05:04 þann 22. mars 2005 - hvalur
Jæjajæja
     Farinn til hollands, veriði sæl að sinni þið sem heima sitjið :D Vonandi hittumst við og heyrumst aftur
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

20:05 þann 21. mars 2005 - hvalur
Allir að kaupa sér rottu!!!
     Var að horfa á kastljósið þar sem bekkjarsystir mín í líffræðinni (held ég) var að auglýsa rottur til sölu, endilega bítið á agnið :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

01:11 þann 21. mars 2005 - hvalur
Hollaralandið góða
     Allt að gerast, nú er maður farinn að skrifa lista til að skipuleggja farangur og allt sem þarf að brasa á morgun, hef litla trú að ég sofi mikið í nótt... :D Annars líst mér bara skrambi vel á þetta, lítur út fyrir að við látum ráðast með gistingu, finnum út úr því þegar við komum út, svo er maður búinn að vera að viða að sér upplýsingum um söfn og staði sem vert er að skoða
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

18:43 þann 20. mars 2005 - hvalur
Þá er það golf og ekkert annað
     Er að pæla i að setja kraft í að æfa golf íþróttina, þetta sannfærði mig :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
12:25 þann 19. mars 2005 - hvalur
Eiginlegt páskafrí
     Jæja, þá er maður kominn í eiginlegt páskafrí, fyrir utan einn tíma á mánudag eða svo... Teddi ætlar að koma suður á morgun, þá ætlum við að brasa í kynningum, kaupa hákarl og tilheyrandi. Svo liggur leiðin bara á Keflavíkurflugvöll á þriðjudagsmorgun eða nótt öllu heldur, eigum flug um áttaleytið, maður þarf að öllum líkindum að rífa sig á fætur um 5 leytið eða eitthvað!!! Þá eigum við tvo daga í Amsterdam í einhverja vitleysu og svo förum við til Buitenzorg á ráðstefnu fram á mánudag, svo er bara heimferð á þriðjudag. Þegar þetta er búið lítur bara út fyrir að páskarnir séu búnir og skóli daginn eftir...
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

01:31 þann 16. mars 2005 - hvalur
Hjúkket maður
     Nú munaði mjóu, ég var alveg við það að fá taugaáfall, var að leita að vegabréfinu mínu, var búinn að tæma út úr öllum skápum og hirslum. Sá fram á að þurfa að borga yfirvaldinu milljónir króna fyrir flýtiafgreiðslu á vegabréfi (ef það er hægt á innan við viku) svo ég kæmist nú örugglega til Hollands og til baka. En auðvitað hafði ég komið vegabréfinu fyrir á "góðum stað". Svo það lítur allt út fyrir góða ferð til Hollands :D Alltaf gott að koma hlutunum fyrir á svo góðum stöðum að maður finni þá ekki sjálfur...
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
23:21 þann 14. mars 2005 - hvalur
Menn verða að vera klárir á reglunum!
     Rakst á þessa snilld á blogsíðu sem ég fann þegar ég var að leita að íslenskum fánum á leit.is, eins duló og það virðist vera... :D

1. Hver leikmaður skal leggja til eigin útbúnað til leiksins, venjulega eina kylfu og tvær kúlur.
2. Leikur á vellinum verður að vera samþykktur af eiganda holunnar.
3. Ólíkt golfi utandyra, er takmarkið að koma kylfunni í holuna og halda kúlunum frá.
4. Fyrir árangursríkan leik, skal kylfan hafa stíft skaft0 Vallareigandum er leyfilegt að kanna stífni skaftsins áður en leikur hefst.
5. Vallareigendur hafa full réttindi til að banna kylfulengd til að forðast skemmdir á holunni.
6. Takmark leiksins er að taka eins mörg skot og nauðsyn þykir þangað til fullnægjandi leik er náð. Ef úrskeðis fer getur það valdið banni til að leika aftur.
7. Það er álitið slæmt leikform að byrja leik í holu strax eftir komu. Reyndir leikmenn taka venjulega tíma í að dást að öllum vellinum, með sérstakri áherslu á vel lagaða hóla og sandgryfjur.
8. Leikmenn eru varaðir við að minnast á aðra velli sem þeir hafa spilað á eða þá sem þeir eru að spila á við eiganda vallarins sem spilað er á0 Eigendum í uppnámi hefur verið vitað til þess að valda skemmdum á búnaði leikmanns fyrir þessar sakir.
9. Leikmönnum er ráðlagt að hafa almennilegan regnbúnað meðferðis, til vara.
10. Leikmenn skulu ekki gera ráð fyrir að völlurinn sé alltaf í ástandi til að leikið sé á honum. Leikmenn gætu farið hjá sér ef að þeir komast að því að völlurinn er í tímabundinni viðgerð. Leikmönnum er ráðlagt að vera einkar gætnir undir þessum aðstæðum. Reyndari leikmenn munu finna breytilegar aðferðir þegar svona stendur á.
11. Leikmenn skulu gera ráð fyrir að leikurinn sé almennilega áætlaður sérstaklega þegar leikið er á nýjum velli í fyrsta skipti. Fyrrum leikmenn er vitað til að verða pirraðir ef að þeir uppgötva að einhver annar er að leika á það sem þeir hafa álitið einkavöll.
12. Eigandi vallarins er ábyrgur fyrir vexti runna, sem geta dregið úr sjáanleika holunnar.
13. Leikmönnum er sterklega ráðlagt að fá leyfi eigandans áður en reynt er að leika á bakhlutanum.
14. Hvatt er til hægs leiks, samt sem áður skulu leikmenn vera viðbúnir við að leika á meiri hraða eftir óskum eiganda.
15. Það er álitinn framúrskarandi árangur , ef tími gefst til, að leika á sömu holu nokkrum sinnum í einum leik.
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Anna Panna skrifaði síðasta svar

