru eins og lög segja til um allir mjög glaðir með að vakna á þessum tíma sólarhringsins :D Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kata skrifaði síðasta svar |
|
| 00:08 þann 10. janúar 2005 - hvalur Föruneyti justysins Jæja, þá er föruneyti justysins sloppið suður yfir heiðar á ný, þessum áfanga ferðar okkar er nú lokið og lentum við í mörgum ævintýrunum, höfum nú kastað justynum í saltdyngjuna og þar mun hann grotna niður ![]() Við komumst semsagt heilu á höldnu suður og erum nú komnir aftur í saltsoraborgina. Í fyrramálið tekur svo bara við svellkaldur raunveruleikinn, skólinn býður mann velkominn eldsnemma í fyrramálið eða um 8:15 leytið ef maður er stundvís. Búinn að smyrja og taka til nesti og tilheyrandi, svo koddinn er bara næsta mál á dagskrá, væri það allavega ef ég hefði ekki gleymt honum fyrir norðan! Valdís skutlast bara með hann eftir tvær vikur, þangað til stel ég bara kára kodda eða fæ að samnýta hann Er þaggi ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 14:25 þann 08. janúar 2005 - hvalur AAAAAArrrrrg Nú er ég nett pirraður á Reykjavíkinni, ég eyddi öllum gærdeginum í að dekra við bílinn minn, þrífa, þurrka, bóna, ryksuga, shæna, málaði meira að segja felgurnar í ljósum lit. Ekkert smá fín drossían maður. En það var nú meira en að segja það að ætla að bóna í gegnum þetta helvítis saltlag dauðans!! Fjárans Reykvíkingar kunna bara ekkert að keyra í öðrum aðstæðum en á funheitu malbiki, sem límist við dekkin, því neyðast borgaryfirvöld til að strá tonnum af saltógeði á göturnar svo greyið borgarbúarnir rekist nú ekki á hvorn annan á fínu bílunum sínum! Bíllinn var veðbjóðslegur, saltið var svo mikið utan á honum að ég þurfti að fá lanaðan hamar, meitil, haka og brotvél til að komast í gegnum lakkið!!! Og ég sem var að byrja að sætta mig við að búa í borg dauðans ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 09:50 þann 07. janúar 2005 - hvalur Nú fer þetta alveg að bresta á Uss, þriggja vikna jólafríið bara að verða búið, ömurlegt, var helvíti gott á meðan á því stóð reyndar. Náði öllum prófunum, þó engar glæsieinkunnir í þetta sinn, maður gerir bara betur næst ![]() Svo er bara planið að bruna suður á sunnudaginn, ef það verður ekki fljúgandi hálka þ.e.a.s. Reyndar var fáránleg hálka þegar við Ásgeir komum norður(vorum m.a.s. á ónýtum inniskóm) en nú er maður á nýjum dekkjum sem pabbi splæsti í upp úr þurru. Súbbinn kemst allt á nýjum dekkjum!! Kannski maður fari bara kjölinn suður ![]() Er búinn að vera að prufukeyra nýja plankabúnaðinn undanfarna daga, virkar bara ári vel, maður þarf bara ekkert að hafa fyrir þessu, glæný skíði, glænýjir klossar, glænýjir stafir, stuðningur til fjandans og maður bara líður niður brekkurnar í telemarkvímu ![]() Þetta voru skrambi fín áramót annars, eyddi nýársnótt í Ránargötunni í teiti hjá Jens og Önnu. Var kominn heim tæplega áttaleytið held ég bara, skrambi góð áramót það, allir helvíti hressir á því líka. Prufukeyrði gufuna á staðnum, hljómar vel er það ekki, fimm sveittir karlmenn læstir inní pínulitlum funheitum klefa svitnandi eins og svín. Maður þurfti vissulega að vera viss um kynhneigð sína þarna inni. Næsta mál á dagskrá er svo bara skólinn og svo koma stúlkurnar suður eftir prófin í MA og býst ég við að verði ekki lítið fjör á þeim þá frekar en venjulega En nú ætla ég að fara að bóna súbbann svo hann verði