| 11:51 þann 17. maí 2005 - hvalur Daginn daginn.. Þá er maður að koma sér upp nýrri rútínu hérna í höfuðborg norðursins. Lítið gerst undanfarið svosem, bara byrjaður að vinna á Hömrum svona að einhverju leyti.. Leit augum á föstudagskvöld stærðarinnar ísjaka fyrir utan Blönduós.. áleit reyndar að þetta væri skemmtiferðaskip þar sem ég trúði ekki mínum eigin augum... Svo lítur út fyrir að maður skelli sér á forsýningu á Star Wars í kvöld, Sverririnn (brói Valdísar) bauð mér miða og ég gat nú ekki neitað því. Er annars þessa stundina að troða mér og mínum eigum inní herbergið hennar Valdísar í Heiðarlundinum, við mikla ánægju Á sennilega eftir að verða rekinn út aftur eftir nokkra daga þegar ég verð búinn að umturna öllu í herberginu og koma skipulagi á þetta ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 03:30 þann 15. maí 2005 - hvalur Nett pirraður eða... Jæja já, svo þið segið það, lenti í svolitlu "skemmtilegu" rétt í þessu. Familian fór á ættaróðalið á Skagaströnd yfir helgina, mamma fékk náttúrulega frí á mogganum svo það stefndi bara í náðuga heimkomu hjá kallinum. Dagurinn í dag fór í bras í vinnunni og eitthvað nema hvað þegar ég kem heim af Hömrum blasir við mér þessi líka rokna bunki af blöðum, Morgunblaðið semsagt, jæja ég álykta að þeir hafi klúðrað þessu á mogganum, hringi í mömmu og það stemmir. Það er svosem lítið að gera í stöðunni, veit ekki af neinu "neyðarnúmeri" fyrir blaðbera sem fá blöð sem þeir eiga ekki að fá, svo ég ákvað bara nett pirraður svona... að henda þessu í lúgurnar eftir eina ræmu heima hjá valdísi, með guggu, tótu, valdísi og hafdísi. Lítið annað að gera í stöðunni. Eftir ræmuna brennum við Hafdís heim, ég pakka draslinu í tösku og keyri part út og labba með rest, mumblandi við sjálfan mig að þetta sé hundfúlt og að mig langi að liggja uppí rúmi steinsofandi núna og eitthvað. Svo hefst ég handa við síðustu götuna... rölti framá eitthvað lið sem er vakandi og aðeins í því, rétti þeim blaðsnepilinn og býð kvöldið, þau svara og ég heyri svona á bak við: "bíddu fengum við þetta ekki áðan?". Ég ákvað bara að þetta væri eitthvað fylleríisröfl, held áfram minni iðju og við eitt af síðustu húsunum rekst ég á forláta eintak af sunnudagseintaki Morgunblaðsins dagsins 15. Maí 2005 í einni lúgunni... Jæja ég fékk nóg og strunsaði heim með rest af blöðunum, og ætla ekki að hreyfa minn rass meir með þetta blað í bili. Það lítur semsagt út fyrir að fjárans idiotarnir hjá þessu blessaða morgunblaði hafi útbúið tvo pakka fyrir mömmu hverfi, einn handa afleysingamanninum og einn handa mömmu, svo hefur einhver imbi á akureyri keyrt þetta út og nánast allir í hverfinu hafa fengið tvö eintök af mogganum!!!!!!!!!!!!!!!! Það sýður á mér hérna...en ætli það endi ekki með því að maður sjúgi inn magann og hristi þetta af sér, læt þau vita á mogganum niðurfrá á morgun en það verða tæpast miklar aðgerðir vegna þessa í höfuðstöðvunum fyrir sunnan Jæja færa sófa...Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar |
|
| 14:39 þann 13. maí 2005 - hvalur Breytt plan... ...ákvað að drífa mig bara norður í dag, bauðst vinna strax á morgun, fínt að fara að vinna uppí yfirdráttinn Maður er semsagt á milljón að pakka draslinu í allar tiltækar töskur og poka...þarf svo að ná í klósettpappír upp í árbæ, skutla honum uppí breiðholt, droppa smá pappírum til gjaldkera seguls, koma einni flíspeysu til skila. Þá þarf ég að drífa mig í grettisgötuna og setja draslið í bílinn, kveðja kárann og bruna norður á skagaströnd þar sem ég ætla að gista á ættaróðalinu í nótt.Það er nú frekar leiðinlegt að yfirgefa þetta penthouse okkar kára, áttum helvíti góðar stundir hérna og sambúðin hefur gengið eins og í sögu... gæti varla verið betra. Jæja, það er svosem ekkert slor á planinu á næstunni svosem og það mun örugglega fara vel um Kára hérna í höllinni út júlí...góðir tímar framundan þrátt fyrir að veturinn hafi verið sérlega góður. Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Skotta skrifaði síðasta svar |
|
| 16:33 þann 11. maí 2005 - hvalur Illu er best af lokið... ...sagði einhver og margir eftir það. Þá er maður loksins loksins búinn í þessum skrambans prófum, á svo eftir að koma rækilega í ljós hver árangurinn verður, er nú ekki gríðarlega vongóður þar að víkjandi :-/ Nú er planið að pakka og slappa af fram að norðurferð sem verður sennilega á laugardag / sunnudag, spurning hvort manni tekst að þræla sér í einhvern smá gleðskap áður samt... Gerði tilraun í gegnum tölvupóst til Svíþjóðar til að grenja út lægri leigu frá leigusalanum. Þar sem Kári verður maður einsamall í Grettisgötunni í sumar (lýsi hér með eftir leigjanda )...en ég bar semsagt ekki árangur sem erfiði (voru erfiðar lykilstrokur) og fékk þvert nei. Svo maður verður að blæða leigu fyrir höllinni eins og um var samið í upphafi þó maður gisti á norðurlandinu.Jæja, ætla að fara að njóta þess að gera ekki neitt svona til tilbreytingar...
Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 20:14 þann 09. maí 2005 - hvalur Þann merka dag níunda maí... ...á því herrans ári 2005 gerðist merkur atburður. Þar sem ég hef fengið margar spurningar varðandi þetta ætla ég að uppljóstra leyndarmálinu. Klukkan 20:12 að staðartíma átti Kárakvikindið lengsta fart sem sögur fara af, maðurinn losaði gastegundir í 4 mínútur og 22 sekúndur samfleytt. Að því loknu hló hann eins og síberíuberserkur og andaði að sér gufunum með slíkum ánægjustunum að nágrannarnir urðu hræddir, munaði minnstu að hún hringdi á lögregluna. Með forsjá minni tókst mér að spá fyrir um þennan merka atburð í morgun og þykir mér verða að hafa þennan dag í minnum í mörg mörg ár. Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 12:54 þann 09. maí 2005 - hvalur Verð annars að koma einu að... ...vildi þannig til um daginn að ég sá mann niðrí bæ um albjartan dag sem var greinilega atvinnumaður í að kíkja niður í bæ eins og fólk talar um. Mér þótti sýnt að maðurinn spilaði fyrir eitthvert erlent lið í þessari keppnnisgrein því þetta var túristi með kíki um hálsinn að rölta um á laugaveginum.... HAHAHAHAHAHAHA :O Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Kári skrifaði síðasta svar |
|
| 12:50 þann 09. maí 2005 - hvalur Nú fer þetta alveg að verða búið... Bara dagurinn í dag, morgundagurinn og fram að hádegi á miðvikudag og þá er þetta búið...er að verða þreyttur á þessu í bili svona...Svo þarf maður bara að pakka draslinu, vonandi verður svo eitthvað próflokadjamm og svo bara bruna norður í sólina og blíðuna...ekki slæmt. Var annars að ræsa kárann, ætlum að stelast til að kíkja í skeifuna á einhvern matsölustað og háma í okkur einhvern óhollan snæðing svona í tilefni dagsins, það er jú 9. maí gott fólk!!! Og eins og allir vita þá gerðist merkur atburður þann 9. maí þ.e... Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 14:02 þann 07. maí 2005 - hvalur Hitchhiker´s Guide to the Galaxy Skellti mér á þessa líka fínu mynd í bíó í gærkveldi. Algjör snilld verð ég bara að segja, ótrúlegt hvað menn geta haft öflugt ímyndunarafl! Nú sé ég ekki fram á annað en að ég neyðist til að kaupa bókina og lesa, grunar sterklega að bókin sé jafnvel ekki verri... Sennilega best samt að kaupa bókina ekkert fyrr en eftir síðasta prófið, hef nú fallið í þá gryfju einu sinni eða tvisvar að þurfa að lesa eitthvað allt annað en námsefnið í prófatíð Jæja, ætla að halda áfram að lesa um æsispennandi Southern Blotting, TATA raðir, Efliraðir og Phagocytosis...Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
| 14:49 þann 04. maí 2005 - hvalur Svona gengur þetta... Búinn með tvö próf og sennilega fallinn í öðru þeirra, eitt próf eftir þar sem ég sinnti ekki einu faginu og skilaði ekki öllum verkefnum, þ.a.l. enginn próftökuréttur þar. En maður reynir bara aftur... :D Semsagt frumulíffræðipróf 11. Maís og svo bara pakk pakk og heimferð eftir það. Annars er stefnan eins og er að vinna á Hömrum í sumar, Valdís fer svo til Rússaralands 17. Sept, snapa mér vinnu í haust einhversstaðar, Valdís verður að vinna á Gallup hugsanlega, aldrei að vita nema við Valdís nýtum okkur frímiðann og förum eitthvað langt í burtu eftir að hún kemur heim, svo er planið að fara til Sölden í Austurríki að vinna í lok Nóvember-Desember (ekkert búin að panta samt eða neitt sjóleiðis ennþá) og koma þá heim Mars/Apríl að ég held og snapa sér vinnu einhversstaðar sniðugt þá... Spennandi tímar framundan, það er ef eitthvað af þessu verður að veruleika, getur vel verið að allt breytist og maður sitji bara á rassinum og fari ekki neitt, aldrei að vita, allavega gaman að láta sig dreyma Svo er stefnan að fara aftur í líffræðina í HÍ haustið 2006 tvíefldur eftir ferðalög og skemmtilegheit...hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá...Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Hulda skrifaði síðasta svar |
|
| 11:21 þann 30. apríl 2005 - hvalur Grunsó... Held það sé verið að fylgjast með mér, veit samt ekki hvað ég á að hafa gert af mér nýlega, nema þá umgangast Ásgeir spassa í gær Ég var í mesta sakleysi mínu að skera niður bananananananana út í súrmjólkina mína í morgun við eldhúsgluggann, sé ég þá ekki sköllóttann haus sitja á svölunum (ca. 50-75 fermetra svalir sko) beint á móti eldhúsglugganum og stara á mig. Afar yndislegt með meiru, ég dreif bara í að skera bananann minn og einblíndi bara á að ljúka verkinu, vildi nú ekki vera að stara á móti karlinum. Nú er skallinn farinn af vakt og tveir karlmenn komnir í heitapottinn þarna á sömu svölunum, eru pottþétt með hlerunargræjur frá ríkislögreglustjóra... Ussss, nema þetta séu paparazzi, gæti líka verið.. eða viðbrögð við því þegar ásgeir stóð í eldhúsglugganum í gærkveldi með appelsínugulan byggingarhjálm á hausnum, klíndi andlitinu í glugganum og veifaði eins og snarbilaður kleppari í fólkið sem þá var staðsett á svölunum!!! Sennilega er það skýringin, koma sennilega menn í hvítum sloppum á eftir og ruglast á mér og geira og fjarlægja mig... Jæja, ætla að fara að hrúga drasli fyrir dyrnar og líma ruslapoka fyrir gluggana...Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Ásta litla skrifaði síðasta svar |
|
| 23:12 þann 28. apríl 2005 - hvalur Jæja, smá pása... Afrekaði það fyrr í kvöld að taka imbann bara úr sambandi svo það hefur gengið ágætlega að læra í kvöld, enda próf í fyrramálið... Í þessari prófatíð stefni ég að því að ná tveimur prófum af fjórum sem miðað við hvernig ég hef komið ár minni fyrir borð þessa önnina er ekki svo óraunhæft að ég held :/ Maður hefur bara setið á rassgatinu og ekkert gert í marga mánuði, sérstakur hæfileiki... ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
|
|