| 23:12 þann 28. apríl 2005 - hvalur Jæja, smá pása... Afrekaði það fyrr í kvöld að taka imbann bara úr sambandi svo það hefur gengið ágætlega að læra í kvöld, enda próf í fyrramálið... Í þessari prófatíð stefni ég að því að ná tveimur prófum af fjórum sem miðað við hvernig ég hef komið ár minni fyrir borð þessa önnina er ekki svo óraunhæft að ég held :/ Maður hefur bara setið á rassgatinu og ekkert gert í marga mánuði, sérstakur hæfileiki... ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 00:28 þann 28. apríl 2005 - hvalur Gleyminn eða... Æjæjæjæjæj, var að taka til og skrúbba eftir kvöldmatinn svona fyrir svefninn og fann fyrir einhverjum hita inní eldhúsi. Setti nefnilega smábrauð inní ofninn um hálfáttaleytið og viti menn, kvikindið var búið að vera í ofninum í 4-5 tíma svo það var orðið vel heitt Gaman að þessu...Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Anna Panna skrifaði síðasta svar |
|
| 12:36 þann 27. apríl 2005 - hvalur Skondin vinna... Þessa dagana virðast einhverjir iðnaðarmenn vera að brasa við að gera upp eitthvað húsnæði hérna á móti eldhúsglugganum hjá mér. Ég hef tekið eftir því að í ansi mörgum tilvikum þegar ég lít út um gluggann hjá mér standa þeir og reykja sígó og drekka kaffið sitt og spjalla saman eins og þeir eigi lífið að leysa. Var einmitt að virða fyrir mér útsýnið rétt í þessu um leið og kakósúpan var að malla á eldavélinni og standa þeir ekki þarna karlarnir og mala eins og eðalsaumaklúbbur bara :D Reyndar fullkomlega eðlilegt þar sem þeir eru örugglega í hádegismat á milli 12 og eitt(sá tími sem ég lít oftast á þá reyndar)... Fer samt ekki ofan af því að þetta er allt saman ein stór mafía, rétt eins og heima hjá finnboga, bilar eitthvað í pípulögnunum, kallað á pípara, píparinn rústar rafmagninu, kallað á rafvirkja, rafvirkinn rústar innréttingunni, kallað á smið, smiðurinn rústar veggnum, kallað á múrara, múrarinn rústar pípunum, píparinn mætir aftur og svona gengur þetta í hringi :D Allt hluti af norska samsærinu held ég bara... ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 10:30 þann 27. apríl 2005 - hvalur Svo lengi lifir sem lærir... Jæja, liðið fulllangt síðan síðast svo það er vissara maður fari að spreða einhvurju orðaskaki hérna... Lærði nýtt orð um helgina, orðið boffi sem er stytting á orðinu boyfriend semsagt. Eftir að hafa verið nefndur ,,boffinn hennar Valdísar" hef ég ákveðið að Valdís hljóti að vera ,,giffan" mín. Grettisgatan var semsagt tiltölulega uppbókuð um helgina, fengum Valdísi, Unu og Lilý í heimsókn semsagt. Stúlkurnar tóku þátt í keppninni Ungir Vísindamenn á föstudaginn og unnu að sjálfsögðu. Sigur fól m.a. í sér marga peninga á mann, bókagjöf og svo fría ferð á evrópukeppnina í Moskvu 17. Sept í haust. Jæja það var fjör á þeim stúlkum eins og venjulega og eitthvað fór nú kampavínið illa í mig á föstudagskvöldið, varð frekar stutt af minni hálfu það kvöldið. Annars var bara chill á liðinu um helgina svona... Þessa dagana er maður svo bara að reyna að læra eitthvað af því sem ,,gleymdist" að læra á önninni, sem er reyndar ansi ansi margt Kemur fljótlega í ljós hvað úr verður en ég hugsa nú að það verði ekki upp á marga fiska Maður uppsker víst eins og maður sáir því miður í þessu tilviki. Svo er bara komið sumar virðist vera, sólin farin að skína alla daga bara og fólkið svoleiðis hrúgast upp hérna fyrir utan Sólon í blíðunni að spjalla og menningast eitthvað á meðan ég kúldrast hérna uppá efstu hæð og rýni í stafina... Gaman gaman ![]() Eitt að lokum, rakst á þetta líka svaðalega heimabíóá ferðalagi mínu um netheima, ég ætla pottþétt að fá mér svona þegar ég verð stór!!! Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Skotta skrifaði síðasta svar |
|
| 23:47 þann 21. apríl 2005 - hvalur Magnaður dagur Þessi dagur var um margt óvenjulegur, byrjaði á því að ég vaknaði við angurværa rödd Finnboga hjala við eyra mitt. Finnbogi hringdi semsagt í mig og vakti mig. Eftir góðan morgunverð í boði boga fórum við í skrúðgöngu frá Arnarhól uppí Hallgrímskirkju þar sem við tók glæsileg guðleg messa með Óla grís sjálfum og BÍS hirðinni. Maður ætti nú að gera þetta oftar, verð samt að viðurkenna að mér fannst ansi margt hálf tilgerðarlegt við athöfnina en í heildina var ég mjög feginn að hafa farið, gott að gera þetta öðru hvoru svona... Að lokinni messu fór ég heim og lærði lífmælingar, aðallega fervikagreiningu... þar sem ég er þeim sérstaklega hæfileika gæddur að geta gert fleira en eitt í einu lét ég sjónvarpið ganga á meðan, mestmegnis tónlistarmyndbönd á popp tíví. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema hvað ég veitti athygli mynd á RÚV um Austurdal, Stefán Hrólfsson bóndi og gangnaforingi vakti sérstaka athygli mína fyrir orðsnilld og annað :D Sem dæmi um þessa snilld var samtal Stefáns og annars um almenna leti bónda í tengslum við vélar að leysa verk þeirra, tiltölulega orðrétt sagði ca. sjötugur karlinn: "það vantar bara að þeir fái vélar til að ríða kerlingunum...". :DEinhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 00:39 þann 20. apríl 2005 - hvalur Það held ég nú... Nú er maður aldeilis búinn að taka á því, ekkert smá stoltur sko... Skokkaði í dag til Ingu sem tók mig í einn af sínum frægu klukkutímagöngutúrum, ég held það sé öllum frjálst að hafa bara samband við hana og panta tíma :D Menn þurfa að vísu að vera tilbúnir til þess að ganga eins og þeir séu með skrattann á hælunum en það er ekki eins og maður hafi ekki gott af því... Svo fór ég í bolta í kvöld og kláraði mig gjörsamlega, var farinn að fá massíva kippi í kálfann undir lokin alltaf þegar ég hljóp, var sagt að þetta væri það sem fólk kallar krampa, hef aldrei lent í neinu svona áður. Að loknum göngutúrnum ákvað ég að þetta væri full mikil hreyfing af minni hálfu svo ég varð náttúrulega að bæta upp kaloríutapið og við skelltum okkur nokkur í ís í álfheimum til að halda uppá hreyfinguna og góða veðrið...Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 09:23 þann 18. apríl 2005 - hvalur Uppgötvun á áður óþekktum spekúlant Takið eftir gott fólk, nú hefur það uppgötvast að maðurinn sem ég bý með er ekki sá sem ég hélt, hann hefur verið að vinna í leyni að því að efla veg og vanda skátahreyfingarinnar síðan hann ,,hvarf" frá störfum... Það var semsagt skátaþing uppá Úlfljótsvatni um helgina og Kárinn var sæmdur heiðursorðu fyrir góð störf :D Hann á það nú líka fullkomlega skilið Nú er maður farinn að hlakka til sumarsins, að sleppa úr örmum skólans og skoppa út í sólskinið og lognið á Hömrum... Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 17:47 þann 17. apríl 2005 - hvalur Easy boxi Enn einu sinni er maður sestur niður og að reyna að aga sjálfan sig í lesturinn, gengur eins og endranær, maður endar á netinu að blogga eitthvað og brasa út í bláinn... Svaf uppí breiðholti í nótt í húsnæði skátafélagsins Seguls, þar stóð yfir útilega hjá stelpnasveitinni Mörgæsum og þótti vissara að hafa einhvern eldri viðstaddan, svo ég mætti um tólfleytið og glápti á eina ræmu með liðinu, fór svo að sofa þegar Judge Dredd tók við (stallóninn). Vaknaði svo í morgun og stakk af fyrir þrif Seinnipartinn var stefnan tekin á Sumar 2005 sýninguna í Fífunni í Kópavogi. Snérum þó snögglega við þegar við komumst að því að verðið jafngilti einu stykki bíómiða, fórum þess í stað í ísbúðina í vesturbænum og tróðum okkur út af nýja ísnum (sem er mun feitari en sá gamli, hálfgerður Brynju-ís).Jæja það er best maður fari að reyna að fara að þykjast læra eitthvað svona til tilbreytingar... Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!! |
|
| 16:56 þann 13. apríl 2005 - hvalur Stundum vildi ég að... ...það væru 48 klukkutímar í sólarhringnum. Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 16:30 þann 12. apríl 2005 - hvalur Keilikeil... Skrapp í keilu í gærkveldi með hálfdrættingum og d.s. í Segli, Kári karl flaut svo með að auki...sem reyndar olli því að ég keyrði í hringi í 10 klukkutíma hið minnsta!!! Allavega munaði gríðarlega litlu að ég ynni allt pakkið, þar sem undir lokin tóku keilurnar að falla með ótrúlegri lagni fyrir kúlunum sem ég þeytti niður brautina. Finnbogi fylgdi svo í kjölfarið með 352 stigum minna en ég Neinei segi svona...Í dag leit ég á klukkuna og sá að það er kominn tólfti apríl!!! Það þýðir að það eru...FÁIR dagar eftir af skólanum til að vinna upp læriletina í vetur! Nú liggja danir í því, jæja maður verður að reyna að girða sig og vaða skítinn uppí háls svo maður falli ekki í öllum prófunum allavega. Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 13:15 þann 11. apríl 2005 - hvalur Óli ækon Var að lesa fréttablaðið rétt í þessu svona yfir hádegismatnum, merkilegt hvað er mér nauðsynlegt að gera eitthvað annað um leið og ég borða, get ekki bara setið og borðað og gert ekkert. Jæja í fréttablaðinu sá ég bent á blogsíðu óla handboltaækons og í framhaldi af því sá ég fyndnar myndir af honum á einhverri myndasíðu , kíkið á þetta, myndirnar af óla birtast þegar klikkað er á andlitið í efra vinstra horninu... Maðurinn er mjög spekinslegur á þessum myndum :D Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Arnar skrifaði síðasta svar |
|
|
|