fínn í skoðun seinnipartinn. Vill ekki lenda í sama böggi og finnboginn ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 14:09 þann 03. janúar 2005 - hvalur Jamm og jæja, nú þarf að taka hressilega á! Nú eru jólin búin og búið að éta á sig stórt stórt gat. Í það þarf svo að stoppa með grænmeti og mikilli hreyfingu. Þessi jól voru mjög fín, fullt af mat, spilum, gott áramótagill, pabbi varð fimmtugur 27., spilaði fullt af tilgangslausum tölvuleikjum, ágætis skaup. Allt í goodí semsagt. Á eftir ætlum við Valdís í fitumælingu og býst ég við að prósenta mín verði 80% fita og 20% bein að öllum líkindum! Svo er bara keppnis eftir áramót, hver nær að losna við mest, hverjir eru memm? Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 12:38 þann 25. febrúar 2004 - hvalur Góðann daginn og Gleðileg Jólin Jæja, jólin eru komin og það er fullsannað að ég er alvöru karlmaður, fékk nefnilega borvél í jólagjöf frá tengdó Ég borðaði á mig gat í gærkveldi af dýrindis jólamat ala mamma, gerist ekki betra!Í jólagjöf fékk ég; brauðrist, baggalútsbókina, eldkúlu, Hugo Boss sturtusápu, nammi, borvélina, Atlaskorta geisladiskinn, svuntu og ofnhanska, multitool, hálendishandbókina með cd um vöð og örugglega eitthvað fleira sem ég er að gleyma! Semsagt, afbragðs aðfangadagskvöld liðið, og ég fékk stærsta pakkann í fjölskyldunni, ekki slæmt það, fyrir utan mömmu, en það var bara plat. Pabbi keypti kápu handa henni, setti hana í stóran kassa og fyllti upp með grjóti Við skildum engan veginn hvað þetta gæti verið Jæja gleðileg jól og sjáumst vonandi á milli jóla og nýárs þrátt fyrir gríðarlegt snjómagn og almenna ófærð, ég ætla að fara að troða mig út af hangikjöti og góðgæti
Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 15:26 þann 22. febrúar 2004 - hvalur Sloppinn norður Maður er bara mættur í höfuðborgina (norðurlands þ.e.). Gekk nú ekki þrautalaust reyndar, við Ásgeir fórum bílandi. Á Holtavörðuheiðinni sást ekki á milli stika og þurftum að keyra á 20 stóran part. Nokkrum sinnum fukum við næstum út af veginum, enda ekki á nöglum, launhált og gríðarvindur Allavega var ákveðið í Varmahlíð að snúa til Sauðárkróks og gista hjá ömmu og afa, trukkabílstjóri nokkur tjáði okkur nefnilega að það væru 20 m/s uppá heiði og algjörlega blint.Eftir góða nótt og smávegis veitingar héldum við aftur af stað um hádegisbilið, var hundleiðinlegt veður innað Varmahlíð en eftir það var leiðin nokkuð greið fyrir utan flughálku og maður er kominn heim í heiðarbólið. Magnað! Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kata skrifaði síðasta svar |
|
| 15:24 þann 21. febrúar 2004 - hvalur Stefnan tekin á norðurlandið Jæja, þá liggur leiðin norður á við, gæti ekki verið betra. Ég er semsagt alveg við að fara út úr dyrunum, þá er planið að skutlast aðeins og snattast fyrir jólin og svona. Svo á að ná í Ásgeir, pakka í bílinn þar, ná í dekk fyrir Bjarna og éta, þá loksins er komið að þeirri langþráðu stund að keyra norður. Var samt að tjekka á færðinni á netinu, sýnist vera flughált helvíti drjúgan spöl af leiðinni, og maður er ekki einu sinni á nagladekkjum :o Jæja, maður mallar þetta bara, verðum komnir norður passlega í morgunmatinn í fyrramálið bara Það stoppar allavega ekkert tvo Akureyringa sem ætla sér heim um jólin!!! Læt ykkur vita ef ég lifi ekki ferðina af ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
|