00:51 þann 27. júlí 2005 - hvalur
Þá er það búið
     Landsmótinu bara lokið og við tekur vinnan á ný, versló og svona.. yndislegt Landsmótið var tær snilld barasta, einstaklega gott veður, jafnvel of gott held ég bara, hræddur um að við munum eiga erfitt með að keppa við þetta veður á næsta landsmóti á Hömrum eftir þrjú ár, þrátt fyrir að Hamrar séu á Norðurlandi! Þetta gekk stóráfallalaust svona, vorum iðin við að heimsækja sjúkratjaldið en sjaldan um nokkuð stórvægilegt að ræða. Kom líka skemmtilega á óvart hvursu margir Akureyringar mættu á svæðið og gistu á fjölskyldustæðinu í kringum helgina. Massa mót semsagt..

Við Kári höfum nú sagt skilið við Grettisgötu 3, sennilega endanlega. Margar glaðar stundir þaðan.. Við skruppum semsagt af landsmótinu á Sunnudagsmorgun með eitt stykki Trooper og eina hestakerru, ætluðum að snarast í borgina, henda draslinu í kassa og jafnvel keyra aftur til Úlfljóts um kveldið. Dæmið reyndist þó heldur umfangsmeira en ætlað var og vorum við að til tæplega fimm á mánudagsmorgun, þá lögðumst við til svefns. Um klukkan hálfníu (ca. þremur tímum seinna fyrir þá reikningssljóu) risum við á ný upp, alveg eldhressir og kláruðum dæmið, kári komst af stað úr borginni á tólfta tímanum og rétt náði fyrir vakt klukkan 18 fyrir norðan. Ég fékk svo far hjá Marinó upp á Úlfljótsvatn aftur, á nýja Auðanum. Maður hefði haldið að flutningunum hefði verið lokið á þessum tímapunkti en nei, aulinn ég gleymdi að skila af mér lyklunum svo ég þurfti að ræna bílnum hans finnboga, renna í borgina með lyklana og bræla uppá Úlfljótsvatn á ný.. eðall. Jæja hátta...
     Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

19:05 þann 17. júlí 2005 - hvalur
Jebbs þannig er það víst
     Jæja, landsmót er víst næsta mál á dagskrá, brottför frá Akureyrensis klukkan níu á Þriðjudagsmorgunn, undirbúningur er í hámarki hjá Klökkurum og allt að smella saman. Í gærkveldi sendum við megnið af sameiginlega draslinu suður með flutningabíl sem kom í þeim tilgangi að ná í kanóana sem eru í eigu Hamra, þá á semsagt að lána á landsmótið. Í staðinn kom þessi líka massíva minigolfbraut og 2 stk. hjólabátar, góður díll það ;) Annars er ég búinn að klæða mig í minn árlega hvíta hlýrabol, þ.e. sólbrunninn til ösku upp að herðum og fyrir ofan háls en restin er einn hvítur málningarsamfestingur, mmmm dead sexy skal ég segja ykkur :D Það væri náttúrulega alveg út úr kú að bera á sig sóláburð!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Inga Björk skrifaði síðasta svar

 
10:00 þann 03. júlí 2005 - hvalur
Brasibras
     Jæja, henti mér aðeins inní macromediann og gerði smávægilegar breytingar, endilega látið vita hvort þetta er eitthvað þægilegra! Hvort sem það verður fyrr eða seinna... Sjálfsagt komið hálft ár eða eitthvað síðan ég brasaði síðast í síðunni eitthvað. Fyndið, síðan síðast síðunni Nú er ég búinn að setja þetta upp í tölvunni hennar Valdísar tiltölulega aðgengilega svo kannski fer maður að nenna að brasa eitthvað. Ekki sjens lengur að maður nenni að fikta í gömlu minni, maður þarf að bíða svona tíu mínútur eftir að hún prenti út stafina á skjáinn sem maður skrifar.. Sennilega allt of mikið af drasli í henni bara.. Jæja, best að drullast í vinnuna, ætti að vera mættur 10 ;)
     Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar

 
00:38 þann 02. júlí 2005 - hvalur
Dagurinn sem Hvalurinn var laminn
     Já gott fólk, það þurfti ekkert minna en traktorsgröfu til þess að ná mér niður;) Var semsagt að girða með traktorsgröfu, ég hélt staurnum og grafan ýtti þeim niður, eitt skiptið gleymdi ég að beygja mig og "donk" eitt stykki fimm tonna skófla í hausinn og Hvalurinn í jörðina, lappirnar lyppuðust undan mér bara og ég lá í grasinu. Sem betur fór brotnaði ekkert, stóð bara upp og gat haldið áfram.. Villi viðutan
Annars vaða fótboltabullurnar uppum allt þessa dagana, kvartandi og kveinandi, vælandi og veinandi. Bévítans lið
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

22:03 þann 26. júní 2005 - hvalur
Útigangsmenn
     Er búinn að vera að reyna að venja mig á fornar venjur, það er að setja mig í fótspor fornaldarmanna og hlaða undir berum himni. Búinn að sofa úti fjórar af síðastliðnum sex nóttum og er hver nóttin annarri betri. Var meira að segja orðið svo gott þriðju nóttina að ég svaf í einum dúr til hálfníu þegar ég var vakinn eftir skemmtilega páskaeggjaleit að mér Komst svo að því að um nóttina höfðu skátarnir verið að blaðra og vesenast til sex og haldið þannig vöku fyrir Önnu og Jens auk þess sem þau kváðu himnana hafa grátið beint í fésið á mér! og ég rumskaði ekki. Helvíti sáttur með þanna árangur.
Annars var ég semsagt í góðri skátaútilegu um helgina uppá Hömrum (félagsútilega Klakks fyrir landsmót) og tókst hún bara snilldar vel enda skipulögð í þaula af Eyfirðingnum ;) Svo maður er alveg úrvinda núna. Ætla að fara í wow núna og sofna í honum og helst sofa af mér allan morgundaginn!!!
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

10:50 þann 18. júní 2005 - hvalur
Valdís orðin stúdentasus
     Haldiði að kellingin sé ekki loksins orðin stúdent, stóð sig líka svona skrambi vel bara.. Var þó ekki með alveg sömu einkunnir og Helga Valborg sem fara þurfti nokkrar ferðir með hjólbörur uppá svið til að sækja verðlaunabækur og blóm, enda dúxaði hún með einkunn hærri en 9,5 að mig minnir...bara örlítið hærri en mín meðaleinkunn úr MA ;) Dagurinn í gær fór semsagt í veislur, át, veislur og át, ekki dagur af verri endanum það! Var að vísu ekkert að meika að éta aðalréttinn í höllinni þar sem ég var búinn að vera að háma í mig kökur í veislunni hennar valdísar liðlangan daginn
Þá er planið að vinna laugardag, sunnudag og svo verður massaferð með strákunum, þ.e. Kára og Finnboga á mánudag, þriðjudag og miðvikudag, óráðið hvert ennþá reyndar en það reddast. Þyrfti að fara að finna tíma til að þrífa úrabus-inn.
     Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

23:41 þann 09. júní 2005 - hvalur
Jamm og jæja eins og svo oft áður
     Fór á þessa líka fínu kvöldvöku hjá Klakki uppá Hömrum áðan, mættu nærri 40 manns, ansi gott það bara.. Nú er búið að ákveða að hafa prufutímabil í sumar þar sem strákasveitunum verður skellt í einn pott, stelpusveitunum í einn og flokkarnir bera þá bara sveitarnöfnin. Við Anna Eyfjörð ætlum að hafa puttana eitthvað í þessu dæmi ásamt núverandi sveitarforingjum sveitanna. Svo verða semsagt fundirnir haldnir á Hömrum í sumar og lítur ekki út fyrir annað en að verði roknastuð á liðinu, auðvitað bara allt uppá að bjóða þarna uppfrá... Kemur svo í ljós hvernig reynist og hvernig liðinu líst á þetta, hmmm?
     Einhver skoðun á málinu? ( 0 að nöldra) | Enginn hefur svarað!!

 
17:26 þann 08. júní 2005 - hvalur
Glymrandi Glamdringur :p
     Þetta gengur svona.. dagarnir hverfa einn af öðrum og sumarið laumast aftan að manni. Sá merkilegi atburður gerðist í fyrradag að ég keypti mér eintak af leiknum Heimur Stríðssmíða (þýtt af mikilli snilld og varfærni ) sem er bara snilld takið eftir. Svo við Ásgeir getum farið að hittast í netheimum og dorga við tækifæri ;) Svo held ég bara að Fimmmbogi og Kerlings neyðist til að kaupa sér eintak!!! Þá getum við farið í veiði saman bara :D

Þessa dagana er mikið rætt um hvernig þruma eigi upp nýju og fílefldu skátafélagi,Klakki, á Akureyri. Virðist allt vera að mjakast í rétta átt. Ég held því fram eins og svo margir aðrir að það eigi að staðsetja þetta bara allt á Hömrum, hafa fundartíma allra sveita jafnvel sama daginn. Þannig verður til svo gjörólíkt skátastarf frá því sem hefur verið undanfarið í Klakki. Kostirnir við að hafa þetta á Hömrum eru svo gríðarlegir og bara allt annað umhverfi en þessar leikskólahrúgur sem haldi ekki vatni né vindi. Held semsagt að þetta sé allt á hraðri uppleið barasta, ekki vafi á öðru. Eftir 5 ár verður komið risahýsi á Hamra, glænýtt og mega flott sem mun hýsa stærsta skátafélag landsins, gegna hlutverki þjónustuhúss stærsta og flottasta tjaldsvæðis á Íslandi, og þótt víðar væri leitað! Svo verður komin sundlaug og heitapottar, brjáluð klifur og ísklifuraðstaða, góð skíðalyfta upp í gamla og svo margt margt margt fleira ;)
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | teddi skrifaði síðasta svar

20:48 þann 01. júní 2005 - hvalur
Alveg búinn á því
     Nú er ég gjörsamlega búinn á því, finn engar sérstakar ástæður fyrir því en finn bara hvað þreytan þyngir alla útlimi.. Fólkinu fjölgar í sífellu sem starfar á Hömrum, í dag vorum við 7 talsins að ég held og allt á fullu við að rífa, byggja og brasa. Búinn með svona 50 brúsa af aftersun ;) og á bara von á að þeim fjölgi. Annars er mest lítið að gerast þessa dagana, bara vinna, vinna og vinna. Kári tjáði mér í dag að lögreglulið höfuðborgarsvæðisins hefði brotist inn í íbúð okkar á Grettisgötunni og komið þar fyrir einhverjum dularfullum hlut, er reyndar nokkuð sáttur við lögguna þar því hluturinn talar og greiddi mér húsaleigu í dag svo það er ekki verra ;) Þetta reddast alltaf á endanum, óþarfi að vera að stressa sig of mikið út af hlutunum...
     Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar

 
22:13 þann 29. maí 2005 - hvalur
Allt að gerast
     Jæja, nú fer maður að fá fráhvarfseinkenni frá blogginu ;) Maður er bara á fullu alla daga að vinna og brasast eitthvað, allir krakkar í heiminum að koma uppá Hamra að fá útrás eftir veturlanga innisetu og allskonar bull... Svo er maður að brenna upp í sólinni hér norðan heiða, ekkert einkennilegt við það svosem ;) aldrei annað en gott veður hér. Ég náði semsagt tveimur prófum, féll í einu og tók ekki eitt, langt frá því að vera glæstur ferill en bara nokkuð gott miðað við allt það nám sem ég stundaði í vetur, eða þannig. Svo það er bara upptökupróf í ágúst í frumulíffræði, fékk fjóra þar svo ég þarf ekki að lesa yfir mig til að ná fimmunni, er ekki allt umfram bara aukavinna eða hvað? Jæja, ætla ekki að overdosa alveg strax eftir svona langt frí... Farinn að horfa á eastarann á S1.
     Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar

11:51 þann 17. maí 2005 - hvalur
Daginn daginn..
     Þá er maður að koma sér upp nýrri rútínu hérna í höfuðborg norðursins. Lítið gerst undanfarið svosem, bara byrjaður að vinna á Hömrum svona að einhverju leyti.. Leit augum á föstudagskvöld stærðarinnar ísjaka fyrir utan Blönduós.. áleit reyndar að þetta væri skemmtiferðaskip þar sem ég trúði ekki mínum eigin augum...

Svo lítur út fyrir að maður skelli sér á forsýningu á Star Wars í kvöld, Sverririnn (brói Valdísar) bauð mér miða og ég gat nú ekki neitað því. Er annars þessa stundina að troða mér og mínum eigum inní herbergið hennar Valdísar í Heiðarlundinum, við mikla ánægju ;) Á sennilega eftir að verða rekinn út aftur eftir nokkra daga þegar ég verð búinn að umturna öllu í herberginu og koma skipulagi á þetta
     Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar

 <  1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  >