18:11 þann 13. mars 2005 - hvalur
Hress á því bara
     Téið sameinaðist á ný í gærkveldi, samtals mættu 11 manns, þ.e. ég, Finnbogi, Hulda, Inga, Kristín, Halldór, Tryggvi, Katrín, þá vantaði Kareni, Viðar, Sveinu, Guggu, Helgu og Nönnu. Auk þess voru á svæðinu Ásgeir, Anna og Unnur, sérhljóðaliðið ;P Gleðskapurinn gekk bara skrambi vel, fyrir utan tvær góðar sullubjöllur :D Neinei, allt fór siðsamlega fram og endaði vel, þ.e. með vöfflum úr vöffluvagninum og pizzusneiðum frá Pizza Pronto.
Svo er bara rauða hverfið í Amsterdam næst á dagskrá eftir rétt rúma viku
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | karen partípúper skrifaði síðasta svar

11:44 þann 08. mars 2005 - hvalur
ajæJ
     Horfði á Notebook með Kötu uppí Breiðholti í gærkveldi. Þetta var bara ágætis mynd, svona angurvær rómantík eitthvað, hefði viljað að hún hefði endað á þennan klassíska máta en þá hefði ég sennilega kvartað líka hvort sem er svo...
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

 
14:34 þann 07. mars 2005 - hvalur
Enn einn mánudagurinn runninn upp
     Helgin var skrambi fín, fyrir utan það hvað hún var alltof stutt eins og venjulega. Nú er maður kominn suður í suddann á ný og vikan lítur ósköp venjulega út eitthvað, skátafundur í kvöld, hugsanlega bolti á morgun og svo chill og bókalestur fram að helgi. Svo verður að vísu magnað T-partý á laugardagskvöldið, þ.e. ef það var ekki planað of langt fram í tímann ;)

Annars er mest lítið í fréttum nema það að ég er að fara til Hollands 22. Mars :D Jeij, við Teddinský erum að fara á ráðstefnu í Baarn ekki langt frá Amsterdam, þar á að ræða leiðir til að auka skipti á sjálfboðaliðum á milli skátamiðstöðva í henni Evrópu. Við Teddi ætlum að eyða einum 2-3 dögum fyrir ráðstefnuna í Amsterdam og aldrei að vita nema við droppum inn í rauða hverfið Komum svo aftur 29. Mars að ég held.
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

09:38 þann 05. mars 2005 - hvalur
Kominn heim í heiðardalinn
     Þá er maður kominn heim í sæluna, Akureyri það er... Yndislegt að sjá bæinn birtast þegar ég, Ásgeir og Kata steinsofandi afturí komum yfir Moldvörðuhálsinn Ferðin að sunnan gekk bara vonum framar, auður vegur svo langt sem augað sá, nema á Öxnadalsheiðinni að vísu, smá slabb þar en ekkert sem stoppaði Urabus tækið :D Svo var tekin smá pása í Blönduós, þar sem við litum inn til Bebbýar, ömmu Kötu og samstarfsfélaga pabba frá örófi alda Ég vissi reyndar ekki að hún hefði unnið í slippnum fyrr en við fórum en engu að síður. Verst þykir mér þó að færið í fjallinu sé eins og það er, varla mönnum sæmandi að ég held, svo ég var ekkert að hafa skíðin með mér norður, stefnir því í letihelgi eins og þær gerast bestar :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >