14:43 þann 28. janúar 2005 - hvalur
Morðtilraunir
     Gerði tvær góðar morðtilraunir í gær, önnur þegar við kári vorum að renna í kringluna, þá tókst mér meistaralega að keyra næstum á þónokkurn fjölda af bílum, alveg úti að aka sko. Svo fórum við að kringluferð lokinni í heimsókn til vampíranna í eiríksgötunni, gáfum sennilega samtals á annan líter blóðs í þágu samfélagsins. Fengum svo skrambi gott brauð og góðmeti að eta eftir á :D Mæli með að fleiri geri þetta!!
Allir að gefa blóð á mánudaginn!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
13:03 þann 27. janúar 2005 - hvalur
Alveg að koma helgi
     Nú er vikan bara alveg að verða búin, lítur út fyrir góða helgi, potturinn í breiðholtinu í kvöld og svo patei annað kveld, jafnvel singstar ef stúlkunum tekst að útvega sér útbúnaðinn til þess, ekki það að ég ætli mér að syngja svo mikið sem einn tón.
Jæja, ég þarf að fara að klæða mig í hvíta lyfju-sloppinn sem ég keypti um daginn, er að fara í æsispennandi örverufræðitíma. Ætlunin að handleika lífshættuleg bakteríukvikindi
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
11:27 þann 26. janúar 2005 - hvalur
Æjæjæjæjæjæ
     Maður einfaldlega skilur ekki þessa kana, þeir eru svo andskoti vitlausir hreinlega. Þeir eru enn að væla undan gríðarlega áfallinu sem þeir urðu fyrir þegar annað poppaði út hjá Janet Jackson!!! Lesið þetta endilega ef þið viljið hneykslast!
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
15:37 þann 24. janúar 2005 - hvalur
Jamm og jæja
     Nú er enn ein helgin liðin og fór í tóma vitleysu, vakti til að verða fimm ca. báðar nætur og fór svo seint að sofa í gærkveldi. Mun því eyða deginum í að urra á alla viðstadda. Á föstudaginn fór ég í pottinn uppí breiðholti, stefni á að gera það mun oftar, ekki verra ef það væri stærra hlutfall kvenfólks þó. Einhverjir frambjóðendur? Þá tókst Ásgeiri einmitt að bleyta símann sinn hressilega en hann lifði af, eftir þónokkrar endurlífgunartilraunir!!! Laugardagurinn fór í svefn, tölvu og vídjó. Auk þess sem það komu hérna nokkur múldýr og lögðu íbúðina í rúst, óvíst hvort við hleypum þeim dýrum aftur í grettistakið, allavega svona blautum.
Býst samt við góðri viku, valdís mín komin suður að vera fram á sunnudag og kom með tvær skjaldbökur með sér og sú þriðja kemur á fimmtudaginn. Býst ekki við öðru en hlátrasköllum og tilheyrandi látum og skrækjum fram á sunnudagskvöld.
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kata skrifaði síðasta svar

 
20:27 þann 21. janúar 2005 - hvalur
Bláfjallaferð
     Þessi dagur bjargaði næstu vikunum, þvílíkt eðalveður og færið í brekkunum var massafínt, hefði mátt vera meira púður en fór bara batnandi með deginum. Bókað mál að maður gerir meira af þessu í vetur, verst hvað þetta kostar, 1200 kall dagurinn, kannski ekki mikill peningur fyrir alla þjónustuna en samt gott gat í fjárlög fátæks námsmanns. Útsýnið kom mér gríðarlega á óvart, úr efstu brekkunni mátti sjá gríðarlega víða í nánast allar áttir, svo var sólin komin lágt á loft og í gegnum skíðagleraugun var þetta þvílík litadýrð. Ussss, þið misstuð af miklu.
Þetta skíðasvæði pumpar Reykjavíkursvæðið upp um marga flokka gagnvart mér verð ég að segja!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
15:45 þann 20. janúar 2005 - hvalur
Framleiðsla sýklavopna
     Var að koma úr verklegum örrara (örverufræði) þar sem ég var að framleiða e-coli í massavís, passið ykkur bara. Bögg þýðir högg!!! Gæti þrusað einni petri skál af ecoli í rúmið ykkar ef ég t.d. tapa fyrir ykkur risk, nefni það bara sem dæmi svona.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

10:40 þann 20. janúar 2005 - hvalur
Sumarið lokkar
     Ég verð nú að játa að á svona köldum vetrardögum hlakkar mig aðeins til júní og júlí, að liggja í leti á heitum sumardegi og grafa tunguna í dísætu brynju-/leiruísana. Vildi að þetta væri bara í næstu viku, en... þá kæmist maður ekki á skíði!!! Skíði á föstudaginn!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

00:51 þann 20. janúar 2005 - hvalur
Risk kvöld á miðvikudögum
     Ég verð nú bara að lofa þann mann í hástert sem hannaði þetta spil! Var semsagt að ljúka góðum leik af Risk við hálfa Erlings ættina, þ.e. Kára, Sigga og Ernu. Leikurinn var æsispennandi, á augnabliki leit út fyrir að Sigurður myndi taka þetta en fyrr en varði tók Kári okkur öll í þurran. Var nú ekkert sáttur, gerði sennilega þau taktísku mistök í byrjun að halda að ég fengi frið til að seilast eftir Asíu í rólegheitunum. Jæja Kárinn vann semsagt og var nú líklega kominn tími til, lítið sem ekkert búið að ganga í Riskinu í vetur.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar

00:34 þann 19. janúar 2005 - hvalur
Mig langar svo...
     ... á skíði!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 10 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

23:06 þann 17. janúar 2005 - hvalur
Spennandi lífefnafræði í vetur
     Haldiði að ég hafi ekki bara bjargað tveimur reykvíkingum úr nauðum í dag, báðir fastir innan svæðis háskólans og spólandi eins og hálfvitar. Merkilegt með þessa Reykvíkinga og ökuhæfni þeirra, virðist vera á við meðalbaun.
Í dag fór ég í fyrsta verklega lífefnafræðitímann minn, bjóst við að hann yrði helvíti langur og leiðinlegur en viti menn hann leið bara skrambi hratt. Var ekki verra að kennarinn er hálf elliær og svolítill prakkari í sér. Ég er semsagt eini strákurinn í þessum 12 manna hóp og í dag vorum við að vinna með loftsog og einhver efni og eitthvað. Nema hvað, gamli kallinn er eitthvað að ræða við næsta hóp og það virkar ekki sogið hjá þeim. Þegar hann er búinn að gera við þetta hjá þeim labbar hann framhjá mér og segir í leiðinni eitthvað í líkingu við: "væri flott ef þær gætu reddað sogi fyrir mig" og glotti svo gríðarlega út í annað :D Algjör snillingur held ég bara.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
02:16 þann 16. janúar 2005 - hvalur
Góð ferð burt úr sollinum
     Á Föstudagskvöldið var planið að fara í fimm manna ferð uppá Botnssúlur í Hvalfirði, ætlunin var að rölta í skálann Bratta gista hann og svo fara á toppa og heim daginn eftir. Ákveðið var að leggja ekki í það vegna óhagstæðrar verðurspár og stefnan tekin annað í bili. Eftir miklar rökræður, vangaveltur, snúninga, pælingar, át, rugl o.fl. var loks ákveðið að leita á Hengilsvæðið og var rölt af stað (einum fátækari) frá einhverju skíðasvæðinu um 23-24 leytið(smávegis seinkun). Eins og glöggir hafa getið sér til um var komið myrkur og því lítið skyggni eftir því, munaði minnstu að skíðamenn (ég og Fimbi) hröpuðu í gil og skorninga. Júbbi og Baldur voru gangandi semsagt og Ásgeir heimandi. Eftir mikla barninga og getgátur um staðsetningu og tilveru skálans komum við loks í skála um 2-3 leytið, ansi ánægðir með þann áfanga. Skálinn heitir Múlasel og er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, fínasti skáli, tiltölulega nýlegur og hreinn, þó er hvorki kynding né eldunaraðstaða til staðar, aðeins hrúga af teppum. Fyrir svefninn snæddum við Finnbogi gúrmet máltíð í boði mountain house, held að finnbogi hafi aldrei borðað betri mat barasta, allavega mátti álykta það út frá tilheyrandi stunum og ánægðulátbrögðum.
Eftir margar góðar hrotur og hæfilega hvíld var risið á fætur um ellefu leytið, étið og svo rölt heim á leið aðra flatari leið en þá sem valin var kvöldið áður. Á leiðinni heim fengum við himnasendingu þar sem til okkar var varpað konfekti í fallhlíf, eigum við flugmönnunum bestu þökk fyrir það. Hópurinn var mættur í borgina aftur um 19-20 leytið, svangir og skítugir. Fátt betra en að skreppa í svona stutta og þægilega ferð í náttúruna og ekki skemmir nú að komast aðeins á skíðin.
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >