Interrail 2005

Hér er að finna megnið af dagbók sem ég rót á ferð okkar Kára um Austur Evrópu haustið 2005.
     Við ákváðum að kaupa okkur Interrail miða, byrja á að fljúga til London í sitthvorri flugvélinni og dvelja þar yfir helgi. Næst átti svo að svífa til Tékklands, þaðan ætluðum við að þreifa okkur áfram í stórum boga niður að Miðjarðarhafi og svo upp til Ljubliana í Slóveníu hvaðan planið var að fljúga heim.

Ef þið hafið áhuga á ránum, ódýrum mat, rútufreyjum, uppgangi og / eða ungversku kareoki endilega klikkið á kjaftinn :)

Sölden

Sölden er bær í Austurrísku Ölpunum nokkra kílómetra frá Ítalíu, íbúar bæjarins eru hva.. ca. 2000 en nálgast tífalt það þegar mest er af skíðafólki.
   Þegar þetta er útbúið störfum við Valdís ásamt 11 öðrum Íslendingum á veitingastað á skíðasvæði fyrir ofan bæinn. Við vinnum sex daga í viku, einn dagur frí sem alltaf fer í skíði þegar menn bera ekki við aumingjaskap og svo er nachtschilauf á miðvikudagskvöldum.

Hljómar himneskt í mínum eyrum allavega, þó mætti snúa hlutfalli vinnu og skíða við :)