13:15 þann 11. apríl 2005 - hvalur
Óli ækon
     Var að lesa fréttablaðið rétt í þessu svona yfir hádegismatnum, merkilegt hvað er mér nauðsynlegt að gera eitthvað annað um leið og ég borða, get ekki bara setið og borðað og gert ekkert. Jæja í fréttablaðinu sá ég bent á blogsíðu óla handboltaækons og í framhaldi af því sá ég fyndnar myndir af honum á einhverri myndasíðu , kíkið á þetta, myndirnar af óla birtast þegar klikkað er á andlitið í efra vinstra horninu... Maðurinn er mjög spekinslegur á þessum myndum :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Arnar skrifaði síðasta svar

20:43 þann 09. apríl 2005 - hvalur
Ja fussumsvei
     Var að bera út með öllum hernum af systkinum með liðsauka úr annari familíu, við Ásta tókum part af byggðavegi, hrafnabjörg og klettaborg. Á þessum fína göngutúr uppgötvuðum við Ásta að ég kunni ekki að gera ákveðið hljóð með munninum...svona eins konar liggaligga lálá hljóð, kann nú ekki að útskýra það nánar en...eyddum semsagt öllum tímanum í að kenna mér að gera þetta hljóð, er alveg að komast uppá lagið með þetta núna... :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

12:45 þann 07. apríl 2005 - hvalur
Minnið eitthvað að bregðast
     Gleymdi aðalatriðinu sem ég ætlaði að rita um, gaurinn í íbúðinni fyrir neðan okkur virðist vera í einhverri fýlu við okkur þessa stundina. Hann virðist allavega vera að leggja sig fram við það að bora í loftið hjá sér (þ.a.l. gólfið hjá okkur) í þeim tilgangi að trufla mig við lesturinn og vekja kára af værum blundi...fólk bara býr ekki yfir neinu sem kallast tillitssemi nú til dags :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Kata skrifaði síðasta svar

12:41 þann 07. apríl 2005 - hvalur
Gróðrarstía
     Við fengum svona líka fínt heimaverkefni um páskana í örverufræði, áttum að setja smásjárgler á einhvern stað þar sem það gæti safnað á sig örverum, svosem í fiskabúr, blautan blómapott eða eitthvað álíka. Á eftir á semsagt minn hópur að mæta með afraksturinn, sjálfur nældi ég mér í smá moldarköggul út í hollandi og örlítið fuglsblóð, smellti þessu í krukku með vatni svo greyið örverurnar hefðu nú eitthvað að drekka...og flaug með þetta heim til Íslands. Nú á bara eftir að koma í ljós hvort ég hafi flutt inn morðóðar hollenskar bjórbakteríur sem vega mann og annan...
Í augnablikinu sit ég hér við herbergisgluggann minn og stari á snævi þakta esjuna og reyni að einbeita mér að lífmælingaverkefni, mmm mig langar bara ekkert til þess að stinga af og fara á skíði, neibb, það eina sem mig dreymir um akkurat núna er að leysa þetta lífmælingaverkefni ;p
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
16:52 þann 06. apríl 2005 - hvalur
Hversdagsleikinn
     Hvernig stendur á því að maður er að þvælast þetta í skóla í tugi ára nánast en ekki þvælast um heiminn og skemmta sér eins og hægt er líkt og Simon Yates gerir...illskiljanlegt. Fór einmitt á þennan fína fyrirlestur hjá honum um daginn, svosem lítið um hann að segja nema snilld og bara til þess fallinn að vekja upp hjá manni ævintýraþrá, kannski ekki til þess að drepa sig á fjöllum en til að sjá meira af heiminum :D
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

