| 01:02 þann 23. júlí 2007 - hvalur Loksins eitthvað af viti framkvæmt... Hananú sagði hænan, við skelltum okkur loksins úr bænum ég og frúin. Fórum á föstudagskvöldið á ættarmót á Skagaströnd, afkomendur langömmu og langafa en þau áttu einmitt 13 börn saman, hvorki meira né minna. Þetta voru hátt í 200 manns þarna samankomnir, það var söngur gleði og gaman, get ekki sagt að ég þekki nema örlítið brot af þessu liði en ég hafði gaman af og lærði loks nöfnin á systkinum ömmu svona ca. Ætla að reyna að telja þau upp: Erla, Bogga, Stella, Gerður, María, Gyða, Mannsi, Jónas, Jói, Gunni, það eru 10 stk., þá vantar þrjú seeeeem ééég man eekki hvað heita í augnablikinu, skrambinn, kannski seinna. Í dag vöknuðum við svo um ellefu leytið, pökkuðum saman föggum okkar og renndum á Sólvang, ættaróðalið á Skagaströnd, þar sem við fengum smá í gogginn. Þá ákváðum við að fara lengri leiðina heim, og gömlu voru í samfloti. Fyrst keyrðum við Þverárfjallið á Sauðárkrók, fórum svo á Hofsós og í fljótin, komum við í samgönguminjasafninu í Stóragerði, þar voru glæsilegir Land Roverar sem báru af, hinir bílarnir voru bara eitthvað prump. Svo lá leiðin á Sigló, fórum svo Lágheiðina á Ólafsfjörð, heilsuðum þar upp á ömmu Valdísar á Elló og svo brenndum við heim á leið, þetta var semsagt góð helgi, það var mikið að maður gerði eitthvað annað en að sitja heima á rassinum... Ætla að henda hérna inn slóð svo ég týni henni ekki : ) skagafjordur.com Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Una skrifaði síðasta svar |
|
| 04:31 þann 17. júlí 2007 - hvalur Flutt inn og fínerí Skoh, komin með net og alles : ) Var búinn að vera að pirrast yfir því að netið hefði ekki komið fyrir helgi eins og ég bjóst við en þá kom í ljós að það var sambandsleysi í símatenglinum sem ég tengdi með Ásgeiri Hreiðars hérna um daginn, erum víst búin að vera tengd síðan í síðustu viku einhverntíman ; p Jæja, við erum semsagt flutt inn, allt svona nánast klárt, Hjálmar í Súlum, múrarapípari, er að sjatla steypuvinnuna í sturtunni fyrir okkur smátt og smátt, þegar það er búið verður hægt að mála baðherbergið, setja þar upp spegla og hillur og svo flísaleggja sturtuna og setja upp sturtuhurðarnar, mikið hlakka ég til að fara í sturtu hérna!!! Við sluppum við í þetta skiptið að kaupa okkur meiriháttar tæki í búið, fáum þvottavél frá Sverri og svo lánuðu Lilja og Vaggi okkur snilldarísskáp, fyrir utan það svo að eitt stykki ísskápur fylgdi íbúðinni, en hann fær bara það hlutverk að hýsa bjórinn úti á svölum, í bili allavegana... : ) Annars er það helst í fréttum að Land Roverinn minn, Kára, Finnboga og Eilífs er að verða skoðunarhæfur og er planið að fara með hann í skoðun á miðvikudag, þá verður dómsdagur, hvílík snilld sem það verður að fara í ferðir á þessum hrikalega trukk!!! Djöfull hlakkar mig til! ( ekki ég heldur mig!!). Sé fram á margar ánægjstundir í fáknum : ) Gute nacht, overandout....... Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 02:33 þann 25. júní 2007 - hvalur Hrísalundur fjögur dé Jæja, loksins erum við komin með lyklana að Hrísalundinum, erum að vinna í því þessa dagana að hliðra baðherbergis innréttingunni um 10 cm svo venjuleg þvottavél komist fyrir, svo þarf að troða ýmsum snúrum inn í veggi og á bak við lista og dót, svo þarf að spasla, mála, við erum búin að henda út sturtuklefanum sem var bærilega skítugur, Valdís tók ekki í mál að þrífa hann upp, svo tengdó ætla að gefa okkur nýjan í ammælisgjöf (23. nóv og 14. sept), heppilegt. Það er því í ýmis horn að líta, allir velkomnir í vinnuþrælkun sem vettlingi geta valdið : ) Það kom skemmtilega á óvart að með íbúðinni fylgdi ágætis ísskápur, hann er að vísu örlítið laskaður, búið að splæsa smá spýtu við neðstu skúffuna þar sem hún er brotin, vitum heldur ekki hvort hann kælir - erum að spá í að nota þennan sem bjórskáp út á svölum og svo nota ísskápinn Lilju og Vagga inni í íbúð, grunar að hann sé praktískari og betur með farinn, auk þess sem frystihólfið í honum er fyrir neðan kælihólfið - sem er mjög mikill kostur!!! Dagsetning fyrir innflutningspartý er ekki negld en lítur út fyrir að það verði bara um næstu jól, það eru allir svo uppteknir! Einhver skoðun á málinu? ( 5 að nöldra) | Finnbogi skrifaði síðasta svar |
|
| 16:06 þann 05. júní 2007 - hvalur Langur hádegismatur Í dag og á morgun verð ég á námskeiði á vegum vinnuskólans, svona flokksstjórnarnámskeiði semsagt. Það verður ágætt, smá afslöppun - er búinn að vera skrambi lúinn og stífur í öllum vöðvum eftir vinnuna núna undanfarið. Getur verið erfitt að byrja að vinna svona aftur eftir skólasetu, ekki það að ég hafi setið mikið í skólanum í vetur en átökin voru þó minniháttar í tímum. Er semsagt í löngum hádegismat núna, konan sem átti að lesa yfir okkur um innflytjendur var upp á fæðingardeild svo við sluppum út talsvert fyrr en ætlað var. Nú fer að líða að búsetuflutningum okkar Valdísar, eigum að tæma Drekagilið fyrir 15. júní og fáum svo íbúðina í Hrísalundinum 1. júlí. Ætlum að reyna að flytja megnið af draslinu í bílskúrinn hjá pabba og mömmu núna um helgina, svo er planið að búa í Byggðaveginum þar til við fáum Hrísalundinn. Gömlu eru nefnilega á Kanarí með allan skarann og fara svo á Skagaströnd þegar þau koma heim svo við höfum einhvern haug af fermetrum út af fyrir okkur : ) Spennandi tímar framundan... Einhver skoðun á málinu? ( 1 að nöldra) | Kristín María skrifaði síðasta svar |
|
| 16:32 þann 26. maí 2007 - hvalur Mættur í borg óttans Tók mig til á miðvikudag, fékk Valdísi til að skutla mér að Þelamörk með bakpokann minn stútfullan af drasli, við Þelamörk sat ég svo í um 50 mínútur með þumalputtann upp í loftið, loks stoppaði flutningabíll fyrir mér og ég komst í Varmahlíð með honum. Markmiðið var semsagt að fara suður á puttanum og skoða næsta nágrenni þjóðvegarins nánar á köflum. Ég þurfti ekkert að bíða í Varmahlíð, þar tók mig upp ágætis karl á húsbíl, held að bíllinn hafi heitið Sigurdís, minnir það allavega og kallinn Sig... eitthvað, kannski Sigmundur, var allavega af Mýrarlónsættinni sagði hann. Jæja, ég ákvað að hoppa úr í Hreiðavatnsskála, "Sigmundur" hafði sagt mér frá fossinum Glanna og Paradísarlaut sem átti að vera þarna í næsta nágrenni við Bifröst. Ég fékk svo leiðbeiningar hjá fullum gröfukarli sem var að horfa á leikinn Liverpool - AC Milan, um hvert ég ætti að fara næst, byggðist að mestu á að ég ætti að fylgjast með einhverju skilti sem hann var búinn að taka niður og setja ruslapoka ofan á, varð reyndar aldrei var við þennan ruslapoka. Ég komst engu að síður niður að Norðuránni, sá fossinn Glanna sem er einmitt mjög flottur og um 10 mínútur frá þjóðveginum! Svo rambaði ég einhvernveginn á Paradísarlaut þar sem ég ákvað að gista. Fimmtudeginum eyddi ég í að labba frá Paradísarlaut meðfram Norðuránni að veitingaskálanum Baulu. Ég stoppaði svona klukkutíma í Baulu, náði áttum, fékk nokkra bolla af heitu vatni úr kakóvélinni til að fylla hitabrúsann : ), svo tölti ég upp á veg aftur og fékk far um leið, hoppaði úr í Borgarnesi þar sem ég ætlaði að gista á tjaldsvæði bæjarins. Í Hyrnunni var mér tjáð að búið væri að leggja tjaldsvæðið af, nennti ekki að spyrjast frekar fyrir um það svo ég húkkaði mér far yfir fjörðinn, að mótel Venus, þar sem ég vissi að væri tjaldsvæði, lét svo fara alveg ágætlega um mig á milli Birkihríslanna þar á bæ. Föstudagur rann svo upp, frekar kaldur en a.m.k. úrkomulaus, einstaka snjókorn villtist niður úr himnunum. Ég nennti ekki í borgina alveg strax, svo ég gekk ströndina undir Hafnarfjallinu til klukkan að verða tvö, þá gekk ég upp á veg og fékk bíl um leið alla leið í borgina. Nú er ég semsagt kominn í íbúð frænku minnar uppi í Breiðholti, hún er farin norður svo ég hef slottið út af fyrir mig,úff, það var kærkomið að sofa með sæng í góðu rúmi í nótt, geta teygt endalaust úr sér! Pabbi og mamma koma svo hérna á eftir og svo förum við í brúðkaup frænda míns um fimmleytið held ég. Reikna svo með að við förum heim á leið á morgun, fæ sennilega bara far hjá gömlu eða einhverjum ættingjunum ef þau ætla að ílengjast, sé til... Einhver skoðun á málinu? ( 3 að nöldra) | Lilja skrifaði síðasta svar |
|
| 01:47 þann 08. maí 2007 - hvalur Hvalur gleypir mann og annan.. Ef þetta lýsir mér ekki í bak og fyrir : ) Valdís stendur í meiri prófalestri en nokkrar sögur fara af alveg aftur til þess tíma þegar... hmmmm... uhhh, jah, allavega, hún er að læra stíft fyrir próf. Prófalestur felur einstaka sinnum í sér að maður innbyrðir smá skammta af orku í formi sælgætis. Í gær eða fyrradag fór Valdís út úr íbúðinni til þess að nema hjúkrunarfræði með fleiri verðandi hjúkrunarfræðingum ( þær ferðast í hópum, varið ykkur). Nema hvað, hún skildi eftir poka af nammi á sófaborðinu og súkkulaði kex. Ég að sjálfsögðu tók þetta sem augljóst merki um að það væri mitt hlutverk að gera þessu skil, það var augljóslega ætlun Valdísar. Hófst því handa við að eta sætindin og tók það fljótt af. Jæja, í dag spyr Valdís mig hvar nammipokinn sé og ég bendi góðfúslega á það að sennilega sé hann enn í maga mínum eða kominn í skólpkerfi bæjarins og þar með hugsanlega út í Pollinn. Það kom semsagt í ljós að Inga Steinunn, vinkona Valdísar, sem ekki hefur stigið fæti á klakann í fjölda ára er komin til landsins og hafði meðferðis þessi dýrindis sætindi handa Valdísi sem hún (Inga) mundi sérstaklega vel að Valdísi þóttu gríðargóð og viti menn ég át þau nánast öll, hvernig í ósköpunum átti ég að vita að þetta væri sérstakt þýskt sælgæti sem ekki fæst í nokkurri búð á Íslandi? : ) Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 18:21 þann 22. apríl 2007 - hvalur Gríðarstuð í skátaskeytasölu Jebb, sit hér upp á Hömrum í dag eins og í gær og svara í síma. Ferming í dag og í gær semsagt og þá skal selja skeyti til styrktar skátafélaginu. Ekki mikið að gera, tók með mér ps2 tölvuna og nokkra diska af friends svo manni leiðist ekki út í hött. Annars er leiðinlega mikið af snjó þessa dagana, hélt að nú væri komið sumar og sól, svo er bara trekk í trekk (þ.e. tvisvar ) kominn snjór á morgnana og maður neyðist til að skafa af bílnum... samsæri eins og einhver myndi segja. Líst vel á mökk af útilegum í sumar, reyna að vinna sig ekki í hel og gera eitthvað af viti, spurning hvað úr verður þó... Svo verður maður að reyna að snapa sér frídaga í kringum 17. júní. Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | Lilja skrifaði síðasta svar |
|
| 15:53 þann 18. apríl 2007 - hvalur Kominn tími á nýtt blog eða? Eins og þið gætuð hafa tekið eftir borgaði ég ekki af www.hvalur.com og keypti það þ.a.l. einhver annar og neyðist ég til að borga tæplega 20.000 krónur til að halda því og það hyggst ég ekki gera. Því ætla ég bara að nota hvalur.golin.org í bili, sem ég fæ semsagt frítt enn sem komið er hjá Ásgeiri kallinum. Þetta er semsagt aðalástæðan fyrir blogleysinu, svo og almennt framtaksleysi eins og það gerist best. Annars er allt við það sama, maður er í skólanum bara að smíðast eitthvað og svo að vinna sem starfsmaður hjá Klakki þess utan. Skólarnir eru byrjaðir að hafa samband upp á Hamra vegna vorsprells og getur verið að maður fái smá djobb út á það, ekki það að það sé ekki alveg nóg að gera. Alveg finnst mér merkilegt að veturinn sé að verða búinn og bara alveg að koma sumar! Sumardagurinn fyrsti núna á fimmtudag barasta, jæja, sama klisjan og venjulega: nú verður maður að vera duglegur að gera eitthvað utan vinnu og hitta fólk, ekki enn eitt vinnusumarið takk fyrir - endar pottþétt þannig... mæli með að við stöndum saman að þessu markmið því sundruð föllum vér. Uhhhm, ef einhver sér þessa síðu núorðið væri gaman að vita af því, endilega kommentið... :o Einhver skoðun á málinu? ( 4 að nöldra) | Helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 17:06 þann 20. janúar 2007 - hvalur Það bara snjóar og snjóar : ) Skíðafærið þessa dagana er gríðargott í Hlíðarfjalli, maður þyrfti bara að hafa meiri tíma og fleiri skíði. Er kominn langleiðina með að rústa nýju skíðunum mínum, þ.e. þau eru orðin svo skrambi rispuð eftir utanbrautarferðir, var nefnilega talsverður skortur á undirlagi undir púðrið fyrir nokkrum dögum svo maður var að skrapa grjótið full mikið! Annars er lítið í fréttum, skólinn eins og venjulega, ekki í neinu bóklegu eiginlega, er að vísu talsvert ósáttur með stundatöfluna, svona að vissu leyti allavega, á til dæmis að vera í tímum til klukkan að verða sex á föstudögum!! Hélt að þetta væri lögbrot en svo er víst ekki... Að vísu er ég nánast í fríi á mánudögum og miðvikudögum, ef mér tekst að halda mér svona ca. viku á undan áætlun í grunnteikningu hugsa ég að kennarinn leyfi mér að mæta bara á fimmtudögum, það væri snilld... Jæja, ætla að brjóta saman þvottinn og skjótast í eins árs afmæli í tjarnarlundi... Gleymdi næstum; takk fyrir allar hamingjuóskirnar : ) nú fyrst er maður að verða gamall, kominn einhver baugur á puttann!! Fæ smá sjokk öðru hvoru en er að öðru leyti bara hamingjusamur með þetta : ) Einhver skoðun á málinu? ( 2 að nöldra) | helgi skrifaði síðasta svar |
|
| 19:56 þann 01. janúar 2007 - hvalur !!!ðirá tgeliðelG Jæja, 2006 barasta búið, bless. Ótrúlegt en satt, fannst það frekar stutt, á annan endann, jah, reyndar báða og í miðjuna líka , hmmm. Við erum að tala um Sölden, ferðlag, vinna, skóli og vinna, vinna, jól, flugeldavinna, áramót, búið bless. Þetta var árið 2006. Er víst nóg eftir samt, spennandi að vita hvað 2007 ber í skauti sér. Mér fannst skaupið bara alveg ágætt en ykkur? (dembi fram þessari spurningu í þeirri von að einhver góðhjartaður lesandi svari henni svo það líti allavega út fyrir að a.m.k. ein manneskja skoði stundum síðuna ; p ). Í tilefni nýja ársins fór ég upp í Hlíðarfjall áðan í göngubrautina með mömmu og pabba, pabbi gaf mömmu nefnilega gönguskíði í afmælisgjöf í nóvember síðastliðnum og pabbi fékk í afmælisgjöf fyrir tveimur árum, 2004 þ.e. Þetta var semsagt frumraun mömmu á gönguskíðum, reyndar bara á skíðum almennt, og gekk bara skrambi vel, húrra fyrir því : ) Ætla renna í Byggðaveginn til að vita hvort ég geti ekki sníkt smá kökur og góðgæti í laun fyrir "skíðakennsluna" : ) Gleðilegt ár og takk æðislega fyrir þau gömlu :o) Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Katrín Kolka skrifaði síðasta svar |
|
| 05:30 þann 25. febrúar 2006 - hvalur Jó-ólin jó-ólin alls staðar... dadada Ég elska jólin.. allir svo happy.. hitta stórfjölskylduna í jólaboðum, spila á spil... éta, éta og éta meira af góðgæti.. mmmm, tók að mér að hjálpa jólasveininum við dreifingu pakka í morgun ( á vegum Súlna), var ekki lítið gefandi það... Allavegana, til hamingju öll sömul nær og fjær með hátíðarnar, gleðileg jól og megið þið eiga giftusamlegt ár og takk fyrir allt á þeim árum sem að baki okkur standa : ) Hafið það gott og étið bara nógu mikið!! Einhver skoðun á málinu? ( 7 að nöldra) | Kristín María skrifaði síðasta svar |
|
|