| 09:38 þann 05. mars 2005 - hvalur Kominn heim í heiðardalinn Þá er maður kominn heim í sæluna, Akureyri það er... Yndislegt að sjá bæinn birtast þegar ég, Ásgeir og Kata steinsofandi afturí komum yfir Moldvörðuhálsinn Ferðin að sunnan gekk bara vonum framar, auður vegur svo langt sem augað sá, nema á Öxnadalsheiðinni að vísu, smá slabb þar en ekkert sem stoppaði Urabus tækið :D Svo var tekin smá pása í Blönduós, þar sem við litum inn til Bebbýar, ömmu Kötu og samstarfsfélaga pabba frá örófi alda Ég vissi reyndar ekki að hún hefði unnið í slippnum fyrr en við fórum en engu að síður. Verst þykir mér þó að færið í fjallinu sé eins og það er, varla mönnum sæmandi að ég held, svo ég var ekkert að hafa skíðin með mér norður, stefnir því í letihelgi eins og þær gerast bestar :D Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
| 11:56 þann 03. mars 2005 - hvalur Risíkó Hjörturinn kom í heimsókn í gærkveldi og var að sjálfsögðu neyddur til að elda gourmet máltíð eins og venjulega þegar hann mætir Það var því ofnbakaður kjúklingur í matinn og kók með, massafínt. Eftirá var svo brugðið á leik með rísíkó-spilið (RISK), þar sem Dávíðurinn var mættur vorum við fjórir sem tókumst á um heimsyfirráð. Davíð varð fljótlega úr leik, hann reyndi jú að ná norður ameríku sem hefur oft reynst banvænt. Það fór þó svo að lokum að Kári var kominn með þrjár eða fjórar heimsálfur og sigraði semsagt geimið. Við náum okkur niðrá honum næst bara, skrambans löggubuffinu...Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 10:39 þann 01. mars 2005 - hvalur Draumar eru og verða draumar, ég vona það allavega... Jæja, mig dreymdi svona helvíti fínan draum í nótt; Draumsvið: Draumurinn á sér stað í þessum hversdagslega heimi nema hvað að glæpamenn eru teknir höndum og þeim breytt í kanínur og svo sendir til vistar á öðrum hnetti með öðrum glæpamönnum í kanínuformi :D Allavega erum við Valdís eitthvað á ferðinni, þá koma einhverjir bandíttar, glæponar semsagt og eru með eitthvað vesen, skyndilega breytast þeir í kanínur og eru þá settir á þessa fangaplánetu. Einhverra hluta vegna ákveðum við Valdís að elta þá til kanínuplánetunnar, eigum sennilega einhverjar óuppgerðar sakir við þá... Næsta sem ég veit er að við Valdís erum komin á kanínuplánetuna, þar líta allir út eins og venjulegt fólk nema við, við erum orðin að kanínum, duló. Jæja, við skiljum hvorki upp né niður en í ljós kemur að við erum orðin eftirlýst, fólkinu á kanínuplánetunni er illa við okkur. Og kanínuplánetan er í raun alveg eins og jörðin nema aðeins svona ævintýralegri í háttum og venjum Jæja við finnum fjölskyldu mína sem virðist vera þarna (fullt af venjulegu fólki virðist vera til staðar án þess þó að vera neitt bendlað við glæpi) og þau fallast á að fela okkur fyrir yfirvöldum.Skyndilega koma vondir kallar í formi kanína í leit að okkur Valdísi en við rétt náum að fela okkur. Þeir eru svo þarna í námunda við heimili mitt á kanínuplánetu að leita að okkur í talsverðan tíma á meðan við Valdís felum okkur undir eldhúsborðinu á heimili foreldra minna :D Jæja, ég ákveð að sætta mig ekki við þessa kúgun mikið lengur, ákveð að rísa upp á móti ógnvaldinum og við Valdís förum í Hjalteyrargötu þar sem við finnum teymi björgunarsveitarinnar Súlna viðbúið að hjálpa okkur í baráttunni við vondu kanínukallana :D Svo man ég ekki meir, rennur út í móðu eitthvað svo bara... Ef þetta er ekki steiktur draumur þá veit ég ekki hvað, mig dreymir nú yfirleitt ekki mikið en ég held bara að þegar mig dreymir, að þá dreymi mig fyrir mánuð í einu :D Talandi um kanínur, minnir mig á þetta, gamalt og gott :D Einhver skoðun á málinu? ( 11 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 09:51 þann 01. mars 2005 - hvalur Ár og dagar líða Jæja, nú fyrst er maður farinn að eldast, farinn að frétta af fyrrverandi bekkjarsystkinum sem komin eru með fleiri en eitt barn og búin að gifta sig, auk þess sem ég fór í sund í morgun með öllu gamla fólkinu, eldhressu alveg hreint. Sé mig ekki alveg fyrir mér þessa stundina harðgiftan og með krakkaskara... Ekki það að það væri verst í heimi neitt ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Kristín María skrifaði síðasta svar |
|
| 09:04 þann 28. febrúar 2005 - hvalur Skúffa og pönnsur Jæja, mættur í skólann og fyrsti tíminn búinn á eldhressum mánudagsmorgni. Gerir daginn þó aðeins skárri að ég er með nesti frá bakstrinum í gær, bakaði skúffuköku og steikti pönnukökur. Hlakkar til að fara í kaffi, annars lítur út fyrir langan og erfiðan dag ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 23:45 þann 24. febrúar 2005 - hvalur Samfélagsgildin í hnignun Úff, var í smá stöðvaflakki í imbanum eins og svo oft áður, eftir að hafa horft á Supersize Me með káranum. Rakst á þáttinn The Swan á s1. Það var bara niðurdrepandi að horfa fyrst á heimildarmynd um hætti kananna og svo þetta rusl um svani. Fyrir þá sem ekki vita hvað The Swan er, þá er þetta raunveruleikaþáttur þar sem nokkur sprund eru valin og þeim veittar fegrunaraðgerðir og ýmsar breytingar þeim að kostnaðarlausu. Það sem meira er að þessar stúlkur voru bara alls ekkert það ljótar fyrir að mér sýndist, kannski ekki þær fríðustu en heldur ekki neitt sem maður tæki eftir sérstaklega. Held þetta sé aðeins mis, menn að fara pínu of mikið út í öfgar hérna... Gef þessum þætti því rauða spjaldið :D Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar |
|
| 23:31 þann 22. febrúar 2005 - hvalur Lífið verður nú bara ekki mikið betra ;) Jæja, ýtti óvart á enter þarna áður :D Úff, eldaði mér búkolla ala Helgi í kvöldmatinn, fór svo í bolta í kópavoginn og brenndi af mér búkolluna og nú sit ég uppí sófa, hlusta á góða tónlist og les bók, sötra á baileysnum mínum og skófla í mig súkkulaðiís. Bara að þetta væri alltaf svona! Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 23:27 þann 22. febrúar 2005 - hvalur Lífið verður nú bara ekki mikið betra ;) Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 09:22 þann 22. febrúar 2005 - hvalur Nennekkaðlæra Jamm og jæja, þetta gengur svona. Það er tíðindalaust á vígstöðvunum þessa dagana. Valdís var hérna um helgina, var að kynna eitthvað verkefni um nuddgalla fyrir ungbörn, fékk frítt ride suður í skiptum fyrir smá fyrirlestur í norræna húsinu með lilý og unu. Við skruppum í keilu á föstudagskvöldið þar sem mér tókst að kreista út ein 130 stig sem dugði til sigurs, nokkuð sáttur með það bara. Við Valdís ætluðum svo í smá búðarölt á laugardaginn, höfðum þó ákveðið að versla ekki nokkurn skapaðan hlut þar sem við erum jú fátækir námsmenn. Það endaði þó þannig að Valdís keypti sér bol á 5k og þar sem hún hafði jú brotið sáttmálann ákvað ég að ég mætti nú eyða 3k í eitt stykki húfu. Mig vantaði nefnilega akkurat svona húfu Ótrúlegt hvað það er létt að eyða þessum spírum alltaf hreint! Sé einmitt fram á lítið fjárstreymi svona undir lokin í vor.Í dag ætla ég mér að lesa eilítið í lífefnafræðinni og svo mæta í bráðskemmtilegan vefjafræðitíma seinnipartinn. Sjáum til hvernig til tekst. Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 18:42 þann 18. febrúar 2005 - hvalur Algjörlega misheppnuð rímorðaleitarvél Rakst á þessa misgáfulegu rímorðaleitarvél, svo virðist sem ekki sé hægt að forrita tölvur til að finna rímorð svo vel sé. Kíkið á þetta. Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Elías skrifaði síðasta svar |
|
| 18:16 þann 18. febrúar 2005 - hvalur Ég ávarpa lýðinn vegna alvarlegs máls sem komið hefur upp á borð mitt Gott fólk nú hefur borið á því að menn séu að ryðjast inná síðuna án þess að hafa kvittað nokkurntíman í gestabókina. Ég ráðfærði mig við Kárann og lagaskruddurnar hans sem hann kann utan af og kom í ljós að viðurlögin eru gríðarleg. Því flaug mér í hug að vara fólk við svo enginn hlyti skaða af!!! Ekki viljum við að Kárinn fari að handtaka mann og annan og stinga í hegningarhúsið hérna í næsta húsi, hmmm... Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
|
|