14:49 þann 03. apríl 2005 - hvalur
Einn ég sit og sauma
     Hér situr maður og neyðir sjálfan sig til þess að lesa Vefjafræði, mér finnst það reyndar mjög fínt og alls ekkert leiðinlegt við það en einhvernveginn er samt mjög erfitt að koma sér að því að lesa þetta og læra, einbeitingin endist í svona tvær mínútur ca. og þá finn ég mér alltaf eitthvað annað að brasa...
Gærkvöldið var alveg ljómandi, grilluðum hátíðarmat, borðuðum á okkur gat, drukkum fríhafnardrykki ;) spiluðum á spil, skruppum út á lífið. Fórum einmitt inná Hressó þar sem bévítans Heiðar Austmann var að halda uppi fjörinu (rann ekki beint vel ofan í okkur), við létum okkur hafa það samt sem áður. Þar rákumst við á ýmsa kynlega kvisti, ungar stúlkur sem báru belti í buxnastað, þ.e. "pils" sem var svo stutt að það náði nánast ekki niður fyrir nafla, hvað þá neðar :D Þá voru þarna tveir menn sem höfðu nokkur ár á okkur hin, sennilega ein 40-50 ár á mig, voru báðir orðnir alveg hvíthærðir og voru hvað harðastir í trylltum dansi þarna við taktfasta hljóma ruslönu og fleiri heimsklassalistamanna Vöktu einskæra hrifningu okkar strákanna, hugsuðum sennilega allir: "svona ætla ég að verða þegar ég verð 65!!!" :D Pottþéttir á þessu gaurarnir!
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

02:01 þann 02. apríl 2005 - hvalur
Crappy mynd
     Athugið fólk, ef þið rekist á myndina Sphere úti á vídjóleigu með Dustin Hoffmann, Samuel L. Jackson og Sharon Stone í aðalhlutverkum, ekki leigja hana, hún er ömurleg!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 
23:35 þann 31. mars 2005 - hvalur
Snæðingur í harðvöruversluninni Brynju
     Okkur Kára var boðið í kvöldverð til Brynju frænku og át ég þar á mig gat, ekki þótti mér heldur verra að í eftirmat var ein af kökunum eftir uppskriftum Bettý frænku, súkkulaðikaka sem bráðnaði í munni, mmmm. Það er alveg vandamál hvað góður matur er góður, einfaldlega ekki hægt að neita sér um hlutina... Af einhverjum dularfullum ástæðum tókst mér líka að gleyma ræktardótinu heima þegar ég fór í skólanna svo ég fór ekkert í ræktina í dag svo það lítur ekki út fyrir að kílóin hafi fokið í dag ;) Spurning hvort það má ekki uppgötva nýja leið til að lækka kílóatöluna, held ég leggist í að gera tilraunir mannkyninu til góðs, t.d. að éta bara góðan mat, gera bara eitthvað sem er skemmtilegt þegar maður er að hreyfa sig (engin hlaupabretti), fara oftar til útlanda, spila oftar tölvuleiki, læra minna heima, labba minna (ef það er hægt), skíða meira, liggja meira í leti, horfa meira á gott sjónvarpsefni, stunda meira næturlíf. Grunar sterklega að þetta sé uppskriftin að áhrifaríkri megrun en að enginn hafi uppgötvað það bara... Ég tileinka mér hér með einkarétt á þessari megrun sem mun efalaust sigra heiminn!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

23:42 þann 29. mars 2005 - hvalur
Snúinn aftur
     Jæja þá er maður mættur á skerið á ný :D Við Teddus skemmtum okkur alveg konunglega í landi hollaranna, ég ætla að droppa inn ferðasögunni við tækifæri, nenni því ekki núna... Annars er maður bara að taka uppúr töskum og koma öllu draslinu fyrir sem maður splæsti í, fór aðeins framúr fjárlögum en það hlýtur að bjargast að venju
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

21:10 þann 23. mars 2005 - hvalur
Amsterdam
     Tha er madur staddur a Bulldog bar i amsterdam, vid teddi vorum ad ljuka vid godan leik i pool, eg vann ;) Allt er i himnalagi, allir sattir, gistum tveir i fjogurra manna herbergi a hosteli rett hja midbaenum i rauda hverfinu. Tokum gott rolt i gaerkveldi a pobba og rauda hverfid, vard ad visu fyrir sma vonbrigdum med kerlurnar, voru allar laestar bak vid glerveggi bara og mis katar en litu margar skrambi girnilega ut. Annars er planid bara hressleiki i kvold likt og i gaerkveldi, og svo radstefna a morgun ut i sveit fram a manudag. Reikna med ad vid forum ta aftur til amsterdam og verslum rest og dettum kannski i tad;)
Hvad eydslu vardar er hun farin ut um gluggan, keypti mer north-face svefnpoka i dag svo tad er heldur litid eftir af fjarlogum ferdarinnar ;) Jaeja timinn ad verda buinn a tolvunni, 2 evrur duga skammt, vi hors
     Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

05:04 þann 22. mars 2005 - hvalur
Jæjajæja
     Farinn til hollands, veriði sæl að sinni þið sem heima sitjið :D Vonandi hittumst við og heyrumst aftur
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >