| 19:47 þann 27. september 2005 - hvalur Ég þoli ekki... .. þegar maður er búinn að eyða hálftíma í að blogga einhverja ágætis romsu og svo einhvernveginn tekst manni að klúðra því svo allt hverfur!!! Nenni ekki að skrifa meir núna þar sem ég er hundfúll!! Kem aftur með fleiri staðreyndir næst ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 00:09 þann 17. september 2005 - hvalur Snúinn aftur Þetta er búin að vera ansi góð vika, fór suður í borg óttans á mánudagsmorgunn í þeim tilgangi að fylgja vísindamönnunum úr hlaði þ.e. Valdísi og Unu, Lilý var úti í Frans. Vikan hjá mér fór semsagt í að eyða peningum í föt, mat og dót á meðan vísindamennirnir sinntu fjölmiðlum og öðrum skyldum. Maður varð bara eins og versta kerling. Átti líka þetta fína ammæli fyrir sunnan siðmenningu og fékk þessar líka fínu gjafir, takktakk Nenni ekki að skrifa meir núna, ætla að horfa á einn eða tvo þætti af Lost, fyrstu seríunni Einhver skoðun á málinu? ( 12 að nöldra) | Lilja skrifaði síðasta svar |
|
| 19:21 þann 08. september 2005 - hvalur Lú-inn! Maður er voðalega lúinn eitthvað í augnablikinu.. hefur kannski eitthvað með það að gera að ég var með húfu í allan dag að kafna í hitanum hérna norðanlands en eins og allir vita er ekki aftur snúið þegar einu sinni er verið með húfu yfir daginn verður maður að vera með húfa það sem eftir lifir dags.. reddaði því reyndar eftir kvöldmat með því að fara í klippingu um sexleytið Þetta eru alveg vonlausir dagar hvað klæðaburð varðar, ég dúða mig í ullarnærföt og powerstretch á morgnana og svo um hádegi er maður orðinn nánast ber að ofan og bókstaflega ber að ofan suma daga! Ómögulegt að eiga við þetta íslenska veðurfar! Er annars alveg helvíti sáttur með bongoblíðuna sem var í dag, veit ekki hvað ég er að tuða þetta...Held að landinn sé að verða alveg óður í jeppakaupum og bílalánum, renndi nefnilega í lúgu í hádeginu og varð starsýnt á þennan líka gríðarflotta Ford 350 með tvöfaldri hásingu í næstu lúgu fyrir framan mig, kastarar og króm og alles. Jæja, hann kláraði sinn bisness, lagði út í kant og hóf átið, ég fékk mitt og lagði fyrir aftan hann og dáðist að gripnum, svo greinilega kláraðist snæðingurinn í 350 græjunni og hún brunaði í burtu. Nema hvað rétt eftir að þessi hvíti Ford spændi burt kemur annar grár Ford 350 með tvöfaldri hásingu, kösturum og krómi, og rétt rúmlega tvítugir gæjar að keyra báða bílana!!! Af hverju á ég ekki svona..alveg lífsnauðsynlegar græjur augljóslega! ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 21:54 þann 07. september 2005 - hvalur Fyrirsjáanlegt.. Eins og maður átti svosem von á tókst mér nú ekki að halda það lengi út að labba í vinnuna.. fór semsagt á bíl í morgun þar sem ég kúrði aðeins of lengi. Hinsvegar hreyfði ég mig nú samt þar sem ég gekk með smáhóp úr Grunnskólum bæjarins (sem er í útilífsvali uppá Hömrum) uppá Arnarhamrana og því langleiðina uppí Gamla. Þá fór ég með liðið á skátafundi í leit að hellum/gjótum í brekkunni undir Arnarhömrunum.. þeim tókst að troða sér ofan í nokkrar holur, við Árni svipuðumst samt aðeins eftir þeim, vorum ekkert að hætta á að verða fastir í holu uppi í miðri brekku ![]() Verð nú að kvarta sáran yfir dagskrá fjölmiðla hér á Íslandinu góða, var í leit að afþreyingu áðan, byrjaði á Rúv, eitthvað lame leiðinlegt, man ekki einu sinni hvað.. þá Skjár einn, Dr. Phil að væla og grenja eitthvað eins og honum einum er lagið.. að lokum Stöð 2, neinei bara Oprah on your ass (eins og sagt er) að grenja og væla rétt eins og Dr. Phil!!! Hvað er að, jæja ég skipti því á Sirkus þar sem var ágætis slökkviliðs karlrembu sápa í gangi.. sætti mig svosem við það... Einhver skoðun á málinu? ( 6 að nöldra) | Bjarni skrifaði síðasta svar |
|
| 18:38 þann 06. september 2005 - hvalur (1+2)*(2+2+1)*(1+2) = ? Í dag er annar dagurinn í röð sem mér tekst að labba í vinnuna.. einar 45 mínútur hvora leið. Þetta er liður í að koma sjálfum mér í þolanlegt labbiform fyrir júrókrúsið okkar kárans.. minnist þess nefnilega að hafa verið kominn með 500 kg bjúg á hvora löpp og hælsæri inn í merg síðustu páska þegar við Teddinsky fórum erlendis.. En það skal svo sannarlega ekki endurtaka sig! Því stilli ég vekjaraklukkuna á 6:30 þessa dagana, snúsa hana til sjö, næ að labba af stað klukkan 07:30 með 97 lítra bakpokann á bakinu, fullan af drasli (svindla samt aðeins og hef það bara létt drasl (; ), tek við ómældum störum frá nágrönnum á leið til vinnu, svo tekur það mig 45 mínútur að rölta þessa vegalengd og svo korter að græja mig á áfangastað.. svo ég er að mæta hálftíma of seint til vinnu þessa dagana... þarf að gera eitthvað í því... hmmm.. Skrapp í sextíuogsexgráðurnorður áðan, ætlaði að versla mér semi-gönguskó, svona stífa strigaskó semsagt, hef nefnilega litla lyst til þess að spígspora um í evrópunni í illa lyktandi gönguskónum mínum sem ég hef verið að rækta fótsveppi og eitthvað þaðan af verra í í allt sumar!! Myndi sennilega vera stoppaður úti fyrir efnavopnasmygl.. en eins og þið heyrist snýst eiginlega allt um þetta fína interrail okkar kErlings þessa dagana.. verður stuð! Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Karen skrifaði síðasta svar |
|
| 21:03 þann 31. ágúst 2005 - hvalur Alltaf nóg að gera... Eða hvað, jæja allavega fundum við Finnbogi okkur eitthvað að gera í fyrrakvöld og sjá má þennan líka fína afrakstur hér :D Annars er lítið að frétta, maður er jú að vinna eilítið minna en rest sumars og nýtur þess í botn að horfa á snjóinn hlaðast upp í hlíðum Hlíðarfjalls. Þó verð ég að segja að það mætti alveg vera heitara svona niðrí bæ.. alveg óþarfi að ég þurfi að mæta í ullarnærfötum í vinnuna!! En jæja maður fær ekki allt sem maður vill.. vona samt innilega að maður nái að renna sér aðeins í fjallinu svona rétt áður en við förum til Österreich.. svona þar sem liðið er jú búið að splæsa í snjómyndunargræju einhvurja... hmmmm Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 20:59 þann 24. ágúst 2005 - hvalur Bubbi byggir eða Birgitta,hmmm Jamms, er búinn að vera að smíðast inní hesthúsi á Hömrum í dag, verð að játa að mér finnst þetta hreint ekki leiðinlegt, að fá að búa til eitthvað svona kerfi til að halda utan um hlutina. Er semsagt að dunda mér við að smíða aðstöðu utan um verkfærin.. Á meðan ég svitnaði við þetta erfiðisverkefni sátu svo Anna og Valdís inní útilífsskóla og þóttust setja dót ofan í kassa, hef nú lúmskan grun um að þær hafi bara setið allan tímann með sömu hlutina og ekkert gert :op Við Anna héldum svo þennan massíva skátafund þar sem heilir tveir mættu!!! Fórum uppí hesthús (þar sem ég var í allan dag) og hjálpuðum drengjunum við að smíða svona líka fína pennastanda úr birkisneiðum og spýtnadrasli.. Ægilega fínt, er að hugsa um að fylla herbergið okkar Valdísar af svona, efast ekki um að það myndi vekja mikla kátínu. Anna sýndi mér svo hvernig er í pottinn búið heima hjá henni, semsagt liggur keðja úr eldavélinni og í buxnastrenginn hjá Önnu, finnst nú að fleiri mættu taka sér þetta til fyrirmyndar haaa, hmmm... Einhver skoðun á málinu? ( 9 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 23:51 þann 21. ágúst 2005 - hvalur Lúinn !! Jelló, tók þátt í því að sýsla með flokksforingjanámskeið á Hömrum frá síðastliðnum Miðvikudegi þar til í dag, var svona líka nifty dagskrá sem Hreiðarsson fæddi. Byrjaði á Hömrum, gist þar í tvær nætur í tjöldum og svo rölt niður í Krossanes, siglt þaðan á gúmmítuðrum Súlumanna yfir sæinn, tekið land í jörð Stebba Þönguls, rúntað uppí Valhöll, gist þar. Á Laugardag rölt yfir Vaðlaheiðina á þeim mettíma, sjö klukkustundum, á leiðinni fæddist eitt barn og einn skátinn fermdist og átti tíu ára fermingarafmæli. Áfangastaðnum Vaglaskógi var semsagt náð eftir langa og stranga göngu, etið, sungið sofið og svo rúta vestur á Akureyri seinnipartinn í dag. Ég var nú ekki svo frægur að rölta yfir heiðina eins og Gulli og Teddi heldur tók ég það verkefni að mér að koma Blue Beuty yfir í Vaglaskóg, það reyndist vera þrautin þyngri þar sem báknið virðist hafa sinn eiginn huga. Til að byrja með þurfti að láta hann renna í gang, þá þurfti að redda fleiri öryggjum fyrir viftunni sem kælir vélina, við Arnar Ú riðum svo skepnunni af stað áleiðis austur. Við þurftum einungis að stoppa tvisvar á leiðinni upp Víkurskarðið, kæla kvikindið niður og brynna bikkjunni bæði af flöskum sem kláruðust og þ.a.l. í seinna skiptið úr nærliggjandi læk. Við illan leik komumst við semsagt upp á heiðina, létum svo í frígír niður á við og léttist þá heldur róðurinn eftir það. Held það borgi sig að láta líta á greyið bílinn í bráð.. Annars er maður skrambi lúinn eftir undanfarna daga þar sem það var eigi hlaupið að því að þyngja augnlok dýranna þar sem þau lágu í tjöldum sínum og æfðu raddböndin. Þar af leiðandi hlaust af lítill svefn og stigvaxandi pirringur svæfingamanna þegar á leið. En allt hafðist að lokum, búinn að borða ostabrauðstangir, pissu með aukaosti, kók, ís með ferskum jarðarberjum og haug af marssósu svo ekkert getur verið að eins og er :D Ahhh, hefði átt að setja Baileys út í marssósuna!! Prófa það næst.. Jæja sofa í hausinn.. held það sé frí á morgun barasta... Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 23:01 þann 15. ágúst 2005 - hvalur Þá er þetta að bresta á... Er búinn að vera að skemmta mér við að lesa frumulíffræði undanfarna daga og fer svo í þetta fína próf á morgun.. Endilega sendið mér frumulíffræðistrauma á morgun á milli hálftvö og hálffimm.. Geri mér reyndar engar vonir um að ná þar sem ég sinnti þessu ekkert síðasta vetur En það má alltaf eyða peningunum í að reyna Svo er planið að skella sér í staffaperty eitthvað með vinnuþrælunum af Hömrum annað kvöld, svo það er flug norður í fyrramálið tiltölulega snemma, kíkt í bækur í öskju til hálftvö, próf til hálffimm og svo farið í loftið norður aftur klukkan sautján. Eftir það þarf svo að bæta upp fyrir ákveðna þurrð í sumar.. ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 12:20 þann 06. ágúst 2005 - hvalur Bíla-plan Jæja, þá er búið að setja fram nýtt plan yfir næsta tæpa árið, Valdís: Rússland 17. Sept, Þýskaland sem Au Pair strax eftir það, svo heim í mánuð og svo Austurríki í fjóra mánuði frá ca. 1. Desember. Ég ætla annars að reyna að jobba eitthvað í haust, ekki alveg víst með það reyndar Svo tókst mér að narra Kárann með mér að öllum líkindum í eitthvað ágætis ferðalag austur á bóginn í Evrópuna, allt í hönnun sko...Annars er mest lítið að gerast þessa dagana, búinn að vera að skoða Folf diska hjá gaurunum hjá Innova. Aldrei að vita nema maður panti sér einhverja svala diska og fari að stunda þetta bara, skilst að menn spili þetta jafnvel á veturnar líka. Væri fyndið að renna á gönguskíðunum inná Hamra og Folfa í snjónum Þann 16. Ágúst er kallinn svo skráður í þetta líka fína Frumulíffræði upptökupróf, er svona að vinna í því að lesa það aðeins Kemur reyndar á óvart hvað það er ekki leiðinlegt að lesa þetta :D Samt er alltaf eins og bara það að læra sé leiðinlegt og fæli mann frá, duló... Jæja, ætla að kíkja aðeins í WOW, nauðsynlegt öðru hvoru svona... ![]() Einhver skoðun á málinu? ( 8 að nöldra) | karen skrifaði síðasta svar |
|
| 00:51 þann 27. júlí 2005 - hvalur Þá er það búið Landsmótinu bara lokið og við tekur vinnan á ný, versló og svona.. yndislegt Landsmótið var tær snilld barasta, einstaklega gott veður, jafnvel of gott held ég bara, hræddur um að við munum eiga erfitt með að keppa við þetta veður á næsta landsmóti á Hömrum eftir þrjú ár, þrátt fyrir að Hamrar séu á Norðurlandi! Þetta gekk stóráfallalaust svona, vorum iðin við að heimsækja sjúkratjaldið en sjaldan um nokkuð stórvægilegt að ræða. Kom líka skemmtilega á óvart hvursu margir Akureyringar mættu á svæðið og gistu á fjölskyldustæðinu í kringum helgina. Massa mót semsagt..Við Kári höfum nú sagt skilið við Grettisgötu 3, sennilega endanlega. Margar glaðar stundir þaðan.. Við skruppum semsagt af landsmótinu á Sunnudagsmorgun með eitt stykki Trooper og eina hestakerru, ætluðum að snarast í borgina, henda draslinu í kassa og jafnvel keyra aftur til Úlfljóts um kveldið. Dæmið reyndist þó heldur umfangsmeira en ætlað var og vorum við að til tæplega fimm á mánudagsmorgun, þá lögðumst við til svefns. Um klukkan hálfníu (ca. þremur tímum seinna fyrir þá reikningssljóu) risum við á ný upp, alveg eldhressir og kláruðum dæmið, kári komst af stað úr borginni á tólfta tímanum og rétt náði fyrir vakt klukkan 18 fyrir norðan. Ég fékk svo far hjá Marinó upp á Úlfljótsvatn aftur, á nýja Auðanum. Maður hefði haldið að flutningunum hefði verið lokið á þessum tímapunkti en nei, aulinn ég gleymdi að skila af mér lyklunum svo ég þurfti að ræna bílnum hans finnboga, renna í borgina með lyklana og bræla uppá Úlfljótsvatn á ný.. eðall. Jæja hátta... Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Ásgeir skrifaði síðasta svar |
|
|
|